SlúðurVilhjálmur æpti á soninn Það gekk á ýmsu á þorrablóti Stjörnunnar í Garðabæ, ef marka má heimildir Vísis sem vitnar í Nótt Moggans. Nokkurt uppnám varð þegar Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður missti stjórn á sér undir uppistandi syni veislustjórans, Helga Brynjarssonar, sem grínaðist með Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, og skjólstæðing Vilhjálms. Lögmaðurinn missti þá stjórn á sér. „Ástæðan var ummæli þess fyrrnefnda um...
SlúðurÞúsundir styðja Tómas Yfir 1800 manns hafa sýnt Tómasi Guðbjartssyni hjartaskurðlækni stuðning með því að setja tákn við færslu hans á Facebook þar sem fram kemur að hann er að glíma við krabbamein í ristli. Þá hafa yfir þúsund manns sent honum kveðjur með óskum um góðan bata.Tómas setti inn færslu sína í gær þar sem hyann upplýsti að hann væri að glíma...
SlúðurDrullusokkatal Egils Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason á sér þá hlið að vera átakasækinn og efna gjarnan til slagsmála á netsíðum. Eitt slíkt dæmi kom upp þegar hann reifst við heiðursmanninn Bjarna Ákason í athugasemdakerfi Facebook. Deilan vakti athygli og sagði DV meðal annrs frá uppnáminu. Egill var að mæra vini sína, hælisleitendur frá Venesuela sem hann sagði að ættu yfir sér brottvísun frá...
SlúðurVíðir skal skammast sín Margir Grindvíkingar eru óánægðir með þá ofstjórn sem þeir sæta af hálfu Almannavarna varðandi aðgengi að bænum sínum. Stefán Kristjánsson, eigandi fiskvinnslunnar Einhamars, gagnrýndi Almannavarnir fyrir að banna íbúum og starfsfólki bæjarins að vitja eigna sinna í góðviðri sunnudagsins. Hann birti færslu á Facebook á laugardag þar sem hann gagnrýndi ákvörðun Almannavarna. „Við Grindvíkingar höfum alist upp við allskyns veður...
SlúðurSigmar skammar Lilju Ólgan í kringum Ríkisútvarpið og Eurovision fer vaxandi fremur en hitt eftir að Stefán Eiríksson útvarpsstjóri steig fram á sviðið og sagði að sigurvegarinn í Söngvakeppninni á Íslandi hefði það nokkurn veginn á valdi sínu hvort Ísland yrði á meðal þátttakenda í Eurovision í Svíþjóð í vor. Sumum þótti þetta ráðslag stjórnenda RÚV lítilmannlegt en aðrir dáðust að klókindum Stefáns...
SlúðurSigga látin fjúka Einhver vinsælasta útvarpskona landsins, Sigga Lund, var látin fara frá Bylgjunni á dögunum og henni gert að hætta störfum strax. Sigga upplýsti þetta á Facebook. „Minna starfskrafta er ekki lengur óskað,“ sagði hún í færslunni. Sigga er hokin af reynslu og hefur um langt árabil starfað við útvarp við aðdáun og vinsældir hlustenda. Uppljóstranir hennar um sértrúarsöfnuði fyrir margt löngu...
SlúðurMagnús fann skítalykt Einungis einn hinna útvöldu lagahöfunda sem hlutu þá náð að senda lög sín í undankeppni Eurovisioan hefur dregið sig til baka. Sá er Magnús Jónsson, kenndur við Gus Gus. Hann skýrir afstöðu sína í samtali við vefmiðilinn Vísi. „Já, það er skítalykt af þessu öllu saman …,“ segir hann og taldi fátt skemmtilegt standa eftir í keppninni þar sem Ísrael...
SlúðurGlæpamenn ofsækja Grím Prúðmennið Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn er dáður af mörgum fyrir að vera yfirvegaður og traustur í hvívetna. Hann hefur ekki þótt verqa aðgangsharður gagnvart glæpamönnum fremur en lögreglan í heild sem vinnur gjarnan á hraða snigilsins að glæpamálum. Þrátt fyrir umburðarlyndið er gerð aðför að Grími og fleirum innan lögreglunnar. Bíll lögregluforingjans var skemmdur á dögunum. Þá þurfti ónafngreind lögreglukona að...
SlúðurHildi skortir þrótt Á borgarstjórnarfundi í gær tókust þau Hildur Björnsdóttir og Dagur B. Eggertsson á. Oddviti Sjálfstæðisflokksins vildi meina að meirihlutar undir stjórn Dags hefðu staðið sig illa þegar kemur að uppbyggingu á íþróttaaðstöðu í borginni. Þó vissulega sé hægt að gagnrýna borgarstjóratíð Dags fyrir marga hluti þá er þessi tiltekna gagnrýni í besta falli ósanngjörn og benti borgarstjórinn fyrrverandi á fjölmörg...
SlúðurHuglaus Stefán Stefán Eiríksson útvarpsstjóri og meðreiðarsveinar hans hafa fundið upp hreint snilldarlega leið til að þurfa ekki að refsa Ísraelum fyrir stríðreksturinn í Palestínu með því að reka þá úr Eurovision líkt og gert var við Rússa vegna innrásarinnar í Úkraínu. Í gær var tilkynnt að Íslendingar myndu halda forkeppnina með pompi og prakt og síðan yrði ákveðið í samráði við...
SlúðurSigríður titraði Líklegt má telja að Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra hafi gengið út úr höfuðstöðvum RÚV skælbrosandi eftir frammistöðu sína í Silfrinu í gærkvöldi. Þar ræddi hann við Sigríði Hagalín Björnsdóttur, þáttastjórnanda og fréttamann, um helstu málefni líðandi stundar í íslenskum stjórnmálum. Bjarni mætti til leiks pirraður og fullur réttlætiskenndar og réði Sigríður lítið við utanríkisráðherrann stærstan hluta viðtalsins. Þegar Bjarni var spurður...
SlúðurMyndin af Jóni Listamaðurinn og gamanleikarinn Jón Gnarr virðist vera sjóðheitur fyrir forsetaembættinu. Athygli vakti þegar birt var uppfærsla og mynd af kappanum annars steindauðri síðu Besta flokksins. Þetta þótti vera vísbending um að Jón ætlaði sér í framboð til að keppa við Ástþór Magnússon og fleiri um hnossið á Bessastöðum. Mannlíf var fyrsti fréttamiðillinn sem spurði Jón hvort hann hyggðist bjóða sig...