Loftslagsbreytingar og heilbrigði
Höfundur: Geir Gunnlaugsson, fyrrverandi landlæknir. Í skýrslu Global State of Air, sem var gefin út í lok árs 2020, var vakin athygli á því hversu neikvæð áhrif loftmengun hefur á heilsu fólks. Sem áhættuþáttur fyrir dauðsföll í heiminum var hún í fjórða sæti, á eftir háum blóðþrýstingi, tóbaksreykingum og áhættuþáttum tengdum næringu. Samtals tæplega 7 milljónir dauðsfalla árlega (af um...