MinningÞóra í Bakkakoti er látin Þóra Elísabet Bernódusdóttir, sem var áður húsfreyja á fósturheimilinu Bakkakoti, er látin. Hún lést þann 18. apríl síðastliðinn samkvæmt dánartilkynningu sem birtist í Morgunblaðinu. Þóra rak heimilið á sínum tíma ásamt Jóni Ársælssyni, sem lést árið 2003. Nafn hennar var nýlega í umræðunni þegar fimm menn stigu fram í þættinum Kveik í febrúar og sögðu frá því að þeir hefðu...
MinningValdimar Örnólfsson er fallinn frá Valdimar Örnólfsson, íþróttafrömuður og skíðakappi, lést 20. apríl, 94 ára að aldri. Vísir greinir frá andlátinu. Foreldrar hans voru Örnólfur Valdimarsson kaupmaður og útgerðarmaður og Ragnildur Kristbjörg Þorvarðardóttir kennari og húsmóðir. Hann var einn áhrifamesti íþróttafrömuður landsins og varð landsþekktur fyrir leikfimiþætti sína í Ríkisútvarpinu á árunum 1957–1982. Valdimar átti stóran þátt í uppbyggingu skíðaíþróttar á Íslandi og stofnaði, ásamt...
MinningBirgir Valur Ágústsson er fallinn frá Birgir Valur Ágústsson, verkfræðingur á Akureyri, er látinn 86 ára að aldri. Greint er frá andláti hans á Akureyri.net Hann fæddist á Þórshöfn 10. október 1939 og lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri 14. apríl. Eiginkona hans er Ingunn Þóra Baldvins og eignuðust þau fimm börn. Foreldrar Birgis voru Helga Jóhanna Ágústsdóttir og Ágúst Georg Steinsson, og var hann þriðji...
MinningGunnsteinn Rúnar Gíslason er látinn Gunnsteinn Rúnar Gíslason, sem um áratuga skeið gegndi lykilhlutverki í samfélaginu í Árneshreppi á Ströndum, er látinn, 93 ára að aldri. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi þann 13. apríl síðastliðinn. Mbl.is sagði frá andlátinu. Gunnsteinn fæddist 4. desember 1932 í Steinstúni í Norðurfirði og var sonur hjónanna Gísla Guðlaugssonar og Gíslínu Vilborgar Valgeirsdóttur. Hann átti þrjá albræður, þá...
MinningSvavar Sigmundsson er fallinn frá Svavar Sigmundsson, fyrrverandi dósent og forstöðumaður Örnefnastofnunar Íslands, lést 11. apríl, 86 ára að aldri. Morgunblaðið greinir frá andláti hans. Hann fæddist 7. september 1939 í Túni í Hraungerðishreppi, sonur Sigmundar Ámundasonar og Guðrúnar Guðmundsdóttur. Svavar lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1958 og cand.mag.-prófi í íslensku frá Háskóla Íslands 1966. Hann starfaði sem lektor, sendikennari í Helsinki og Kaupmannahöfn,...
MinningElva Dagmar Simundsson er fallin frá Elva Dagmar Simundsson bókasafnsfræðingur lést 4. apríl síðastliðinn. Morgunblaðið greindi frá andláti hennar Hún fæddist 28. janúar 1950 á spítalanum í Árborg í Geysisbyggð í Manitoba í Kanada og ólst upp í sveitinni þar sem hún mótaðist af sterkum tengslum við íslenskan menningararf. Foreldrar hennar voru Gunnar og Margrét Sæmundsson, bændur á Breiðabliki. Elva lauk BA-prófi í ensku og sögu...
MinningJón Hólmgeirsson er látinn Jón Hólmgeirsson er látinn en hann var á 91 aldursári. Jón Hólmgeirsson fæddist 15. apríl 1935 í Stafni í Reykjadal og lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 3. apríl síðastliðinn, samkvæmt Akureyri.net. Foreldrar hans voru Kristín Þorvaldsdóttir húsfreyja (1902–1985) og Hólmgeir Sigurgeirsson bóndi á Völlum í Reykjadal (1909–1984). Jón ólst upp á Völlum í Reykjadal þar sem faðir hans stundaði búskap....
MinningBjörgvin Halldórsson er fallinn frá Björgvin Helgi Halldórsson, jafnan kallaður Bó Halldórs, er látinn 74 ára að aldri eftir að hafa orðið bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði. Hann fæddist þar 16. apríl 1951 og bjó í bænum alla sína tíð. Morgunblaðið greinir frá þessu. Björgvin hóf tónlistarferil sinn með hljómsveitinni Bendix en steig fljótt fram sem söngvari Flowers. Síðar söng hann með hljómsveitum á...
MinningSteinar Jóhann Lúðvíksson er látinn Steinar Jóhann Lúðvíksson, rithöfundur og blaðamaður, er látinn, 84 ára að aldri. Hann lést á lungnadeild Landspítalans 2. apríl síðastliðinn. Frá andlátinu greindi Mbl.is. Steinar fæddist 30. september árið 1941 í Vestur-Húnavatnssýslu en átti mestan hluta ævi sinnar heima í Garðabæ. Foreldrar hans voru Lúðvík Jóhannesson og Ingibjörg Benediktsdóttir. Hann útskrifaðist frá Kennaraskóla Íslands árið 1965 og hóf þá störf...
MinningKjartan Guðmundsson er fallinn frá Kjartan Guðmundsson er látinn, 46 ára að aldri, eftir að hafa legið þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans. RÚV greinir frá þessu. Hann slasaðist alvarlega í bílslysi í Suður-Afríku í desember og hafði verið á gjörgæslu nánast samfellt síðan slysið átti sér stað. Í febrúar var hann fluttur til Íslands til frekari meðferðar. Slysið var einnig mannskætt, en móðir Kjartans og...
MinningElías Héðinsson er fallinn frá Elías Jón Héðinsson, doktor í félags- og fjölmiðlafræði og fyrrverandi rannsóknarstjóri Árvakurs, er látinn. Morgunblaðið greinir frá andláti hans. Elías fæddist í Reykjavík 3. apríl 1951 og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og nam félagsfræði við Háskóla Íslands. Framhaldsnám stundaði hann við Háskólann í Lundi í Svíþjóð þar sem hann lauk doktorsprófi. Hann starfaði lengst...
MinningPáll Halldór Jónsson er látinn Páll Halldór Jónsson lést 23. mars síðastliðinn. Hann fæddist 28. maí 1939 í Höfða í Glerárþorpi á Akureyri. Akureyri.net sagði frá andlátinu. Foreldrar hans voru Jón Andrésson (f. 1899, d. 1982) og Sigríður Róbertsdóttir (f. 1906, d. 1982). Eldri bróðir hans er Herbert Bárður Jónsson, fæddur 13. desember 1936. Páll kvæntist Kristínu Sveinsdóttur, fæddri 6. maí 1947 á Vopnafirði, þann...