Artúr Bogason, fyrrum aflraunamaður, núverandi formaður og stofnandi Landssambands Smábátaeigenda er gestur Sjóarans. Viðtalið má nálgast í heild sinni á efnisveitu Mannlífs. Í dag, 12. júlí, voru strandveiðar stöðvaðar þar sem aflaheimildir höfðu klárast en þetta er fjórða árið í röð sem strandveiðar eru stöðvaðar áður en veiðitímabilið er á enda.