SlúðurEgill fær á baukinn Mikill hiti er hlaupinn í umræður um meinta barnagirnd séra Friðriks Friðrikssonar og slaufun á prestinum. Helgi Áss Grétarsson, varaborgarfulltrúi og skákmeistari, skrifaði grein í Vísi þar sem hann fordæmdi það hugleysi sem einkenni viðbrögð við málinu og þann skort sem sé á sönnunum um það sem presturinn á að hafa brotið af sér. Meðal þeirra sem hafa fordæmt séra...
SlúðurBrynjar fékk vinnu Sá umdeildi og glaðbeitti Brynjar Níelsson hefur fengið vinnu í gegnum Sjálfstæðisflokkinn eftir að sex mánaða uppsagnarfresti hans á launum hjá dómsmálaráðuneytinu lauk. Brynjar var þingmaður Sjálfstæðisflokksins en féll af þingi í síðustu kosningum. Hann var svo stálheppinn að Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra réði hann sem aðstoðarmann. Það starf hvarf út í buskann þegar Jón vék af ráðherrastóli fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur....
SlúðurArftaki Agnesar Það stefnir í harðan slag um stól Agnesar Sigurðardóttur, biskups Íslands, sem hverfur úr embætti sínu á komandi ári eftir feril sem er þyrnum stráður. Þegar hafa tveir prestar upplýst að þeir hyggist sækjast eftir embættinu. Helga Soffía Konráðsdóttir, sóknarprestur í Háteigskirkju, og Guðrún Karls Helgudóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, hafa lýst yfir áhuga sínum á embættinu og búist er við...
SlúðurLogi til Washington Bjarni Benediktsson utanríkiráðherra á ekki sjö dagana sæla eftir að hann skipaði Svanhildi Hólm Valsdóttur, fyrrverandi aðstoðarmann sinn, sem sendiherra í Washington. Fæstir botna í þessu ráðslagi Bjarna sem metur Svanhildi framar öllum öðrum til að sitja þennan mikilvægasta sendiherrapóst Íslands. En þó eru einhverjir sem standa með Bjarna og sýna því skilning að hann gauki góðu að nánustu samstarfsmönnum...
SlúðurGuðni undir feldi Guðni Th. Jóhannesson , forseti Íslands, sendi landsmönnum að vanda fallega jólakveðju á Facebook. Einhverjir hafa eflaust vonast eftir skilaboðum þar um framhald eða lok forsetatíðar hans þegar kjörtímabilinu lýkur í vor. En í jólakveðju hans og Elizu Reid var ekki vísbendingu að finna en birtar myndir frá undanförnum átta árum frá Bessastöðum.Guðni hefur staðið sig vel í embætti og...
SlúðurKöld jólakveðja Björns Björn Bjarnason, fyrrverandi ritstjórnarfulltrúi Morgunblaðsins, er ekki ánægður með bók Sigmundar Ernis Rúnarsson, fyrrverandi ritstjóra Fréttablaðsins, sem kom út fyrir jólin. Morgunblaðið birti á Þorláksmessu grein Björns um bók Sigmundar sem fundið er margt til foráttu. DV gerið þessi skrif Björns að umfjöllunarefni og kallar greinina níðskrif. Segir í greininni að Moggamönnum „svíði undan nokkrum staðreyndum sem Sigmundur getur um...
SlúðurGeir er hættur við Tónlistarmaðurinn og stórsöngvarinn Geir Ólafsson stóð að sýningunni Christmas Las Vegas Show með miklum glæsibrag. Tónleikarnir og matarveislan voru í Gamla bíói þar sem fjöldi innlendra og íslenskra listamanna stigu á svið. Fyrir utan sjálfan stórsöngvarann er óhætt að fullyrða að Herbert Guðmundsson hafi sungið sig inn í hjörtu áheyrenda. Geir sagði í Mannlífi fyrir tónleikasyrpuna að vegna dræmra undirtekta...
SlúðurEinar sá ljósið Einar Þorsteinsson, verðandi borgarstjóri í Reykjavík, sagði sig úr Þjóðkirkjunni á sínum tíma vegna framgöngu Agnesar M. Sigurðardóttur biskups og annarra ráðamanna innan kirkjunnar sem hann taldi óboðlega. Fjölmargir aðrir hafa farið sömu slóð vegna ýmissa hneykslismál sem dunið hafa á kirkjunni. Svo eru það þeir svörtu sauðir sem hafa snúiið aftur í náðarfaðm kirkjunnar og iðrast. Þeirra á meðal...
SlúðurKolbrún fann ástina Einn mesti áhrifavaldur Íslands þar sem kemur að bókmenntum er Kolbrún Bergþórsdóttir, bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar. Kolbrún er mikil tilfinningavera þar sem bækur og höfundar þeirra eru annars vegar og er óspör á lof og last. Kolla varð goðsögn á þessu sviði á sínum tíma þegar hún tók upp á því að gefa hauskúpu sem lægstu einkunn í stað þess að halda...
SlúðurSéra Friðrik selur ekki Einhver stærstu vonbrigðin í jólabókaflóðinu hljóta að vera meinleg örlög bókar Guðmundar Magnússonar sagnfræðings um séra Friðrik Friðriksson. Bókin, Séra Friðrik og drengirnir hans, nær ekki inn á metsölulista þrátt fyrir gífurlega auglýsingu og mikið umtal. Egill Helgason lyfti bókinni í hæstu hæðir í Kiljunni og gerði þar út á þann hluta bókarinnar sem lýsir meintri barnagirnd æskulýðsleiðtogans. Mikil umfjöllun...
SlúðurKristján grét Óperusöngvarnn Kristján Jóhannsson hefur gengið í gegnum mikla erfiðleika á undanförnum misserum. Hann fékk krabbamein og barðist upp á líf og dauða. Söngvarinn sagði af einlægni frá baráttu sinni í samtali við Sigurlaugu Jónasdóttur á Rás 1. Hann sagði sjúkdóminn hafa gengið mjög nærri sér og að hann hafi bugast og grátið. Það hafi aldrei hvarflað að sér fyrr að...
SlúðurFannar í lífsháska Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindvíkinga, hefur meiri og erfiðari reynslu af jarðskjálftum en flestir aðrir. Hann sagði frá því í forsíðuviðtali Mannlífs þegar hann bjó á Hellu og Suðurlandsskjálftinn dundi yfir. Hillur á skrifstofu hans köstuðust til og hann horfði á helminginn af vatni sundlaugarinnar takast á loft og lenda utan laugar. Löngu seinna flutti hann til Grindavíkur og hefur gengið...