Óli segir forstjóra Samherja hafa komið sér frá störfum: „Hann fór fyrir hópnum“
Seinni hluti viðtals Sjóarans við Ólaf Jónsson, Óla Ufsa, fer í loftið í kvöld. Óli er þekktur aflamaður sem sló hvert metið af öðru í skipstjóratíð sinni. Viðurnefni sitt hlaut hann vegna þess hve lunkinn hann var við veiðar á ufsa. Óli er þekktur fyrir virka andstöðu sína við kvótakerfið. Hann hefur kallað yfir sig reiði sumra þeirra sem eiga mikið undir kvótanum.