SlúðurSiðareglur Silju Silja Bára Ómarsdóttir var í vikunni kjörin nýr rektor Háskóla Íslands og verður því önnur konan í sögunni til að gegna því embætti. Rætt er innan háskólasamfélagsins að setja þurfi framtíðarframbjóðendum meiri hömlur en gert hefur verið en telja sumir að um dýrustu og hatrömmustu baráttu í sögu skólans hafi verið að ræða. Slíkt sé ekki til að auka virðingu...
SlúðurFramsóknarlegur Jóhann Páll Í gær var tilkynnt að íslenskir grænmetisbændur muni fá 160 milljónir króna á næstunni og stillti Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sér upp með bændum fyrir myndatöku til að fagna tímamótunum. Það er hægt að rökræða fram og til baka hvort upphæðin ætti að vera hærri en fjármununum er ætlað að auka orkunýtni og stuðla að orkusparnaði hjá...
SlúðurLaunamál Heiðu Það hefur stundum verið sagt að íslenskir fjölmiðlar beini athygli sinni ekki nógu mikið að landsbyggðinni og hugsi aðeins um Reykjavík. Það getur þó verið gagnlegt fyrir sveitarstjórnir og bæjarstjóra út á landi sem sleppa betur frá vandræðalegum málum en stjórnmálamenn borgarinnar gera. Nýlega hefur verið mikið fjaðrafok í kringum laun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, borgarstjóra Reykjavíkur, og hafa misvitrir spekingar...
SlúðurGulli borgarstjóri Guðlaugur Þór Þórðarson, eða Gulli borgarstjóri eins og sumir Sjálfstæðismenn eru farnir að kalla hann, er sagður liggja undir feldi. Hann er af mörgum Sjálfstæðismönnum talinn eini raunhæfi kostur flokksins að komast aftur til valda í borginni en ráðherrann fyrrverandi hefur um árabil verið vinsælasti þingmaður flokksins í Reykjavík.Guðlaugur er byrjaður að tjá sig meira og meira um málefni sem...
SlúðurÞræðir Silfursins Bylgja óánægju hefur risið eftir Silfrið á RÚV í gærkvöldi. Þar valdi Sigríður Hagalín Björnsdóttir, fréttakona RÚV, álitsgjafa í settið til að ræða mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur og þátt RÚV í því. Nánar tiltekið var rætt hvort of langt hefði verið gengið í fyrstu frétt Sunnu Karenar Sigþórsdóttur verðlaunafréttakonu um málið með fullyrðingum og tilvísunum í brot á lögum sem...
SlúðurKjósendur Áslaugar Það getur verið erfitt að tapa kosningum. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttur, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur fengið að kynnast því oftar en flestir innan flokksins en samstarfsmenn hennar hafa ítrekað verið teknir fram yfir hana af flokksmönnum. Það er þó alveg greinilegt að hún á sína dyggu kjósendur en að sögn Áslaugar eru þeir að flýja Reykjavík.Ráðherrann fyrrverandi lét hafa slíkt eftir sér...
SlúðurÓgöngur Arnars Það fer ekki milli mála að Arnar Gunnlaugsson er einn besti þjálfari sem hefur þjálfað íslenskt félagslið. Það má hins vegar vera að leikstíll og skipulag Arnars henti illa fyrir landslið ef marka má slöpp töp Íslands gegn Kósovó um helgina. Hjá félagsliðum er hægt að kaupa og selja menn eftir hentisemi og hefur landsliðsmaðurinn fyrrverandi verið naskur að finna...
SlúðurGamaldags greining Snorra Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, fer eigin leiðir í lífinu. Slíkt var augljóst þegar hann ákvað að stofna sinn eigin fjölmiðil eftir að hafa verið fréttamaður í mörg ár hjá stórfyrirtækjum. Greiningar Snorra á ástandinu í samfélaginu hafa oft verið umdeildar en þær tryggðu honum þó sæti hjá Miðflokknum og á endanum á...
SlúðurHátterni Hermanns Nökkva Fjölmiðlar á Íslandi hafa lengi verið gagnrýndir fyrir að vera hræddir við að spyrja stjórnmálamenn og aðra viðmælendur um erfiða og krefjandi hluti. Dæmi eru um það að stjórnmálamenn hafi komið með lista af spurningum til fjölmiðlamanna á síðustu öld þegar þeir mættu í viðtal sem viðkomandi mátti spyrja.Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður Morgunblaðsins og framkvæmdastjóri SUS, þorði heldur betur, svo...
SlúðurHrós til Ásthildar Lóu Það er ekki algengt að stjórnmálamenn hrósi pólitískum keppinautum sínum. Það gerðist hins vegar í gær þegar Ásmundur Einar Daðason, fyrrverandi barnamálaráðherra, skellti í sjaldgæfan status á Facebook. „Hef ekki sett inn neitt sem tengist stjórnmálum síðan fyrir jól en nú finn ég hjá mér þörf til að segja nokkur orð,“ sagði Ásmundur Einar. Hann birtir mynd af sér með...
SlúðurIngvar úti að aka Það er alltof sjaldgæft að ungt fólk í dag hugsi um réttindi þeirra elstu en mikilvægt er að virða þá sem á undan okkur hafa komið. Þrátt fyrir mikilvægi þess þýðir það ekki að gamalt fólk sé fullkomið, ekki frekar en ungt fólk. Með hækkandi aldri geta ýmsir kvillar eða sjúkdómar gert eldra fólki erfitt fyrir sinna hinum og þessum...
SlúðurFirring Ásthildar Lóu Algengt viðhorf er að Ásthildur Lóa Þórsdóttir, fráfarandi mennta- og barnamálaráðherra, hafi margsannað dómgreindarbrest sinn í viðtali við Stöð 2 um ástarsamband hennar við 16 ára pilt. Í viðtalinu kennir hún fjölmiðlum um að hún hafi orðið að hætta sem ráðherra. Þá kallar hún piltinn „mann“ og færir ábyrgðina yfir á hann. Hún, sem 22 ára gömul kona andspænis 15...