Ragnar Ingi var næstum hrokkinn í tvennt um borð í togara: „Ég öskraði en það heyrði enginn í mér“
Gestur Sjóarans að þessu sinni er ljóðskáldið og kennarinn Ragnar Ingi Aðalsteinsson. Ragnar er bróðir hagyrðingsins Hákons Aðalsteinssonar en að hans sögn gátu öll hans systkini ort enda var það tungumálið á heimilinu þegar hann var að alast upp.