Sjálfstæðismenn í Reykjavíkurborg hafa lengi öskrað sig hása að fjárhagur borgarinnar sé í vaskinum og aðeins þeir geti lagað málið.
Einn af þeim Sjálfstæðismönnum er borgarfulltrúinn Björn Gíslason en hann er einnig formaður íþróttafélagsins Fylkis og hefur verið lengi. Í grein sem DV birti í gær er greint frá því að uppsafnað tap félagsins á undanförnum fimm árum sé 124 milljónir króna. Það hlýtur að teljast nokkur kaldhæðni að setja út á rekstur annarra þegar staðan er þessi hjá félagi sem Björn fer fyrir.
Björn var reyndar settur í 10. sætið fyrir komandi borgarstjórnarkosningar þannig að borgarbúum hefur sennilega verið bjargað frá því að hann komi nálægt rekstri borgarinnar ...































Athugasemdir