Tolli Morthens entist ekki lengi í fyrsta túrnum: „Ég var svo sjóveikur, maður, alveg ferlega“
Gestur Sjóarans að þessu sinni er myndlistamaðurinn Tolli Morthens. Fyrstu kynni Tolla af Atlantshafinu var þegar hann var messagutti á Gullfossi árið 1971. Sú upplifun veitti honum kjarkinn í það að gerast sjóari á fiskibátum því hann hlyti að vera vanur; annað kom á daginn. Viðtalið má sjá hér í heild sinni á efnisveitu Mannlífs.