LandiðKarl Sigurðsson er elsti maður Íslands – Fagnaði 105 ára afmæli í gær Vestfirðingurinn Karl Sigurðsson fagnaði 105 ára afmæli í gær en hann er fæddur 14. maí 1918. Karl er elstur allra karla á Íslandi. Aðeins er ein manneskja hefur náð hærri aldri á Vestfjörðum, Torfhildur Torfadóttir, sem varð 107 ára. Karl er fæddur á Ísafirði en flutti hann þaðan í Hnífsdal aðeins eins árs gamall og hefur búið þar stærsta hluta...
LandiðStingur upp á flotbryggju fyrir seli í lónið á Seyðisfirði – Vel tekið í hugmyndina Íbúi á Seyðisfirði kom með þá frumlegu hugmynd að settar verði upp nokkrar litlar flotbryggjur fyrir seli við lónið á Seyðisfirði, heimamönnum og ferðafólki til ununar. Austurfrétt segir frá því að Elvar Snær Kristjánsson hafi lagt fram þessa hugmynd fyrir heimastjórn bæjarins fyrir skemmstu og óskaði eftir stuðningi. Fyrirbærið kallar hann selavin. Samanstæði það af lítilli flotbryggju eða pramma sem...
LandiðAllar fjölskyldur komnar með húsnæði eftir snjóflóðin – Ein flutti aftur heim Vel hefur gengið að útvega skaffa húsnæði fyrir þá einstaklinga sem ekki hafa getað snúið til síns heima eftir snjóflóðin í Neskaupsstað í lok mars. Fólkið er allt úr fjölbýlishúsunum við Starmýri en ein fjölskylda er aftur flutt inn. Austurfrétt hefur eftir Laufeyju Þórðardóttur, sviðsstjóra fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar að átta fjölskyldur úr húsunum tveimur hafi leitað aðstoðar hjá sveitarfélaginu, við að...
LandiðHlaupari slasaðist í utanvegahlaupi í Vestmannaeyjum – Björgunarsveitin kölluð til Hlaupari slasaðist í gær í utanvegahlaupinu The Puffin Run og var Björgunarfélag Vestmannaeyja kallað út til aðstoðar. Björgunarsveitin að störfumMynd: Landsbjörg Fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg að svo virðist sem hlauparinn hafi dottið á hlaupum og hlotið höfuðmeiðsl sem gerði það að verkum að sækja þurfti viðkomandi þar sem hann var. Eyjar.is sagði frá málinu. Einnig kom fram...
LandiðSjóður stofnaður til minningar um Sigurlás Þorleifsson – Stuðningur við Grunnskóla Vesetmannaeyja Sjóður til minningar um Sigurlás Þorleifsson, fyrrverandi skólastjóra Grunnskóla Vestmannaeyja, hefur verið stofnaður en í apríl voru liðin fimm ár frá andláti hans. Fram kemur í fréttavefnum Tígull að það er fjölskylda Sigurlásar sem stendur að stofnun sjóðsins en það er skólastjóri Grunnskóla Vestmannaeyja sem verður með vörslu og umsjá sjóðsins. Síðastliðin fimm ár hefur fjölskylda Sigurlásar gefið peningagjöf við...
LandiðBæjarstjórn Vestmannaeyja áhyggjufull vegna uppbyggingar á Skerjafirði Bæjarstjórn Vestmannaeyja lýsir yfir áhyggjum vegna uppbyggingar á Skerjafirði. Bæjarstjórn Vestmannaeyja tók fyrir umræðu um samgöngumál á fundi sínum í gær en þar var meðal annars rætt um fyrirætlanir ríkisins og Reykjavíkurborgar um að hefja undirbúning íbúðaruppbyggingar í Skerjafirði. Frá þessu er sagt á eyjafrettir.is. Eftirfarandi ályktun sendi bæjarstjórnin frá sér vegna málsins: Bæjarstjórn Vestmannaeyja lýsir yfir áhyggjum vegna fyrirhugaðrar...
LandiðFjarðabyggð selur öll tjaldsvæði sveitarfélagsins – Léttir á fjárhagslegum skuldbindingum Sveitarfélagið Fjarðabyggð hefur ákveðið að selja öll sjö tjaldsvæði sveitarfélagsins næsta haust. Í frétt Austurfréttar um málið segir að Fjarðabyggð eigi og reki tjaldstæði í sjö mismunandi bæjum en næsta haust verða þau sett í formlegt söluferli, samkvæmt formanni bæjarráðs, Stefáni Þór Eysteinssyni. Það var snemma í vetur sem ákvörðun var tekin á fundi bæjarráðs um að breyta rekstrarformi tjaldsvæðanna...
LandiðSeyðisfjörður einn fallegasti smábær Evrópu Enn og aftur hefur Seyðisfjörður ratað á lista yfir fallegustu smábæi Evrópu. Í þetta skipti er það þýski ferðavefurinn Reisereporter sem birti lista yfir 15 fallegustu smábæi Evrópu. Austurfrétt segir frá heiðrinum sem Seyðifirði er sýndur með þessu; í samantektinni er meðal annars talað um að þrátt fyrir fámenni sé að finna fjölbreytta þjónustu í mat, drykk og gistingu á...
LandiðMenntskælingar taka áskorunum til styrkar Píeta: „Áskorunin verður að vera ögrandi“ Nemendafélag Menntaskólans á Egilsstöðum, NME, stendur fyrir áskorunarviku þessa vikuna en þar ögra nemendur sjálfum sér og safna þannig áheitum til styrktar Píeta-samtökunum. „Áskorunin verður að vera ögrandi, eitthvað sem nemandanum finnst óþægilegt að gera. Það verður þó að vera innan skynsamlegra marka, hvorki hættulegt né dónalegt,“ útskýrir Tómas Viðar Úlfarsson, formaður Nemendafélags ME í samtali við Austurfrétt. Líkt og...
LandiðFlogið beint frá Egilsstöðum til Tenerife í júlí: „Vonumst eftir að Austfirðingar og fylli vélina“ Boðið verður upp á beint flug frá Egilsstöðum til Tenerife í júlí, á vegum ferðaskrifstofunnar Úrvals Útsýnar. Ef vel tekst til, er möguleiki á fleiri ferðum samkvæmt framkvæmdarstjóra ferðaskrifstofunnar. Fram kemur í frétt Austurfréttar að boðið verður upp á leiguflug frá Egilsstöðum 10. júlí og til baka tíu dögum síðar. Ferðin er svokölluð pakkaferð, með flugi og gistingu. „Við erum...
LandiðHvalhræ fannst í fjörunni við Guðlaugsvík í Hrútafirði – Líklegast fullvaxinn hnýðingur Jón Jónsson þjóðfræðingur á Ströndum tók eftir litlu hvalhræi í fjörunni við Guðlaugsvík í Hrútafirði er hann keyrði þar framhjá. Jón kíkti á hræið og tók myndir af því. Fannst honum líklegt að um fullvaxinn hnýðing væri að ræða, um það bil þrír metrar að lengd. Var hann þó ekki hundrað prósent viss með tegundina en um smáhval er að...
LandiðLeit að Gunnari Svan ber enn engan árangur – Hefur ekki sést síðan 24. febrúar Enn er lögreglan engu nær um örlög Gunnars Svans Björgvinssonar, þrátt fyrir mikla leit viðbragðsaðila á Eskifirði og nágrenni. Leit af Gunnari hófst formlega 8. mars en þá hafði hann verið týndur í yfir 10 daga. Fram kemur í frétt Austurfréttar að hvarf Gunnars hafi fallið í skuggann af hamförum síðustu vikna fyrir Austan en hans hefur verið saknað síðan...