Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jólin eru í hátíðarblaði Húsa og híbýla – Glys og glamúr um hátíðarnar

Jólin eru í hátíðarblaði Húsa og híbýla – Glys og glamúr um hátíðarnar

Hátíð­ar­blað Húsa og híbýla er komið út. Blaðið er stút­fullt af fal­legum inn­litum, hug­myndum, inn­blæstri og við­tölum við fag­ur­kera. Þetta er blaðið sem kemur ykkur í hátíð­ar­skap.

Við förum víða í nýja blað­inu, til dæmis heim­sækjum við hlý­legt og smart heim­ili á Dalvík og skoðum töff nýbygg­ingu í Reykja­nesbæ þar sem hver hlutur hefur verið val­inn af kost­gæfni.

Við hittum á Ingunni Emblu Axels­dóttur og fengum að for­vitn­ast um hvernig hún skreytir alla jafna fyrir jólin.

„Heimilið mitt er í fullum skrúða allan árs­ins hring. En þegar ég legg í auka­legar hátíð­ar­skreyt­ingar hef ég ein­stak­lega gaman að litlum jólatrjám sem geta síðar flokk­ast undir potta­plöntu eftir hátíð­arnar,“ segir Ingunn meðal ann­ars.

Ingunn Embla. Mynd / Hákon Davíð

Við kíkjum þá í heim­sókn til Hörpu Gríms­dóttur sem býr í glæsi­legu húsi í Garðabæ. Það var afar hátíð­legt að lit­ast um hjá Hörpu þegar okkur bar að garði. Spurð út í hvernig hún skreyti yfir­leitt fyrir hátíð­irnar seg­ist hún vera fremur minimal­ísk þegar kemur að skreyt­ingum. „Ég skreyti ekk­ert sér­stak­lega mikið fyrir jólin en mér finnst alltaf skemmti­legt að nota lif­andi greinar, hýasintur og amaryllis í skreyt­ingar,“

Fallegt heim­ili í Reykja­nesbæ þar sem lát­lausar jóla­skreyt­ingar njóta sín vel í kringum hátíð­irnar. Mynd / Hákon Davíð

Sunna Dögg, vöru­hönn­uður og lista­kona, hann­aði póst­kortið fyrir okkur en hún hefur komið víða við á lista- og hönn­un­ar­ferli sínum. Hún lýsir sér sem sæblárri KitchenAid-hræri­vél á hæsta snún­ingi; upp­full af hug­myndum, ósigrum og smá­sigrum.

Við kíkjum í heim­sókn á vinnu­stofu Sunnu Daggar. Mynd / Hallur Karlsson

Við heim­sækjum Ingi­björgu Hönnu Bjarna­dóttur hönnuð sem býr í fal­legu Sig­valda­húsi í Hvassa­leit­inu ásamt manni sínum Jóni Trausta Kárasyni og þremur börnum. Fjöl­skyldan hefur búið í hús­inu í eitt og hálft ár og unnið hörðum höndum að því að gera húsið að sínu.

Heima hjá Ingi­björgu Hönnu. Mynd / Hallur Karlsson

Í blað­inu er svo einnig að finna inn­lit á heim­ili Karenar Óskar inn­an­húss­ráð­gjafa og Sóleyjar sem starfar sem við­skipta­stjóri hjá Gallup. Karen lýsir stíl þeirra sem klass­ískum undir skand­in­av­ískum áhrifum. „Ég nota mest­megnis jarð­liti eins og grænan, brúnan, rauð­brúnan og gráan í bland við sterk­ari liti í fylgi­hlutum og leyfi grunn­inum að vera frekar hlut­lausum og not­ast þá mest við nátt­úru­leg og end­ing­ar­góð efni.“

Þetta og svo miklu meira í fal­lega hátíð­ar­blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni