Aríel undirbjó sig fyrir inntökupróf í danska sjóherinn með því að lesa Andrés Önd á dönsku
Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs, flutti til Danmerkur þegar kona hans vildi fara þangað til náms. Þar ákvað hann að skrá sig í danska sjóherinn. Á þeim tíma var hann til sjós á frystitogaranum Vigra RE. Til að undirbúa sig undir inntökuprófið gerði hann eins og margir Íslendingar gerðu forðum og las Andrés Önd á dönsku á frívöktunum. Prófið gekk vel, hann gerðist sjóliðsforingi og gekk um tíma brúarvaktir.