Ekki nóg að fjölmiðlar séu á vaktinni
Þessa dagana keppast fjölmiðlar við að rifja upp hrunið sem var fyrir tíu árum. Þeim rennur blóðið til skyldunnar. Fjölmiðlar sátu nefnilega undir ámæli eftir að hrunið skall á fyrir að hafa ekki staðið vaktina nógu vel í aðdraganda þess, að hafa verið meðvirkir með útrásarvíkingunum og slegnir sömu gróðablindunni og aðrir í þjóðfélaginu. Þeir voru húðskammaðir fyrir að hafa...