SlúðurBrynhildur 10 kílóum léttari Ein öflugasta útvistarkona landsins er Brynhildur Ólafsdóttir. Hún er nýkomin úr leiðangri á gönguskíðum yfir Grænlandsjökul þveran ásamt Vilborgu Örnu Gissurardóttur pólfara og fleira afreksfólki. Leiðangurinn tók hátt mánuð og reyndi mikið á þátttakendur. Seinasta daginn gekk hópurinn 65 kílómetra til að ná niður af jöklinum fyrir óveður. Sem dæmi um álagið þá upplýsti Róbert Marshall, eiginmaður Brynhildar, á Hringbraut...
SlúðurMogginn nötrar vegna Dags Háspenna ríkir nú um að í borgarstjórnmálunum. Stóra spurningin er hvað Einar Þorsteinsson, leiðtogi Framsóknarmanna, hyggist gera vegna óumflýjanlegs meirihlutasamstarfs. Nokkuð augljóst er að Sjálfstæðisflokkurinn kemst ekki í meirihluta vegna þess að Samfylking, Sósíalistar, VG og Viðreisn hafna flokknum. Morgunblaðið nötrar og hefur farið hamförum vegna þessa og reynir allt til að koma Degi B. Eggertssyni borgarstjóra út í buskann....
SlúðurTár Sigmars þornuð Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum. Fræg uppákoma var þegar Sölvi Tryggvason sjónvarpsmaður grét í seinasta hlaðvarpsþætti sínum eftir að hann var borinn þeim sökum að hafa beitt ástkonu sína ofbeldi. Sigmar vorkenndi Sölva og grét með tilbrigðum á samfélagsmiðlum, Sölva til samlætis. Sigmar tjáði sig nýverið um sambærilegt mál Ingólfs Veðurguðs sem krefst...
SlúðurJón lemur á flóttafólki Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra þykir vera óhræddur við að taka óvinsælar ákvarðanir og þá ekkii síst ef þær snúa að útlendingum sem dvelja á Íslandi án tilskilinna leyfa. Það þóttio vera sterkt útspil hjá Bjarna Benediktssyni formanni að gera Jón að ráðherra, þótt tímabundið sé, og láta hann rótast af hörku í útlendingum sem fæstir eiga í nein skjól að venda....
SlúðurÓlöf er horfin Það var mikið um dýrðir þegar Vísir.is kynnti viðskiptavef sinn, Innherja, til leiks. Hörður Ægisson, fráfarandi viðskiptaritstjóri Fréttablaðsins, og Ólöf Skaftadóttir, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, fengu það hlutverk að leiða hinn nýja vef auk þess að vera með eignarhlut. Innherji hefur ekki náð að skáka samkeppnismiðlum á borð við Kjarnann og Viðskiptablaðið og flugið er minna en væntingar stóðu til. Nú...
SlúðurGísli og brennivínið Gísli Einarsson, ritstjóri Landans, var á miklum spretti á dögunum þar sem hann kynnti íslenskt viskí fyrir áhorfendum sínum í sjónvarpi allra landsmanna. Ritstjórinn lét ekki nægja að sýna vöruna á besta sjónvarpstíma heldur dreypti á áfenginu með tilheyrandi látbragði og „kjamsaði svo á drykknum þannig að áfengislöngunin blossaði upp í þurrustu ölkum,“ eins og sá harðskeytti blaðamaður Jakob Bjarnar...
SlúðurBaneitrað samband Hildar Ástandið innan hins nýja borgarstjórnarflokks Sjálfstæðísflokksins er með nokkrum ólíkindum og er í líkt við það sem gerðist þegar villikettirnir riðu húsum hjá Vinstri grænum áður en Katrín Jakobsdóttir kom böndum á flokkinn. Í kosningunum kom þetta eitraða samband skýrt fram í útstrikunum. Nafn Hildar Björnsdóttur, leiðtoga flokksins var langoftast strikað út eða 290 sinnum. Þá var strikað 123 sinnum...
SlúðurEinar áttavilltur Einar Þorsteinsson, leiðtogi Framsóknar, stendur á krossgötum hvað meirihlutaviðræður varðar. Talið er að hann eigi samleið með Sjálfstæðisflokknum og vísað til þess að hann hafi íhugað að leiða lista Sjálfstæðismanna í Kópavogi áður en hann lét heillast af Framsókn. Vandinn Einars er sá að borgarstjórnarflokkur Hildar Björnsdóttur er ósamstæður og þekkt að hver höndin er upp á móti annarri. Hildur...
SlúðurLíf án Dags Fullkomin óvissa ríkir um meirihlutamyndun í Reykjavík. Líf Magneudóttir, foringi VG, stal sendunni í gær þegar hún tilkynnti að flokkur hennar hefði ekki áhuga á að ræða nýjan meirihluta á grunni þess gamla. Með þessu sneri hún baki við Degi B. Eggertssyni borgarstóra og öðrum þeim sem vildu blása nýju lífi í meirihlutann með því að taka fleiri flokka um...
SlúðurPáll flytur til Eyja Háspenna var í Vestmannaeyjum um helgina þar sem Páll Magnússon, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skoraði á hólm sína gömlu félaga í Sjálfstæðisflokknum og bauð sig fram fyriir Heimaey sem Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri leiddi til sigurs fyrir fjórum árum þegar Sjálfstæðisflokkurinn klofnaði. Páll var fyrsti þingmaður Sjálfstæðisflokksins og grunaður um að vera stuðningsmaður óvinaframboðsins. Hann þrætti fyrir það en var eigi að...
SlúðurSkapstyggur Bjarni á endastöð Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er í afleitri stöðu eftir að úrslit urðu ljós í kosningunum. Flokkurinn tapaði þremur prósentustigum á landsvísu og fékk háðuglega útreið í Reykjavík. Flokkurinn fékk 24,5 prósent atkvæða sem er sögulegur botn. Aftur á móti fer Framsóknarflokkurinn með himinskautum í fylgi sínu og hefur aldrei verið stærri í Reykjavík og víðar. Sigurður Ingi Jóhannsson formaður má...
SlúðurDagur sýnir Davíð fingurinn Dagur B. Eggertsson borgarstjóri virðist vera á góðu róli í kosningunum og svo er að sjá sem meirihluti hans haldi. Það hefur vakið athygli hve vinalaus Hildur Björnsdóttir, leiðtogi sjálfstæðismanna, hefur verið. Hildur þykir vera frambærileg í ýmsum skilningi og býr við allsnægtir, eins og sjá mátti í þætti Sindra Sindrasonar, Heimsókn, á Stöð 2 á sínum tíma. Undir venjulegum...