SlúðurKolla slær í gegn Bókmenntarýnirinn og blaðakonan Kolbrún Bergþórsdóttir var rekin frá Mogganum eftir að hafa ítrekað troðið öfgahægrinu um tær með hárbeittum pistlum sínum. En Kolla var ekki ein í heiminum. Strax eftir brottreksturinn bárust henni atvinnutilboð frá fólki sem ekki vildi að þaggað yrði niður í henni. Meðal þeirra voru stjórnendur DV. Kolbrún tók boði þeirra og upprisa hennar varð um páskana...
SlúðurFeluleikur Hildar Hildur Björnsdóttir, leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mátti súpa enn eina fjöruna þegar Ólafur Kr. Guðmundsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, birti aðsenda grein í Morgunblaðinu á þriðjudag. Þar sakaði hann leiðtoga sinn um að hafa logið til um hagsmuni sína varðandi lóðir undir bensínstöðvar í Reykjavík. Ólafur rekur viðskiptafléttu sem á að undirstrika að Jón Skaftason, maki Hildar og samherji Jóns Ásgeirs Jóhannessonar...
SlúðurBjörg sem borgarstjóri Viðreisn er vægast sagt í góðum málum ef marka má skoðanakannanir sem gerðar hafa verið fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Mun flokkurinn sennilega fá þrjá borgarfulltrúa og jafnvel fjóra ef allt gengur eftir. Sá árangur hefur svo sannarlega ekki farið fram hjá Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og félögum hennar. Oddvitinn, sem er óvinsæll hjá mörgum Sjálfstæðismönnum, er sagður ólmur vilja...
SlúðurGleði Guðrúnar Stuðningsmenn Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, eru sagðir vera í skýjunum með þá ákvörðun Solaris að kæra Guðrúnu fyrir meiðyrði vegna ummæla hennar um samtökin og meintar mútugreiðslur. Guðrún hefur verið nokkuð stefnulaus síðan hún tók við embætti formanns og ekki náð að finna taktinn með landsmönnum eða kjósendum Sjálfstæðisflokksins. Kæran hefur gefið henni tækifæri til að mála sig upp sem...
SlúðurJens iðar í skinni Það sverfur að Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Sjálfstæðisflokksins, í þeim fylgisraunum sem blasa við. Guðrún hafði yfir sér afar góða áru góðmennsku og hlýju og þótti framan af vera yfirveguð í framkomu og tilsvörum. Draumurinn um aukið fylgi með nýjum formanni brást og liðhlaupar flykkjast yfir í Viðreisn og Miðflokkinn. Hver könnunin af annarri leiðir í ljós hrun Sjálfstæðisflokksins. DV birti...
SlúðurSkilningsleysi Daða Sumir Viðreisnarmenn eru farnir að hafa áhyggjur af stöðu flokksins í ljósi viðbragða sem ríkisstjórnin hefur mætt eftir að farið var að vinna í að afnema áminningarskyldu ríkisstarfsmanna. Ljóst er að þetta mun hafa áhrif á tugþúsundir einstaklinga og munu þeir einstaklingar upplifa að ríkisstjórnin sé að hrifsa af þeim réttindi. Það liggur einnig fyrir að þetta mun hafa gríðarleg...
Slúður„Tuskuhausar“ Helga Hreyfingin Ísland - þvert á flokka hélt í gær fund á Ölveri en samkvæmt tilkynningu átti fundurinn að snúast um ástand landsmála. Einn af þeim sem héldu ræðu á fundinum var Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrum vararíkissaksóknari. Í tæplega klukkutíma ræðu sinni ræddi lögmaðurinn ESB og útlendingamál og er óhætt að segja að þeir um það bil 80 gestir sem hlustuðu...
SlúðurFrost í Framsókn Gleði og ánægja í þingflokki Framsóknarflokksins hefur sjaldan verið minni að sögn manna sem þekkja vel til slíkra mála. Stutt er síðan Ingibjörg Isaksen, þingmaður flokksins, bauð sig fram til formanns flokksins en þar tapaði hún fyrir Lilju Alfreðsdóttur, sem þá var varaformaður, en Lilja náði ekki kjöri í síðustu Alþingiskosningum. Ingibjörg var í kjölfarið sett af sem þingflokksformaður, en...
SlúðurÁhrifagirni Sigmundar Það ráku margir upp stór augu um helgina þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sakaði um ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur um að vera „crybully“-ríkisstjórn en í stuttu máli er crybully einfaldlega manneskja sem grípur til eineltis og þykist vera fórnarlambið. Kaldhæðnin virðist hafa farið fram hjá forsætisráðherranum fyrrverandi. Það sem kemur þó mest á óvart er að Sigmundur grípi til enskuslangurs...
SlúðurJón Ásgeir á sjóinn Skipverjar á nótaskipinu Aðalsteini Jónssyni SU ráku upp stór augu á dögunum þegar athafnahjónin Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir birtust um borð í skipi þeirra skömmu fyrir brottför til loðnuveiða. Hjónin héldu með í veiðiferðina. Jón Ásgeir tók þátt í störfunum um borð og dró ekki af sér við veiðarnar. Óljóst er með ástæður þess að þau fóru í...
SlúðurEkki gleyma nafninu Það verður að segjast að Samfylkingin í Garðabæ hefur heldur betur komið sér í góða stöðu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar en flokkurinn er þessa stundina ekki með neinn bæjarfulltrúa í bæjarstjórn. Það mun að öllum líkindum breytast eftir kosið verður í vor en Kjartan Atli Kjartansson, rithöfundur og fjölmiðlamaður, verður oddviti flokksins í kosningunum. Fáir, ef einhverjir, hafa jafn gott tengslanet...
SlúðurHjöðnun Hildar Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík var í dauðafæri með að ná sterkri stöðu í Reykjavík eftir kosningar. En þegar kom að uppstillingu á lista flokksins þar sem Hildi Björnsdóttur var falið að halda áfram sem forystumaður fór allt í bál og brand. Í stað þess að nota prófkjör til að raða á lista hafði verið ákveðið að beita handafli og henda út...