MannlífiðLitið um öxl – Forsíður ársins 202031. desember 2020 Það er gaman og áhugavert að líta yfir farinn veg þegar áramótin nálgast. Hús og híbýli heimsótti fjöldann allan af glæsilegum heimilum á árinu sem er að líða og forsíður ársins bera þess glögglega merki. Hérna tökum við smá upprifjun og skoðum forsíður Húsa og híbýla á árinu 2020.
FólkEgill Helgason hugsar ekki of mikið um fortíðina eða framtíðina31. desember 2020 Egill Helgason, sjónvarpsmaður, segist vera kominn á þann aldur að finnast áramót ekki lengur skemmtileg. Hann strengir ekki áramótaheit, en hefur á árinu sem er að kveðja lagt áherslu á gönguferðir, sem lið í því að ná sér eftir erfiðan tíma fyrrihluta ársins, og hyggst herða enn gönguna á nýja árinu. „Þegar maður er kominn á minn aldur finnst manni...
InnlentHverfisbúar brjálaðir út í krakkaorma vegna flugelda: „Dauðvorkenni fólki með ungabörn og gæludýr“30. desember 2020 Grafarvogsbúar eru brjálaðir út í ungmenni sem sprengja flugelda í hverfinu í tíð og ótíma. Sumum íbúunum finnst grunsamlegt allt flugeldamagnið sem sprengt hefur verið síðustu daga. Selma nokkur, íbúi í Grafarvogi, stofnar til umræðu inni á hverfishópi á Facebook. „Tuðarinn mættur. En annar dagur flugeldasölu og annað kvöldið sem þessar þvílíku hvell bombur sem einhverjir krakka ormar eru að...
MannlífiðJólin eru í hátíðarblaði Húsa og híbýla – Glys og glamúr um hátíðarnar9. desember 2020 Hátíðarblað Húsa og híbýla er komið út. Blaðið er stútfullt af fallegum innlitum, hugmyndum, innblæstri og viðtölum við fagurkera. Þetta er blaðið sem kemur ykkur í hátíðarskap. Við förum víða í nýja blaðinu, til dæmis heimsækjum við hlýlegt og smart heimili á Dalvík og skoðum töff nýbyggingu í Reykjanesbæ þar sem hver hlutur hefur verið valinn af kostgæfni. Við hittum...
InnlentMarkmiðið var að komast í Skaupið6. janúar 2020 Fyrirlesarinn Alda Karen Hjaltalín segir það hafa verið markmið sitt að vera tekin fyrir í Áramótaskaupinu. Sá draumur rættist um áramótin þegar leikkonan Dóra Jóhannsdóttir fór með hlutverk Öldu í Skaupinu þar sem grín var gert að ráðleggingum hennar. Alda Karen hefur mælt með því að fólk kyssi peninga til að kalla meiri peninga til sín. Þá hefur hún einnig...
Innlent82 þúsund mál inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í fyrra2. janúar 2020 82 þúsund mál komu inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á árinu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í samantekt yfir helstu tölur árið 2019 frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í samantektinni kemur einnig fram að kynferðisbrotum heldur áfram að fjölga og eru tilkynningar 15%fleiri í ár en í fyrra. Fjölgunin er aðallega tilkomin vegna tilkynninga um kynferðislega áreitni og...
FólkFróðleikur um nýársdag1. janúar 2020 Janúarmánuður heitir eftir rómverska guðinum Janusi, sem var guð upphafs og inngöngu. Janus hafði tvö andlit, annað vísaði fram og hitt aftur og gat hann því horft bæði aftur og fram í tímann. Á miðöldum færði kirkjan nýársdag til 25. desember en síðar til 25. mars, til boðunardags Maríu. Á sextándu öld lagfærði Gregoríus páfi tímatalið og 1. janúar varð...
InnlentGleðilegt nýtt ár!31. desember 2019 Ritstjórn Mannlífs óskar lesendum gleðilegs árs með þökk fyrir samfylgdina á árinu og góðar viðtökur við blaðinu og vefnum. Kæru lesendur við þökkum ykkur fyrir samfylgdina og fjölmörg góð skilaboð og viðbrögð við viðtölum okkar og greinum á árinu 2019. Við hlökkum til að færa ykkur nýtt efni á árinu 2020 og vonum að þið eigið góð áramót framundan. Gleðilegt...
FólkHártískan fyrir árið 202031. desember 2019 Nú þegar áramótin nálgast er gaman að spá í tískustraumana sem eru fram undan. Vefurinn Refinery29 fékk hárgreiðslumanninn Garren og hárgreiðslukonuna Mandee Tauber til að segja frá því sem verður vinsælt í hártískunni á nýju ári. Garren byrjar á að nefna tvö trend sem verða áberandi. Það er meðal annars svokölluð bob-klipping í styttri kantinum þar sem skarpar línur eru...
FólkFyrirboðar, fyrirheit og markmið31. desember 2019 Áramót marka lok hins gamla og nýtt upphaf. Nýársnótt er töfrum slungin og þá taka kýrnar til við að tala og álfar að flytja búferlum. Á mörgum heimilum er það fastur liður að kíkja í bolla eða leggja spil á gamlárskvöld. Margir leggja einnig mikið upp úr því að muna þá drauma sem þá dreymir á nýársnótt en svo eru hinir sem strengja áramótaheit og vona að þeim endist viljastyrkur til að standa við það að minnsta kosti út janúar.
FólkSkaupið31. desember 2019 Áramótamótaskaupið hefur notið ómældra vinsælda frá því að það birtist fyrst á skjám landsmanna árið 1966. Áramótaskaupið, eða Skaupið, kom fyrst á skjáinn árið sem Ríkissjónvarpið var stofnað, 1966, og var þá strax á eftir áramótaþætti Ríkisútvarpsins. Myndband
FólkKomi þeir sem koma vilja31. desember 2019 Samkvæmt íslenskri þjóðtrú var talið að álfar og huldufólk flyttu búferlum og fyndu sér nýjan bústað á áramótum. Þá var talið að álfarnir og huldufólkið ættu til að koma við á bæjum og því skapaðist sú hefð að fólk þreif húsakynni sín hátt og lágt. Voru ljós látin loga í öllum hornum og húsfreyjan gekk um bæinn að verki loknu... Myndband