SlúðurÁslaug og Mogginn Vangaveltur eru uppi um það hver muni fylla það skarð sem Davíð heitinn Oddsson skyldi eftir sig á Morgunblaðinu. Rétthentu húskarlarnir, Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson, munu vera reiðubúnir til að taka við af leiðtoganum. Vandinn er sá að efasemdir eru uppi um getu þeirra og þroska til að takast á hendur verkefnið og sinna því erindi sem Guðbjörg...
SlúðurÓvænt þögn Heimis Í september í fyrra tilkynnti Helga Þórðardóttir, oddviti Flokks fólksins í Reykjavík, að hún myndi ekki gefa kost á sér aftur til setu í borgarstjórn en eins og staðan er í dag er hún einn borgarfulltrúi flokksins. Síðan þá hefur ekkert spurst út hver gæti verið næsti oddviti flokksins þrátt fyrir að aðeins séu sléttir tveir mánuðir þar til kosið...
SlúðurBullandi tap hjá borgarfulltrúa Sjálfstæðismenn í Reykjavíkurborg hafa lengi öskrað sig hása að fjárhagur borgarinnar sé í vaskinum og aðeins þeir geti lagað málið. Einn af þeim Sjálfstæðismönnum er borgarfulltrúinn Björn Gíslason en hann er einnig formaður íþróttafélagsins Fylkis og hefur verið lengi. Í grein sem DV birti í gær er greint frá því að uppsafnað tap félagsins á undanförnum fimm árum sé 124...
SlúðurSætasta stelpan á ballinu Fyrir helgi var tilkynnt um að leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson yrði í þriðja sæti hjá Viðreisn í komandi borgarstjórnarkosningum sem haldnar verða í vor. Óhætt er að segja að Þorvaldur hafi verið sætasta stelpan á ballinu en slúðrað var um það í vetur að bæði Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn hafi átt í viðræðum við leikarann um að taka sæti á listum...
SlúðurKjartan sparkar í Hildi Ef fólk efaðist um ósætti innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins þá sló Kjartan Magnússon borgarfulltrúi heldur betur á þann efa í grein í Morgunblaðinu í dag en þar ákvað hann að sparka í oddvita sinn áður en hann missir sæti sitt í borgarstjórn. Segir hann berum orðum að þeir borgarfulltrúar sem hafi sett sig mest upp á móti Borgarlínunni hafi annaðhvort fengið...
SlúðurStrax ósætti vegna Brynjars Það tók Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins, innan við sólarhring að ergja suma samflokksfélaga sína eftir að tilkynnt hafði verið um að Brynjar yrði í 3. sæti hjá flokknum í komandi borgarstjórnarkosningum. Þingmaðurinn fyrrverandi lýsti því stoltur í viðtali við Morgunblaðið að lítill munur væri á Sjálfstæðisflokknum, Miðflokknum og Framsóknarflokknum í borgarstjórnarmálum. Þó að það kunni að einhverju leyti að...
SlúðurBrynjar ungi Eitt af markmiðum við uppstillingu á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík var að yngja upp. Mörtu Guðjónsdóttur (66 ára) var því hent á bálið. Það skondna er að inn kemur í hennar stað sjálfur Brynjar Níelsson (65 ára). Brynjar á að baki langan og átakalítinn feril sem þingmaður og þykir vera fremur hvílufús. Vandséð er að sjá að tilkoma hans verði...
SlúðurBrandarasæti Friðjóns Sjálfstæðisflokkurinn er í nauðvörn í Reykjavík. Eftir erfiða fæðingu er loksins að fæðast listi undir stjórn hinnar umdeildu Hildar Björnsdóttur. Stóra fréttin er sú að borgarfulltrúarnir Björn Gíslason og Friðjón Friðjónsson eru komnir út í ystu myrkur og eru settir í 10. og 11. sæti listans ef marka má netmiðilinn Vísi. Friðjón tekur örlögum sínum af mikilli karlmennsku og segist...
SlúðurAukinn þrýstingur á Hildi Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, í Reykjavík er heldur betur í furðulegri stöðu. Hún var sjálfkjörin í oddvitasætið eftir að kom í ljós að Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður og fyrrum ráðherra, þorði ekki í oddvitaslag en fær litlu ráðið hverjir munu raðast á listann með henni í komandi sveitarstjórnarkosningum. Í þetta sinn mun nefnd sjá um að raða í þau sæti...
SlúðurVandræðaleg Herdís Hver sérfræðingurinn á fætur öðrum í heilbrigðismálum hefur komið fram í fréttum á Vísi síðustu dagana og mælt á móti heilskimunum sem fyrirtækið Intuens auglýsir stíft fyrir um 300 þúsund krónur. Umfjöllunin hófst með viðtali við fulltrúa Intuens, sem sagði frá því að einkennalaus maður hefði greinst með fjórða stigs krabbamein og einungis lifað af vegna heilskimunar. Meðal þeirra sem...
SlúðurÞjófstart Bjarna Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason reitti marga launaháa og talsmenn þeirra til reiði fyrr í dag þegar hann skrifaði á samfélagsmiðlum að það væri kannski ekki skynsamlegt að launahæsta fólk landsins sé mikið að tjá sig um laun þeirra efnaminnstu. Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi þingmaður Viðreisnar og fyrrum framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var allt annað en sáttur og lét Egil heyra það. Konráð Guðjónsson,...
SlúðurÖrvænting Moggamanna Hermt er að örvænting ríki í höfuðstöðvum Morgunblaðsins í Hádegismóum þar sem viðvarandi taprekstur er sligandi. Sagan segir að stærstu hluthafar Árvakurs með Guðbjörgu Matthíasdóttur auðkonu í fararbroddi hafi fyrirskipað Haraldi Johannessen, ritstjóra og framkvæmdastjóra, og Sigurbirni Magnússyni stjórnarformanni að girða sig í brók og koma rekstrinum í lag. Undirliggjandi er ekki verði meiri fjáraustur í miðilinn sem er litaður...