SlúðurKatrín missir fylgi Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, missir flugið ef marka má nýja netkönnun Prósents. Katrín mælist nú vera í þriðja sæti en Halla Hrund Logadóttir er aftur komin í fyrsta sæti eftir að hafa tekið dýfu. Halla Tómasdóttir heldur síðan áfram að styrkja sig og er í öðru sæti þegar tæp vika er til kosninga. Sáralitlu munar á frambjóðendunum þremur. Halla Hrund...
SlúðurArnar hefði stöðvað stólaleik Jón Viðar Jónsson leiklistargagnrýndandi hefur séð ljósið í yfirstandandandi forsetakosningum vill að Arnar Þór Jónsson verði næsti forseta lýðveldisins. Þessa niðurstöðu byggir hann á frammistöðu forsetaefnisins í sjónvarpsþætti. Lofið er dýrt kveðið.„Eldklár og flugmælskur og ekki bara það: málflutningur hans felst að verulegu leyti i hárbeittri og gegnhugsaðri gagnrýni á ruglið, vanhæfnina og siðleysið sem veður uppi i stjórnkerfinu og...
SlúðurHalla verður forseti Fullkomin óvissa er uppi í forsetakosninginum eftir að undanfarnar kannanir leiddu í ljós að Katrín Jakobsdóttir með með sína fortíð skorar hæst hjá kjósendum með allt að 25 prósenta fylgi. Framan af leiddi Halla Hrund Logadóttir með allt að þriðjungsfylgi en hallað hefur á hana og hún sigið niður í 2-4 sæti. Hástökkvarinn er aftur á móti Halla Tómasardóttir sem...
SlúðurÓli Björn múlbundinn Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi matvælaráðherra, hefur unnið stórsigur í hvalveiðibannsmálinu. Svandís bannaði hvalveiðar á síðasta ári og uppskar hávær mótmæli samstarfsflokka sinna í ríkisstjórn. Þingmennirnir Óli Björn Kárason og Teitur Björn Einarsson höfðu uppi stór orð um valdníðslu ráðherrans. Þegar Umboðsmaður Alþingis kvað upp þann úrskurð að ráðherrann hefði farið á svig við lög með banninu var boðað vantraust á Svandísi....
SlúðurEinar borgarstjóri svíkur börnin Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur, er ekki velkominn í Laugardalinn að mati margra íbúa hverfisins eftir að skóla- og frístundaráð borgarinnar ákvað fyrr í mánuðinum að svíkja loforð um uppbyggingu á skólastarfi í Laugardalnum. Ákvörðun um framtíð skólamála í Laugardalnum var tekin árið 2022 eftir langt samráð fyrir við íbúa og skólastjórnendur og ríkti mikil gleði í hverfinu vegna þess. Nú...
SlúðurSpurningar Söru Morgunblaðsmenn hafa verið kátir með þann leka sem er á upplýsingum frá Orkustofnun um eitt og annað sem svert geti ímynd Höllu Hrundar Logadóttur orkumálstjóra og forsetaframbjóðanda. Settur forstjóri í stað Höllu er Sara Lind Guðbergsdóttir sem hefur notið þeirrar náðar hjá Sjálfstæðisflokknum að fá embætti án auglýsingar. Hermt er að Sara hafi verið iðin við að spyrja undirmenn sína...
SlúðurSkáld Höllu ritskoðað Kristján Hreinsson skerjafjarðarskáld hefur vakið athygli fyrir þá elju sína að hafa undanfarnar vikur birt eina vísu á dag til stuðnings Höllu Hrundar Logadóttur, orkumálastjóra og forsetaframbjóðanda. Fölskvalaus aðdáum skáldsins hefur hreyft við mörgum og örugglega laðað að einhverja kjósendur. Athygli vakti fyrir helgi að allar vísurnar hurfu af Facebook á einu bretti og svo virtist sem skáldið hefði snúið...
SlúðurKatrín eyðir 100 milljónum Kapphlaupið um Bessastaði stendur nú sem hæst. Fremstir frambjóðendanna eru þær Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sem báðar búa yfir miklum þokka og visku sem heillar kjósendur. Mikill munur er þó á fjárráðum þeirra tveggja. Halla Hrund upplýsti í Mannlífi að hún hygðist eyða á bilinu 10 til 20 milljónum króna í slaginn. Katrín fer aftur á...
SlúðurStarfsmaður Bjarna sparkar í Höllu Hrund Ljóst er að aldrei hefur verið meiri harka í kosningabaráttu til embætti forseta Íslands en núna. Líklegt verður að teljast að næsti forseti verði Katrín Jakobsdóttir, Halla Hrund Logadóttir eða Baldur Þórhallsson. Í gær birti Mannlíf brot úr viðtali sem tekið var við Höllu Hrund en í því ræðir hún andlát bestu vinkonu sinnar sem varð bráðkvödd í fyrra. Flestir...
SlúðurSvik Katrínar Helga Þórisdóttir, forsetaframbjóðandi og forstjóri Persónuverndar, var opinská í Forystusætinu í Ríkissjónvarpinu. Þar bar á góma pólitískan þrýsting frá ráðherrum á embætti hennar. „Ég var atyrt,“ sagði hún. Helga varpaði djúpsprengju þegar hún sagðí frá átökum Persónuverndar við Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Stofnunin átti í vök að verjast og þá ekki síst eftir að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hafi tekið...
SlúðurHulduher gegn Katrínu Hulduher Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfisráðherra er nánast allur sameinaður gegn framboði Katrínar Jakobsdóttur og má ekki til þess hugsa að hún verði forseti. Ástæðan er aðallega sú að Katrín greiddi atkvæði með ákæru á hendur Geir H. Haarde fyrir Landsdómi þar sem hann var sakaður um embættisafglöp í tengslum við Hrunið. Sjálfur eru Geir og eiginkona hans, Inga Jóna Þórðardóttir...
SlúðurVígtennur Dags Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík, sýndi á sér nýja hlið þegar hann beinlínis hjólaði í Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur, brottrekinn fréttamann Kveiks, vegna umfjöllunar hennar um gjafmildi hans þar sem kom að innköllun lóða sem áður voru undir bensínstöðvum. Dagur lýsti því að umfjöllun Maríu Sigrúnar væri beinlínis röng í meginatriðum og borgin hefði ekki gefið olíufélögunum rúmlega 10...