SlúðurÞórður er dapur Þórður Snær Júlíusson, annar ritstjóra Heimildarinnar, er í erfiðri stöðu vegna símamáls Páls Steingrímssonar skipstjóra. Páll var rændur síma sínum á sjúkarbeði þar sem hann lá í lífsháska. Gögn úr símanum urðu fréttaefni víða þar sem við sögu komu samskipti stuðningsmanna og starfsmanna Samherja sem vildu rétta af ímynd félagsins. Kjarninn, sem Þórður ritstýrði í þá daga, birti gögnin. Við...
SlúðurIllugi krefst þöggunar Samfélagsrýnirinn Illugi Jökulsson er ekki ánægður með framgöngu Gunnars Birgissonar og annarra íþróttafréttamanna Ríkisútvarpsins sem lýstu leik Englands og Hollands á EM. Illuga þykir, sem fleirum, að lýsendur leiksins hafi verið hallir mjög undir Englendinga. „Fyrirgefiði RÚV, en viljiði þagga niður í þessu Englendingablæti þulanna ykkar?! Þetta er orðið vandræðalegt,“ skrifaði Illugi á Facebook þegar íslensku þulirnir voru með andköfum...
SlúðurSkúli má lækna fólk Skúli Tómas Gunnlaugsson læknir getur varpað öndinni léttar eftir að Alma Möller landlæknir veitti honum lækningaleyfi að nýju. Skúli var sviptur leyfinu vegna gruns um að hann hafi sent sjúklinga sína á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í lífslokameðferðir án þess að ástæða væri til. Hann er grunaður um fjölda mistaka og vanrækslu. Níu sjúklingar eru taldir hafa dáið ótímabærum dauða vegna meðferðar...
SlúðurLíf ógnar Mumma Innan Vinstri-grænna ríkir nánast örvænting vegna yfirvofandi hruns hjá flokknum sem er í beinni útrýmingarhættu. Ólíklegt verður að teljast að Guðmundur Ingi Guðbrandsson formaður haldi áfram í forystusætinu eftir landsfund í haust. Hann þykir vera of undanlátssamur við Bjarna Benediktsson og félaga hans í Sjálfstæðisflokknum. Þá þykir Mummi, eins og hann kallast daglega, einfaldlega ekki vera sá leiðtogi sem nær...
SlúðurBrynjar er utangarðsbarn Strigakjafturinn Brynjar Níelsson hefur verið utangarðsbarn í Sjálfstæðisflokknum allt frá því Bjarni Benediktsson ákvað að færa hann niður framboðslista til að rýma fyrir konu. Brynjar féll af þingi í framhaldinu en hefur síðan verið á vergangi eða starfað sem aðstoðarmaður ráðherra. Engum dylst að Brynjar er ekki sáttur í sínum gamla flokki fremur en vopnabróðir hans, Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra....
SlúðurMilla gefur upp rangt nafn Milla Ósk Magnúsdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra og borgarstjórafrú, á í einkennilegu sambandi við nafn sitt. Milla, sem er fædd árið 1990, er fyrst Íslendinga til að bera nafnið Milla sem fyrra nafn. Hún lýsti skemmtilegum uppákomum í tengslum við nafn sitt í þættinum Segðu mér á Rás 1. Hún sagði vera hætt að segja rétt til nafns þegar hún pantar borð...
SlúðurSilfurfat Bjarna Eftir hrikalega útreið Íhaldsflokksins breska og stórsigur Verkamannaflokksins eru uppi vaxandi áhyggjur vegna Sjálfstæðisflokksins á Íslandi. Bjarni Benediktsson heldur þar um stjórnvölinn auk þess að vera forsætisráðherra í óþökk stærsta hluta íslensku þjóðarinnar. Allur líkur eru á því að næstu kosningar muni færa Samfylkingunni forsætisráðuneytið og Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, taki við lyklunum af Bjarna. Innan Sjálfstæðisflokknum er urgur vegna...
SlúðurSvipugöng Sigmundar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, mun væntanlega uppskera í næstu kosningum eftir að hafa gengið svipugöngin síðast og tapað nánast öllu fylgi sínu. Sigmundur stóð uppi með aðeins þrjá þingmenn eftir hrakfarirnar. Einn þeirra, Birgir Þórarinsson, gerðist liðhlaupi og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og eftir voru tveir. Nú benda kannanir til þess að niðurlægingu Miðflokksins sé að ljúka og...
SlúðurÍris lúskrar á Binna Ólga er í Vestmannaeyjum eftir að meirihluti bæjarstjórnar þar krafði Vinnslustöðina um himinháar bætur vegna þess að skip útgerðarinnar eyðilagði vatnslögnina til bæjarins. Óhappið varð með þeim hætti að skipstjórnendur drógu að ástæðulausu á eftir sér ankeri með þessum afleiðingum. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar og einn hluthafa, harðneitar að borga allan kostnað vegna óhappsins en telur rétt að bæjarbúar...
SlúðurHeiðrún sýnir tennurnar Baráttukonan Heiðrún Lind Marteinsdóttir hefur verið dugleg að berjast fyrir sitt fólk í Samtökum í sjávarútvegi. Framan af hefur hún gjarnan gætt orða sinn og verið kurteis og rökföst, þvert á það sem gerðist í tíð forvera hennar, Kristjáns Ragnarssonar, sem var þekktur strigakjaftur. En nú virðist vera orðin á breyting og Heiðrún sýnir tennurnar. Nýleg yfirlýsing Heiðrúnar og félaga...
SlúðurMargir elska Ölmu Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, og innsti kjarni flokksins leitar nú logandi ljósi að sterkum frambjóðendum til að tryggja boðlega breidd í komandi alþingiskosningum sem allt eins gætu orðið í haust. Meðal þeirra sem nefnd eru til sögunnar er Alma Möller landlæknir sem væntingar standa til að verði í framlínu flokksins og augljóst ráðherraefni í heilbrigðisráðuneytið. Alma nýtur mikilla vinsælda hjá...
SlúðurEinar mjólkar aldraða Reykjavíkurborg virðist eig aí miklum fjárhagsörðugleikum ef marka má nýjasta útspil þeirra sem felur í sér að hætta að bjóða eldri borgurum upp á frítt sund. Einar Þorsteinsson borgarstjóri ogf félagar hans í meirihlutnaum hafa stigið þetta skref til að næla sér í tekjur sem nema 30 milljónum króna árlega. Sú upphæð samsvarar launum Einars. Fyrirtslátturinn er sá að ferðamenn...