Eftir Skuggabörn: Einar Örn sprautaði sig í æð með verkjalyfjum: „Kipptu bara handleggnum af“.
„Mín mistök voru að segja ekki nei; maður sprautar ekki verkjalyfjum í sig, sérstaklega ekki róandi töflum,“ segir Einar Örn Ásdísarson, sem fékk snemma viðurnefnið Einsi Glæpur. Einar var edrú þegar vinnsla Skuggabarna stóð og sagði sögu sína í þeirri von að verða þannig öðrum víti til varnaðar. Eins og kemur fram í myndinni féll Einar og var kominn aftur í vítahring neyslu og glæpa.