Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fyrirboðar, fyrirheit og markmið

Áramót marka lok hins gamla og nýtt upp­haf. Nýársnótt er töfrum slungin og þá taka kýrnar til við að tala og álfar að flytja búferlum. Á mörgum heim­ilum er það fastur liður að kíkja í bolla eða leggja spil á gamlárs­kvöld. Margir leggja einnig mikið upp úr því að muna þá drauma sem þá dreymir á nýársnótt en svo eru hinir sem strengja ára­móta­heit og vona að þeim end­ist vilja­styrkur til að standa við það að minnsta kosti út jan­úar.

Fyrirboðar, fyrirheit og markmið
Gæta verður þess að hafa pen­inga í vas­anum þegar nýtt ár gengur í garð því ann­ars verða menn blankir allt árið.

Hvort sem menn trúa á for­lög eða mátt sinn og megin er það skemmti­legur sam­kvæm­is­leikur að leita svara í spila­stokk, bolla eða draum­táknum. Bókin Fyr­ir­boðar, tákn og draum­ráðn­ingar eftir Símon Jón Jóhanns­son veitir mönnum færi á að skoða ýmis­legt tengt ára­mótum og öðrum tíma­mótum. Lítum á nokkur atriði af þeim sem standa til boða á nýársnótt:

Stillt og bjart veður á gaml­árs­dag er fyr­ir­boði þess að næsta ár verði gott.
Vont veður á nýárs­dag boðar storma á kom­andi ári.
Sé í manni ólund um ára­mót verður árið erfitt en líði manni vel verður árið far­sælt.
Gæta verður þess að hafa pen­inga í vas­anum þegar nýtt ár gengur í garð því ann­ars verða menn blankir allt árið.
Það sem menn gera á nýárs­dag munu þeir gera oft á kom­andi ári. Þess vegna er gott
fyrir menn að kyssa ein­hvern svo þeir verði kysstir oft næsta árið, eða klæð­ast nýjum fötum því þá eign­ast þeir margar nýjar flíkur á árinu.
Menn eiga að var­ast að gefa gjafir á nýárs­dag eða fara með eitt­hvað burtu af heim­il­inu. Þá tapa þeir ein­hverju á árinu.
Komi dökk­hærður karl­maður fyrstur inn á heim­ilið eftir mið­nætti á gamlárs­kvöld boðar hann gott en það er ills viti komi ljós­hærður maður fyrstur inn á heim­ilið á nýhöfnu ári og hræði­legt sé við­kom­andi rauð­hærður. Það boðar einnig illt ef konur eða rang­eygðir eru fyrstu gestir á nýársnótt.
Það er óláns­merki að hengja upp daga­tal fyrir næsta ár áður en klukkan slær tólf á gamlárs­kvöld.
Svo er að marka allt sem menn dreymir á nýársnótt.

Sumir vilja gera upp öll gömul mál á gamlárs­kvöld og greiða skuldir sínar. Aðrir strengja
heit og þau algeng­ustu snú­ast um að hætta ein­hverju:
Hætta að reykja.
Hætta að drekka.
Hætta að borða óhollan mat.

Það er um að gera að gæta þess að dökk­hærður maður gangi fyrstur inn um dyrnar á heim­il­inu þessi ára­mótin.

Næstal­geng­ast er svo að heita því að byrja á ein­hverju:
Byrja í rækt­inni.
Byrja í nýrri vinnu.
Byrja að spara.
Byrja nýtt líf.

Sumir eru svo ekk­ert sér­lega bjart­sýnir á mátt ára­móta­heita en þeir telja samt sem áður gott að lofa sér ein­hverju. Þeirra heit eru oft almenns eðlis eins og að vera góð/ur við sína nán­ustu, gæta þess að særa ekki aðra, sýna umhyggju­semi og gefa af sér. Það er gott að setja sér mark­mið og vinna ötul­lega að þeim og ára­mótin eru vissu­lega góð tíma­mörk að miða við. En það er alltaf best að ætla sér ekki um of og muna að guð mun ráða hvar við dönsum næstu jól.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina