SlúðurMatareitrun Gylfa Gylfi Þór Sigurðsson, einn besti knattspyrnumaður Íslands, átti sinn hlut í sigri íslenska karlalandsliðsins á Svartfjallalandi í Þjóðadeildinni í gærkvöld. Gylfi hefur lítið keppt undanfarin ár vegna langvarandi lögreglurannsóknar í Bretlandi sem skilaði á endanum engu öðru en því að ferill hans í Englandi var á enda. Gylfi var svo óheppinn að fá matareitrun fyrir leikinn sem þó stoppaði hann...
SlúðurBrynjar snýr baki við Bjarna Brynjar Níelsson, fyrrverandi alþingismaður, hefur lengi verið grjótharður stuðningsmaður Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins og verið öflugur í vörn þessa umdeildasta stjórnmálamanns landsins. En nú er komið annað hljóð í strokkinn og Brynjar svipast um eftir nýjum formanni. Brynjar og Sigríður Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, mættu í Reykjavík síðdegis til að ræða vandræði Sjálfstæðisflokksins og forystu hans. Þar kom fram að bæði...
SlúðurSigríður tvísaga Sigríður Friðjónsdóttir ríkissasksóknari á í miklum vandræðum vegna vararíkissaksóknaranas, Helga Magnúsar Gunnnarssonar sem hún hefur áminnt og hlotið ákúrur fyrir. Helgi Magnús þykir vera nokkuð ferkantaður í skrifum sínum á samfélagsmiðlum. Þá þykja einhverjum sem skrif hans lykti af fordómum. Sigríður stökk á þann vagn og áminnti Helga og vísaði honum úr starfi. Helgi Magnús og fjölskylda hans hafa um...
SlúðurNeyðarkall í Hlöðuvík Varðskipið Þór fór í ferð sem reyndist vera tilgangslaus í gær. Göngumaður sem sendi út neyðarkall úr björgunarskýli þurfti svo ekki aðstoð þegar varðpskipið var komið á staðinn í gærkvöld. Skipið hafði þá siglt frá Snæfellsnesi og norður um til Hlöðuvíkur. Ekkert amaði að manninum sem heldur áfram ferðalagi sínu um Hornstarndir. Ekki liggur fyrir hvað varð til þess að...
SlúðurFullur Bolli Orrahríð Bolla Kristinssonar í 17 og áhrifakvenna í Sjálfstæðisflokknum hefur vakið athygli. Bolli, sem á sér þann draum að stofna til DD lista vegna bágborins ástands í flokknum, smættaði konur í flokknum með ummælum um það væri ekki verið að leita að „einhverjum nýútskrifuðum stúlkum sem ætla bara að blása á sér hárið og naglalakka sig“ til að taka sæti...
SlúðurSara Lind fékk vinnu Greint var frá því fyrr í vikunni að Sara Lind Guðbergsdóttir hafi verið ráðin sem framkvæmdastjóri Climeworks á Íslandi en svissneska fyrirtækið starfrækir lofthreinsiver á Hellisheiði. Kemur þessi ráðning mörgum í opna skjöldu enda höfðu flestir reiknað með að hún yrði sett í gott forstjórastarf hjá ríkinu án auglýsingar eins og venjan hefur verið. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig...
SlúðurFlótti til Sigmundar Vonleysi fer vaxandi innan Sjálfstæðisflokksins eftir að kannanir sína að flokkurinn er á fallandi fæti og nálgast fylgi Pírata og annarra smáfglokka. Bjarni Benediktsson formaður flokksins náði engan veginn að snúa umræðunni sér í haf á flokksstjórnarfundinum um helgina. Þar var lagt upp með að þegja vandann í hel og banna allar þær raddir sem efast um stefnufestu leiðtogans og...
SlúðurDavíð er orlofssuga Morgunblaðið hefur verið í miklum ham vegna orlofsmála Dags B. Eggertssonar borgarstjóra sem reifað hefur verið sem siðleysi og einsdæmi. Ritstjóri blaðsins, Davíð Oddsson, gekk svo langt að uppnefna Dag sem orlofssugu og fleira í þeim dúr. Nú er komi á daginn að Davíð er sjálfur orlofssuga. Hann fékk um helmingi fleiri daga en Dagur eða 93 orlofsdaga eftir að...
SlúðurBjarni skammar ungliða Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, reyndi að sannfæra fulltrúa á flokksráðsfundi í gær um að fylgishrun flokksins væri flestum öðru að kenna en honum sjálfum. Hann kom víða við í ræðu sinni og mátti skilja að fylgi upp á rúm 13 prósent væri birtingarmynd á léttum mótbyr. Þá hjólaði hann í ungliða Sambands ungra Sjálfstæðismanna sem auglýstu opinberlega eftir „plani“ til...
SlúðurGetuleysi Bjarna Bjarni Benediktsson forsætisráðherra á ekki sjö dagana sæla nú þegar skuggi fylgishruns fylgir honum hvert sem hann fer. Tvær kannanir sýna skelfilega stöðu hins forna valdaflokks sem jafnvel hefur mælst minni en Miðflokkurinn, popúlistaflokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Fylgishrun flokksins er enn alvarlegra þegar litið er til kannana í höfuðborginni þar sem versta tilfellið sýnir hann á meðal smáflokka. Bjarni hefur...
SlúðurHnífavandi Helga Fáar fréttir hafa komið grunnskóla- og félagsmiðstöðvastarfsmönnum í Reykjarvík jafn lítið á óvart og að alvarleg ofbeldisbrot ungmenna hafa fjórfaldast á tíu árum en starfsmenn þar á bæ eru orðnir langþreyttir á getuleysi stjórnenda til að takast á við agavandamál sem koma upp. Telja sumir starfsmenn að stjórnendur séu dauðhræddir að refsa börnum með öðru en faðmlagi vegna að ótta...
SlúðurStefán Einar og áfengið Gunnar Smári Egilsson, formaður Sósíalistaflokksins, hefur mikla unun að’ því að espa Stefán Einar Stefánsson, blaðamann Mogggans, upp á Facebook. Ítrekað hafa sprottið upp illindi á milli þeirra við þórðargleði þeirra sem lesa. Ein slík deila varð í vikubyrjun þegar Gunnar Smári spurðu Stefán að gefnu tilefni hvort hann væri ennþá „fullur á Facebook“. Óljóst er hvað Gunnar Smári hefur...