SlúðurÖkumaður með piparúða Hafnarfirði – Ólöglegur innflytjandi með dóp fangelsaður – Lögreglan fangelsaði mann sem dvelur ólöglega í landinu. Afskipti voru höfð af honum vegna gruns um að hann hefði fíkniefni í sinni vörslu. Við nánari skoðun reyndist einstaklingurinn í ólöglegri dvöl í landinu. Hann var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Ökumaður undir annarlegum áhrifum missti stjórn á bifreið sinni og hafnaði út í snjóruðningi þar sem bifreið hans...
SlúðurSkæruliðinn Arna Arna McClure, lögfræðingur Samherja og náinn samstarfsmaðúr Þorsteins Más Baldvinssonar forstjóra, er ósátt með að vera með stöðu grunaðs manns í Samherjamálinu sem snýst um meintar mútur og fleiri lögbrot. Það er til merkis um taugaveiklun meðal Samherjamanna að hún hefur leitað til dómstóla til að fá rannsókn á sér fellda niður. Arna er aðallega þekkt út á við sem...
SlúðurMargdæmd Sólveig Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, situr uppi með það að vera margdæmd eftir meðferð sína á starfsfólki stéttarfélagsins. Í gær dæmdi félagsdómur Gabríel Benjamin, fyrrverandi trúnaðarmanni Eflingar, í hag eftir að hann fór í mál við félagið vegna brottreksturs. Verkalýðsféaginu er gert að greiða honum málskostnað vegna brotsins. Sólveg Anna lætur það ekkert á sig fá að fá enn einn...
SlúðurJón veldur vandræðum Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra fer hamförum í embætti sínu. Tvo draumaverkefni hans eru að vopna lögregluna og halda sem flestum flóttamönnum heima hjá sér eða í öðrum ríkjum. Gassagangurinn í Jóni er það mikill að mörgum finnst nóg um. Þetta skýrist þó af því að hann er í óða önn að sanna sig sem nauðsynlegan fyrir þeim sem aðhyllast tilteknar öfgar...
SlúðurAgnes fann útleið Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, hefur þótt stríðsglöð með endemum. Innan kirkjunnar hefur verið vaxandi óánægja með hana og verklag hennar og stallara hennar, Péturs Markan biskupsritara. Prestar og starfsmenn kirkjunnar hafa verið hraktir úr embættum sínum og fjármál kirkjunnar eru í ólagi. Þá hefur fjöldi fólks sagt sig úr Þjóðkirkjunni og leitar annarsstaðar að ljósinu. Helstu andstæðingar Agnesar hafa leitað...
SlúðurSamherjaskaup Sigurjóns Mikil umræða hófst um meinta spillingu eftir að upplýst var að félag Kristjáns Vilhelmssonar, aðaleiganda Samherja, væri framleiðendi Áramótaskaupsins. Ýmsar vangaveltur voru uppi í netheimum um að Sigurjón Kjartansson og félagar hans myndu annað tveggja; fara mjúkum höndum um Samherjamenn eða sneiða alveg hjá hinu umdeilda fyrirtæki sem er grunað um ýmis afbrot á heimsvísu. Mörgum kom því á óvart...
SlúðurErfðaprinsinn Einar Yfirtaka Ísfélagsins í Vestmannaeyjum á Ramma á Siglufirði hefur vakið mikla athygli. Með þessu þenur Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi félagsins, enn út veldi sitt og nær forræði yfir veiðiheimldum og Siglfirðinga. En það vekur athygli að fram á sjónarsviðið í ættarveldinu í Eyjum stígur fram sonur Guðbjargar, erfðaprinsinn Einar Sigurðsson, sem ber nafn afa síns, Einars ríka Sigurðssonar. Svo virðist sem...
SlúðurGuðbjörg datt í lukkupott Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, datt heldur betur í lukkupottinn á aðventunni þegar samkomulag náðist um að félaga hennar eignaðist Ramma á Siglufirði. Guðbjörg er einnig aðaleigandi Morgunblaðsins sem upplýsti að eigendur Ísfélagsins ættu tæplega 70 prósent í sameinuðu félagi. Áform eru um að Ólafur Marteinsson, fráfarandi forstjóri Ramma, verði útibússtjóri á Siglufirði en Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins, leiði...
SlúðurSamherjabarn tekur stökkið Kynslóðaflétta er í gangi hjá Samherja þessa dagana. Elsta samherjabarnið, Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Öldu Seafood í Hollandi, tók stökkið og keypti félagið út úr Samherja Holding. Þar með er erlend starfsemi sjávarútvegsrisans komin í hendur sonar Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra hins umdeilda fyrirtækis sem stendur í ströngu erlendis vegna meintar lögbrota. Mogginn hefur eftir Þorsteini Má að erlend starfsemi félagisins...
SlúðurÞorsteinn Már móti mútum Ársreikningur Samherja Holding, sem Þorsteinn Már Baldvinsson leiðir, inniheldur sterkan siðaboðskap. Þar er tekið af skarið með að fyrirtækið umberi ekkert svindl og svínarí. Hjá Samherja Holding er mikilvægt að unnið sé af heilindum og „við líðum ekki spillingu af neinu tagi,“ vitnar Kjarninn í ársreikninginn. Þessi boðskapur Þorsteins Más og félaga er ekki síst merkilegur í því ljósi að...
SlúðurSlúðurdrottning Íslands Marta Jónasdóttir, ritstjóri Smartlands og meðritstjóri Davíðs Oddssonar á Mogganum, er einkar snjöll að fiska upp hjónaskilnaði og aðrar hamfarir í lífi fólks og lyfta þar með lestri Moggans. Nýverið fiskaði hún upp skilnað skemmtikraftsins Ara Eldjárns og eiginkonu hans, Lindu Guðrúnar Karlsdóttur ljósmyndara. Gjarnan er staðlað, klisjukennt niðurlag á skilnaðarfréttum Mörtu Maríu til að réttlæta umfjöllunina. “Smartland óskar þeim...
SlúðurHræsni biskupsins Athygli vakti að Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, notaði jólahugvekju sína til að fjargviðrast yfir því að þöggun væri í gangi varðandi Guð hinna kristnu. „Það hefur verið þöggun í gangi varðandi Guð kristinna manna,“ sagði Agnes sem er sjálf þekkt fyrir þöggun í ýmsum málum og er gríðarlega umdeild innan sem utan Þjóðkirkjunnar. Fjöldi fólks hefur snúið baki við Þjóðkirkjunni...