Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Þorsteinn Már kom í veg fyrir kaup Óla á Engeynni: „Þú tekur bara Engeyna!“

Ólafur Jónsson eða Óli Ufsi eins og hann er alltaf kallaður, fyrr­verandi skip­stjóri lætur allt flakka í nýju upplýsandi viðtali við Reyni Traustason í hlaðvarps­þættinum Sjóarinn. Segir hann meðal annars frá því hvernig var komið í veg fyrir að hann gæti keypt sér togara en hann hafði verið afar gagn­rýninn á ríkjandi öfl í sjávar­útveginum.

Segir hann frá því er hann rakst á Árna Vilhjálmsson, þáverandi aðal­eiganda og stjórnar­formann HB Granda í skötu­veislu daginn fyrir Þorláks­messu hjá Ögurvík. Árni spurði Óla hvað hann væri að bauka og fékk að heyra að hann hefði það verkefni að koma sér upp frysti­togara.

„Þú tekur bara Engeyna!“ svaraði Árni. „Við erum að reyna að koma Engeynni í einhver verkefni, þú tekur bara Engeyna! Við gerum bara samning, þú hittir okkur bara á morgun, Þorláks­messu upp á skrif­stofu,“ sagði Árni og kallaði til sína menn sem þar voru og ákveðið var að hittast daginn eftir og ganga frá kaupunum.

Óli sagði Reyni að þeir hafi svo hisst daginn eftir að ákveðið að ganga frá þessu milli jóla og nýárs. En svo fór aldrei.

„Fyrsta frétt að morgni mánudagsins eftir jól: Þorsteinn Már Baldvinsson, Samherji, keypti Engeyna fyrir 40 milljónir dollara! Þessi skip voru á gangverði 30 milljóna. Það er kannski hægt að réttlæta verðið af því að HB Grandi hafði gert svo mikið fyrir hann. Hafði sem sagt breytt honum í síldar­frystiskip. En hann keypti skipið á 40 milljónir dollara en reif allt úr honum úti í Þýska­landi og gerði hann að venju­legum makríl­togara.“

Árni gekk á bak orða sinna gagnvert þér?

„Árni fékk aldrei að vita þetta. Það var bara gengið frá kaupunum yfir jólin og Árni fær ekkert að vita fyrr en búið er að ganga frá kaupunum og hann á skipið.“

Hlustaðu á viðtalið við Óla í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sjóarinn

48:09
InnlentSjóarinn

Unnar Gísli heldur alltaf í trúna: „Þú ert trúlaus stuttan tíma í sjónum“

Júníus Meyvant er tónlistar­maður sem flestir þekkja. Færri vita að hann heitir Unnar Gísli Sigur­mundsson og er borinn og barn­fæddur í Vestmanna­eyjum. Hann á að baki stuttan en magnaðan sjómanns­feril á togaranum Breka VE. Seinna lærði hann á gítar og hefur nú náð frægð víða um heim. Frægðin stígur honum ekki til höfuðs. Hann býr ásamt eiginkonu og börnum í...
48:09
InnlentSjóarinn

Fyrsta sjóferð Unnars Gísla misheppn­aðist illa: „Það er bara reykur út um allt“

Júníus Meyvant er tónlistar­maður sem flestir þekkja. Færri vita að hann heitir Unnar Gísli Sigur­mundsson og er borinn og barn­fæddur í Vestmanna­eyjum. Hann á að baki stuttan en magnaðan sjómanns­feril á togaranum Breka VE. Seinna lærði hann á gítar og hefur nú náð frægð víða um heim. Frægðin stígur honum ekki til höfuðs. Hann býr ásamt eiginkonu og börnum í...
48:09
MenningSjóarinn

Unnar Gísli útskýrir sviðs­nafnið: „Mér fannst Júníus vera svo lúðralegt nafn“

Júníus Meyvant er tónlistar­maður sem flestir þekkja. Færri vita að hann heitir Unnar Gísli Sigur­mundsson og er borinn og barn­fæddur í Vestmanna­eyjum. Hann á að baki stuttan en magnaðan sjómanns­feril á togaranum Breka VE. Seinna lærði hann á gítar og hefur nú náð frægð víða um heim. Frægðin stígur honum ekki til höfuðs. Hann býr ásamt eiginkonu og börnum í...
34:48
InnlentSjóarinn

Steinunn og Egill innsigluðu sambandið á siglingu: „Ákváðum að nú væri tími til að byrja saman“

Steinunn Einars­dóttir er nýjasti gestur Reynis Trausta­sonar í hlaðvarps­þættinum Sjóarinn. Steinunn var sjómaður um árabil á báti foreldra sinna. Steinunn hætti á sjó eftir að hún eignaðist seinni son sin, árið 2015, eftir að hafa verið á sjó í 12 ár. Hún segir Reyni frá því hvernig hún og eigin­maður hennar, skip­stjórinn Egill Ólafsson, innsigluðu samband sitt. „Hann er skipstjóra­menntaður...
34:48
MenningSjóarinn

Útgerð foreldra Stein­unnar lauk þegar snjóflóð féll á höfnina: „Ég er stoltur Flateyringur“

Steinunn Einars­dóttir er nýjasti gestur Reynis Trausta­sonar í hlaðvarps­þættinum Sjóarinn. Steinunn var sjómaður um árabil á báti foreldra sinna. Áralöng útgerðar­saga foreldra Stein­unnar, Guðrúnar Páls­dóttir og Einars Guðbjarts­sonar, endaði snögglega er snjóflóð féll á smábáta­höfnina á Flateyri árið 2020. Aðeins stóð einn bátur eftir af flota Flateyringa. „Þetta var rosalegt sjokk,“ segir Steinunn við Reyni þegar hann spyr hana út...
43:35
InnlentSjóarinn

Kristján missti allt í Hruninu: „Þegar maður vaknaði var allt farið“

Kristján Berg Ásgeirsson, eða Fiski­kóng­urinn eins og hann er gjarnan kallaður og eigandi Heitra potta, hefur verið þekktasti fisksali á Íslandi um árabil en hann hefur selt Íslendingum fisk í yfir þrjátíu ár. Frumlegar auglýsingar hans hafa gjarna vakið athygli og þá hefur hann oftar en ekki ratað í fjölmiðla vegna hinna ýmissa mála. Kristján Berg er nokkuð hispurs­laus á...
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi