MenningEinkasýning Sögu Sigurðar í Bismút Ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir opnar málverkasýningu í dag.
MenningMyndbrot af því sem koma skal Raftónlistarkonan ÍRiiS sendi nýverið frá sér myndbandsbrot af því sem koma skal á væntanlegri EP-plötu, en myndbandið var tekið upp á tónleikum í Reykjavík af spænsku listakonunni Söra G. Amo.
Menning„Við þekkjum öll svona mann“ Tónlistarmaðurinn Hlynur Ben sendi nýverið frá sér lagið Þú þekkir þennan mann. Lagið er það fyrsta sem við fáum að heyra af þriðju breiðskífu hans, II Úlfar, sem er væntanleg þann 30. ágúst.
MenningPusha T og JóiPé x Króli trylltu lýðinn Tónlistarhátíðin Secret Solstice hófst á föstudaginn og fór hún afar vel af stað. Dagskráin var ansi þétt og lék veðrið við gesti hátíðarinnar.
MenningMismunandi stefnum íslensku listasenunnar sullað saman Í annað sinn eftir landnám Íslands verður listahátíðin Gambri haldin. Viðburðurinn fer fram í einu þekktasta götulistargalleríi heims, Urban Spree – 1700 m² svæði í hjarta Berlínarborgar.
MenningÉg er „90’s baby“ Söngkonan Elísabet Ormslev sendi nýlega frá sér lagið Heart Beats sem er hennar fyrsta lag og eitt af fjórum nýjum lögum sem munu koma út á EP á næstu vikum. Lögin vann hún með tónlistarkonunni Zöe Ruth Erwin. Elísabet hefur látið að sér kveða í íslensku tónlistarlífi undanfarin misseri með sinni dýnamísku rödd í ýmsum verkefnum. Nú er komið að því að einbeita sér meira að sólóferlinum.
MenningSecret Solstice hefst í dag Tónlistarhátíðin Secret Solstice hefst í dag. Dagskráin í ár er afar þétt en fram koma Black Eyed Peas, Morcheeba, Ingi Bauer og Warmland, svo fátt sé nefnt.
MenningSumarsmellur frá glænýjum Íslenskum tónlistarmönnum Fyrir stuttu gáfu tónlistarmennirnir Baldur Dýrfjörð og Róbert út sitt fyrsta tónlistarmyndband við lagið Komdu út. Drengirnir hafa báðir stundað lagasmíðar frá grunnskólaaldri en leiddu saman hesta sína fyrir rúmlega ári og hafa verið að gera saman tónlist síðan. Myndbandið er tekið upp á Suðurlandi og í því er notast frumlega við pallbíl, hoppukastala og fleira sumarlegt. Leikstjórar myndbandsins eru...
MenningDansunnendur ættu ekki að missa af þessu Tónlistarmaðurinn YAMBI sendi nýverið frá sér lagið Start With Tonight með systrunum í hljómsveitinni Storm & Stone frá Ástralíu og nú er komið út myndband við lagið. Myndbandið er unnið af Birgi Ólafi og í því koma fram dansararnir Sandra Björk, Helga Sigrún og Bergdís Rún, sem er jafnframt höfundur dansins. Óhætt er að segja að dansinn komin vel út...
MenningHljóðrituðu alla plötuna upp á nýtt Nú á dögunum kom út önnur breiðskífa svartmálms-hljómsveitarinnar Misþyrmingar, Algleymi. Platan hefur fengið einróma lof gagnrýnenda og lenti meðal annars í 11. sæti World Albums-lista Billboard. Þykir Algleymi vera stórt stökk upp frá síðustu plötu hljómsveitarinnar, Söngvum elds og óreiðu (2015), en sveitin, sem hefur verið starfsrækt frá 2014, hefur notið velgengni frá útgáfu hennar.
MenningRokkveisla á Hard Rock Foreign Monkeys, KUL og Blóðmör halda sameiginlega tónleika á Hard Rock í kvöld, laugardagskvöldið 15. júní klukkan 22.
Menning„Þetta er frekar persónuleg plata“ Hljómsveitin Vök sendi frá sér fyrr á þessu ári plötuna In the Dark en þetta er önnur plata hennar. Platan er nokkuð frábrugðin fyrri plötu sveitarinnar, Figure, sem er meira „mellow electropop“. Albumm hitti á Margréti Rán, söngkonu Vakar, og byrjaði að spyrja hana hvernig það kom til að gera seinni plötuna meira dúndrandi poppsmell.