SlúðurJónína í uppgjöri ORÐRÓMUR Athafnakonan Jónína Benediktsdóttir er ómyrk í máli á Facebook-síðu sinni þar sem hún sagði frá því að hún hefði farið í meðferð í Krísuvík í vetur. Þar bjó hún um tíma. Í langri færslu gerir hún upp skilnað sinn við Gunnar Þorsteinsson í Krossinum. Jónína er þó hvergi af baki dottin og býður hópum upp á detox-meðferð á Hótel...
SlúðurSigmundur seigur ORÐRÓMUR Sigmundur Ernir Rúnarsson, sjónvarpsmaður og sérlegur sendiherra Akureyrar, er á meðal þeirra sem eru ódrepandi í bransanum. Sjónvarpsstöðin Hringbraut hefur farið í ýmsa hringi og kollsteypur í gegnum tíðina. Margir hafa fallið útbyrðis á þeirri vegferð. Sigmundur Ernir hefur alltaf lifað af og færist í aukana með hverju árinu. Hann gerði í fyrra þáttaröð um fjallaskála á Íslandi. Nú...
SlúðurTómasi úthúðað ORÐRÓMUR Sú ákvörðun HS Orku að hætta við Hvalárvirkjun í Árneshreppi hefur glatt marga náttúruverndarsinna sem vildu ekki að fossar og stöðuvötn Stranda yrðu stórskemmd eða eyðilögð í þágu útlendra auðmannna og innlendra lukkuriddara. Tómas Guðbjartsson, læknir og náttúruunnandi, hefur verið óþreytandi í baráttu sinni gegn áformunum og fagnar nú áfangasigri. Fokreiðir virkjanasinnar vestra eru á öðru máli. Sá myrki...
SlúðurEgill kjarkmikill ORÐRÓMUR Egill Helgason sjónvarpsmaður sagði frá því opinberlega að hann hefði glímt við kvíða og þunglyndi undanfarna mánuði. Hann hefur verið frá vinnu mánuðum saman vegna þessa. Margir dást að þeim kjarki hans að segja frá sjúkdómi sínum í stað þess að leyna honum. Á meðal þeirra sem hæla Agli er Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri, sem þekkir vel til þessara...
SlúðurDavíð sameinar ORÐRÓMUR Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, fjarlægist stöðugt eigin flokk og þykir hallur undir Miðflokkinn. Hann hefur haft ýmislegt á hornum sér varðandi Bjarna Benediktsson formann. Nú síðast hæddist Davíð að Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra fyrir frammistöðu í embætti. Guðlaugur Þór og Bjarni eru fjarri því að eiga samleið þótt þeir séu í sama flokki. Aftur á...
SlúðurJón Ásgeir klókur ORÐRÓMUR Jón Ásgeir Jóhannesson, athafnamaður og stjórnarformaður Skeljungs, hefur misjafnt orð á sér í heimi viðskiptanna. Hann þykir vera bragðarefur sem nýtir sér ýmis úrræði til að komast af. Einhverjir töldu víst að Jón Ásgeir væri að baki því að Skeljungur nýtti sér hlutabótaleiðina til að niðurgreiða starfsmannakostnað. Heimildir herma aftur á móti að Jón Ásgeir hafi verið andvígur því...
SlúðurGráðug kjötvinnsla ORÐRÓMUR Hötuðustu fyrirtæki landsins í dag eru þau sem sækja styrk í ríkissjóð í gegnum hlutabótaleið án þess að þurfa það. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur fordæmt græðgina líkt og Ásmundur Daði Einarsson félagsmálaráðherra. Sum fyrirtækjanna hafa séð að sér og endurgreitt ríkinu en önnur halda sig við að taka til sín fjármuni almennings á sama tíma og þau skila eigendum...
SlúðurBjarni fór á kostum hjá Birni ORÐRÓMUR Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, hefur sýnt fádæma elju með að mæta á alla fundi COVID-þrenningarinnar og spyrja um allt milli himins og jarðar. Þetta er ekki síst merkileg upprisa í ljósi þess að Björn Ingi hefur átt í gríðarlegum erfiðleikum eftir að fjölmiðlaveldi hans hrundi til grunna og eitt og annað var dregið fram í dagsljósið. Bjarni Benediktsson...
SlúðurCovid-19Kári kostulegur Orðrómur Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur farið á kostum undanfarið. Fyrirtæki hans hefur tekið ótal sýni úr fólki og greint það hvort fólk sé með veiruna eða ekki. Ekki bólar á neinum efasemdum fólks með rannsókn lífsýnanna. Kári hefur verið gestur víða í fjölmiðlum og glatt marga með sérstöðu sinni og húmor sem á sér vart hliðstæðu. Meðal annars...
SlúðurCovid-19Leikbrúðan Víðir Orðrómur Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, eigandi Kvennablaðsins, er óhrædd við að gagnrýna þá sem henni þykir þess verðir. Á meðan þjóðin mærir Víði Reynisson yfirlögregluþjón, og hina í þríeykinu, fyrir frammistöðu í veirustríðinu þá skammar Steinunn Ólína hann og segir ónotalegt að sjá hann gerast „leikbrúðu“ þeirra sem vilja stýra fjölmiðlaumræðu á Íslandi. Ástæðan er sú að Víðir ráðlagði fólki að...
SlúðurKaupfélagsstjóra misboðið Orðrómur Flestar þær útgerðir sem vildu milljarða króna úr ríkissjóði vegna útgefins makrílskvóta hafa hrokkið frá lögsókn. Á meðal þeirra er Guðbjörg Matthíasdóttir, auðkona í Vestmannaeyjum, sem rekur Ísfélagið. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Eyjum, heldur aftur á móti sínu striki og krefst bóta. Innan hluthafahópsins í fyrirtæki hans eru skoðanir á þessu skiptar. Þannig er hermt að Þórólfur...
SlúðurGlaðvær systkini ORÐRÓMUR Siglfirðingurinn Alma Möller landlæknir hefur notið sín í sviðsljósinu eftir að veiran kom upp. Á einni nóttu varð hún þjóðþekkt sem stríðsmaður í baráttunni gegn vágestinum. Alma hefur yfir að ráða bæði þokka og húmor. Bróðir hennar er Kristján Möller, fyrrverandi alþingismaður Samfylkingar og samgönguráðherra, sem um árabil þjónaði kjördæmi sínu og naut mikilla vinsælda. Systkinin eiga glaðværðina sameiginlega....