Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ég er „90’s baby“

Söng­konan Elísabet Ormslev sendi nýlega frá sér lagið Heart Beats sem er hennar fyrsta lag og eitt af fjórum nýjum lögum sem munu koma út á EP á næstu vikum. Lögin vann hún með tón­list­ar­kon­unni Zöe Ruth Erwin. Elísabet hefur látið að sér kveða í íslensku tón­list­ar­lífi und­an­farin miss­eri með sinni dýnamísku rödd í ýmsum verk­efnum. Nú er komið að því að ein­beita sér meira að sól­ó­ferl­inum.

Ég er „90’s baby“

 „Lagið Heart Beats og EP-platan hefur verið í vinnslu í um það bil eitt og hálft ár og verið mjög skemmti­legt og „challenging“ ferli,“ segir Elísabet. Lögin eru í 90’s- og RnB-stíl með poppí­vafi og Heart Beats án efa popp­að­asta lagið á plöt­unni. Spurð hvers konar tón­list veiti henni inn­blástur seg­ist hún vera algjör alæta á tón­list. „Mest í upp­á­haldi er 70’s-rokk og RnB en 90’s-tíma­bilið hafði mikil áhrif á mig. Ég er „90’s baby“ og ólst upp við að horfa á PoppTíví og hlusta á allar dív­urnar frá þeim tíma,“ segir hún og bætir við að hún vilji meina að tón­list hennar sé end­ur­speglun af þessu öllu saman. „Ég elska að vinna með dýpt og stóran hljóð­heim, bland­aðan af live- og midi-hljóð­færum.“

The Voice stökkpallur

Elísabet byrj­aði á ung­lings­ár­unum að grúska í tón­list og koma fram en hún ólst upp í miklu tón­list­ar­um­hverfi. „Ég hef alltaf samið tón­list í laumi en fór ekki að þora að koma henni á fram­færi fyrr en síð­ast­liðið eitt og hálfa árið. Hef heldur betur sigr­ast á þeirri hræðslu núna.“

Árið 2015 tók hún þátt í The Voice þar sem hún sló í gegn. „Það var hrika­lega skemmti­legt ferli og svo sann­ar­lega stökk­pallur. Þá fór bolt­inn svo­lítið að rúlla meira og í kjöl­farið tók annað ævin­týri við þegar ég tók þátt í Söngvakeppni Sjón­varps­ins árið 2016. Eftir það fór að verða meira að gera en ég var samt alltaf á brems­unni af því að mig lang­aði að semja og gefa út mína eigin tón­list en var hrein­lega hvorki með sjálfs­traustið né drif­kraft­inn sem ég hef í dag,“ útskýrir hún, en segir svo að hún trúi því ein­læg­lega að allt svona hafi sinn tíma og maður finni þegar maður er til­bú­inn.

Þakkar fyrir meðbyrinn

Elísabet hefur unnið náið með tón­list­ar­kon­unni Zöe Ruth Erwin en þær kynnt­ust árið 2017 í gegnum mann­inn hennar, Arnþór Örlygs­son eða Adda 800, eins og hann er kall­aður. Á þeim tíma bjó Zöe í Los Angeles og fór Elísabet þangað að heim­sækja hana. „Við smullum saman eins og harð­fiskur og smjör. Þar fædd­ist fyrsta lagið okkar sem er einmitt eitt af lög­unum á plöt­unni. Síðan þá höfum við haldið áfram að vinna saman en við erum full­kom­inn kok­teill í stúd­íó­inu. Við hugsum eins, og þegar við fáum hug­myndir þurfum oft­ast ekki að segja hvað við ætlum að gera fyr­ir­fram því að hin veit nákvæm­lega hvað er á leið­inni.“

Spurð hvenær von er á plöt­unni og hvað sé fram undan segir hún að útgáfa plöt­unnar sé áætluð í lok sum­ars eða byrjun hausts. „Fram undan er mikil vinna og und­ir­bún­ingur en ég stefni á að sleppa öðrum sín­gúl af plöt­unni í milli­tíð­inni, seinna í sumar. Fyrir utan það er ég bókuð í mörg mjög skemmti­leg verk­efni í sumar og aðrir spenn­andi hlutir í vinnslu. Að lokum vil ég segja takk fyrir allan með­byr­inn og peppið. Hann er algjör­lega ómet­an­legur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar