Hreyfingin Ísland - þvert á flokka hélt í gær fund á Ölveri en samkvæmt tilkynningu átti fundurinn að snúast um ástand landsmála.
Einn af þeim sem héldu ræðu á fundinum var Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrum vararíkissaksóknari. Í tæplega klukkutíma ræðu sinni ræddi lögmaðurinn ESB og útlendingamál og er óhætt að segja að þeir um það bil 80 gestir sem hlustuðu á hann hafi skemmt sér konunglega.
Meðal þess sem Helgi sagði var að sláturhús Íslands væru búin að ráða „tuskuhaus“ í vinnu til að slátra dýrum og að sá væri „sönglandi einhverja múslímasöngva.“
Þá vildi vararíkissaksóknari fyrrverandi meina að ef Ísland breytti ekki um stefnu í útlendingamálum yrði þjóðarframleiðsla hvers íbúa ein geit og fjórar döðlur ...































Athugasemdir