Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Jón Hólmgeirsson er látinn

Jón Hólmgeirsson er látinn

Jón Hólm­geirs­son er lát­inn en hann var á 91 ald­ursári.

Jón Hólm­geirs­son fædd­ist 15. apríl 1935 í Stafni í Reykja­dal og lést á Sjúkra­hús­inu á Akureyri 3. apríl síð­ast­lið­inn, sam­kvæmt Akureyri.net.

For­eldrar hans voru Kristín Þor­valds­dóttir hús­freyja (1902–1985) og Hólmgeir Sig­ur­geirs­son bóndi á Völlum í Reykja­dal (1909–1984).

Jón ólst upp á Völlum í Reykja­dal þar sem faðir hans stund­aði búskap. Hann átti þar æsku sem ein­kennd­ist af frelsi og úti­veru, en fjöl­skylda hans á rætur að rekja til Stafns­hverfis þar sem búskapur hefur verið stund­aður í ætt­inni um aldir. Hesta­mennska var stór hluti af upp­vext­inum og hélt sá áhugi áfram eftir að hann flutti til Akur­eyrar, þar sem fjöl­skyldan hafði aðstöðu fyrir hesta.

Systkini Jóns eru Hólm­fríður, fædd 1932, og Sig­ur­geir (1939–2024).

Hann stund­aði nám í barna­skóla í Stafni og síðar á Laugum í Reykja­dal. Árið 1957 flutti hann til Akur­eyrar, hóf nám í Iðn­skól­anum og lauk sveins­prófi í hús­gagna­smíði árið 1962. Samhliða námi starf­aði hann á Hús­gagna­verk­stæði Ólafs Ágústs­sonar. Árið 1963 stofn­aði hann eigið smíða­verk­stæði, Fjarkann, en síðar færði hann starf­sem­ina heim í bíl­skúr að Álfa­byggð.

Jón starf­aði einnig við kennslu, meðal ann­ars í Odd­eyr­ar­skóla og Gler­ár­skóla. Kennslan átti vel við hann og því hóf hann kenn­ara­nám 46 ára að aldri og lauk kennslu­rétt­indum frá Kenn­ara­skól­anum árið 1982. Hann kenndi síðan við Gagn­fræða­skóla og síðar Verk­mennta­skól­ann á Akureyri fram til starfs­loka, 67 ára gam­all.

Á Akureyri kynnt­ist Jón eig­in­konu sinni, Sigrúnu Kristínu Krist­jáns­dóttur (1937–1988), og gengu þau í hjóna­band 22. des­em­ber 1958. Þau eign­uð­ust þrjú börn: Kristján Ingvar, Þor­björgu Kristínu og Hólmgeir.

Fjöl­skyldan bjó fyrst í Strand­götu 35 en flutti árið 1966 í Álfa­byggð í hús sem Jón byggði sjálfur og þar bjó hann alla tíð síðan.

Jón hafði mik­inn áhuga á tré­út­skurði og kenndi þá list í ára­tugi, bæði í skólum og í félags­starfi eldri borg­ara. Hann var einnig virkur í kór­starfi, meðal ann­ars með Karlakór Akur­eyrar í yfir 25 ár og síðar með kirkjukórum í Eyja­firði. Á efri árum tók hann virkan þátt í starfi Félags eldri borg­ara á Akureyri.

Jón hélt góðri heilsu og and­legri skerpu fram á síð­asta dag að því er fram kemur í minn­ing­ar­grein á Akureyri.net.

Eft­ir­lif­andi sam­býl­is­kona hans er Ada Elísabet Benja­míns­dóttir, fædd 1936.

Að ósk hins látna fer útför hans fram í kyrr­þey.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá