Þorsteinn Ingimarsson var nokkrum sekúndum frá því að deyja þegar skip sökk: „Steini, komdu núna!“
Þorsteinn Ingimarsson kemur fram í tveimur af jólabókum ársins en hann var hársbreidd frá því að týna lífinu þegar Bjarmi VE-66 sökk á leið sinni til hafnar í Vestmannaeyjum árið 2002, en tveir af fjögurra manna áhöfn létust í slysinu. Atburðirnir gerðust í níu stiga frosti og brælu í febrúar en þegar skipið hóf að síða á hliðina var Þorsteinn í káetu að horfa á spennuþátt.