SlúðurKatrín í bölvuðu klandri Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er í vanda vegna bankabrallsins með hlutinn í Íslandsbanka sem rann til útvalinna fjárfesta. Allt er á suðupunkti innan VG vegna málsins, enda hefur flokkurinn hingað til verið talinn vilja vinna gegn spillingu en ekki vera hýsill hennar. Ungliðar VG eru ævareiðir vegna þess skjóls sem Katrín hefur veitt Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra sem ber stærsta pólitíska ábyrgð...
SlúðurGunnar Smári ekki til varnar Gunnar Smári Egilsson, foringi Sósíalistaflokksins, er maðurinn að baki byltingunni í Eflingu þegar Sólveig Anna Jónsdóttir komst til valda og hrissti duglega uppi í verkalýðsbaráttunni. Gunnar Smári studdi Sólveigu með þeim árangri að til varð hópur róttækra verkalýðsforingja eins og Ragnars Þórs Ingólfssonar, Sólveigar og Vilhjálms Birgissonar á Akranesi sem standa nú saman í herferðinni gegn skrifstofufólki Eflingar. Það vekur...
SlúðurLilja töluð niður í bankabralli Það hitnar stöðugt meira undir Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra vegna brasksins með hlutabréf í Íslandsbanka og þeirra vinavæðingu sem þar virðist hafa átt sér stað. Yfirlýsing Lilju Alfreðsdóttur viðskiptaráðherra um að hún hafi látið í ljósi skýr mótmæli við aðferðina urðu sem olía á eldinn og magnaði upp andstöðuna meðal almennings sem fékk ekki að taka þátt í bankabrallinu. Línan hjá...
SlúðurRagnar Þór í hrikalegri stöðu Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, rauf þögnina í gær og tjáði sig varfærnislega um þann fantaskap sem átt hefur sér stað gagnvart launþegunum á skrifstofu Eflingar sem sagt var upp á einu bretti af Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni. Á skrifstofu Eflingar eru 10 félagsmenn VR og ættu þannig að vera skjólstæðingar Ragnar Þórs sem fæst ekki til þess að fordæma...
SlúðurRagnar Þór er týndur Ragnar Þór Pétursson, formaður VR, hefur enn ekki látið ná í sig þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fjölmiðla sem vilja vita hver afstaða hans er til brottreksturs allra á skrifstofu Eflingar. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur uppskorið víðtæka fordæmingu vegna fjöldauppsagnarinnar og vægðarleysins í garð starfsfólksins. Eini verkalýðsleiðtoginn sem mælir framferði hennar bót er Vilhjálmur Birgisson á Akranesi sem þá...
SlúðurBjörk á svartan lista Björk Jakobsdóttir leikkona er þekkt fyrir að segja hlutina umbúðalaust. Hún leggur út af slaufunarmenningunni í nýjum pistli á Facebook þar sem hún varar við þeirri grimmd sem blasir við. Hún er ekki í vafa um að viðhorf hennar muni koma harkalega við ákveðinn hóp og segist vera „vitandi að það getur kostað mig útskúfun og bannfæringu hjá ákveðnum hópi“....
SlúðurFacebook-síða gegn Auði Tónlistarmaðurinn Auðun Lúthersson, eða Auður, sýndi iðrun í viðtali á Stöð 2. Auður er einn þeirra sem hefur verið sniðgenginn og sviptur lifibrauði sínu eftir að þrjár konur stigu fram og lýstu því að hann hefði stigið yfir mörk í samskiptum við þær. Auður gengst við því og segist hafa sótt meðferð til sálfræðings auk þess að hætta að drekka....
SlúðurSólveig er grimmur vinnuveitandi í felum Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, stendur svo sannarlega í ströngu og leggur línurnar fyrir komandi verkalýðsbaráttu. Á fyrsta stjórnarfundi sínum í Eflingu lagði hún til í krafti meirihluta stjórnar að allir starfsmenn félagsins á skrifstofu yrðu reknir. Í kosningabaráttunni nefndi hún ekki þessi áform sín en lætuir til skarar skríða í krafti meirihluta stjórnar. Athyglisvert er einnig að hún mætti...
SlúðurLilja andvíg Íslandsbankabralli Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra viðskipta, hefur upplýst að hún hafi verið andvíg þeirri aðferð sem notuð var við söluna á bréfum í Íslandsbanka þar sem einungis sérvaldir fengu að njóta. Hún segist í Morgunblaðinu í dag hafa viljað almennt útboð en ekki að það sem varð ofan á. Þessu hafi hún komið skýrt á framfæri. Hún segir að ekkert hafi því...
SlúðurBjarni Ben fær á snúðinn Páll Magnússon, fyrrverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, er í miklu stuði eftir að hann losnaði úr vistarbandi Sjálfstæðisflokksins. Hann hefur loksins tekið afstöðu opinberlega með andstæðingum gamla Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum og býður sig fram sem oddvita fyrir bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey sem felldi meirihluta Sjálfstæðisflokksins og hrakti Elliða Vignisson bæjarstjóra upp á land, til Þorlákshafnar. Vitað var að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafði...
SlúðurÚtrásarvíkingurinn Jón Ásgeir upprisinn Nýr forstjóri og fjármálastjóri voru kynntir til leiks hjá Skeljungi í fyrradag við mikinn fögnuð fjárfesta. Hlutabréf í Skel fjárfestingafélagi, áður Skeljungi, hækkuðu um sjö prósent við tíðindin. Ásgeir Reykfjörð Gylfason verður nýr forstjóri fyrirtækisins en hann var áður hægri hönd Benedikts Gíslasonar, bankastjóra Arion banka. Magnús Ingi Einarsson var ráðinn fjármálastjóri. Jón Ásgeir Jóhannesson, stærsti hluthafi fjárfestingafélagsins, tók þeim...
SlúðurKristján Þór fær dúsu Kristján Þór Júlíusson, fyrrverandi ráðherra og stjórnarformaður Samherja, er í miklum metum innan Sjálfstæðisflokksins, einn af gæðingunum. Hann hætti þingmennsku eftir seinasta kjörtímabil og tók þá biðlaun sem fráfarandi þingmaður. Í framhaldinu bíða hans himinhá eftirlaun sem ráðherra og þingmaður. Kristján verður 65 ára í sumar og öðlast þá fullan rétt og eftirlaun sem verða á aðra milljón króna á...