FólkGirnileg samloka með þroskuðum banana10. ágúst 2020 Sumum finnst blettóttir bananar vera fallnir á tíma en það má ýmislegt gera úr þeim. Til dæmis er hægt að nota þá í bananabrauð eða frysta þá til að nota seinna í bananasjeik. Vikan gefur hér uppskrift að girnilegri samloku með þroskuðum banana, sem bæði er auðveld og rennur ljúflega niður.
MannlífiðTrefjaríkt og gott fíkjubrauð1. ágúst 2020 Fíkjutré koma víða við sögu í menningu og trúarbrögðum og á Kýpur til forna voru fíkjur tákn um frjósemi. Fíkjutré hafa verið ræktuð frá fornu fari í Asíu og við Miðjarðarhafið. Þurrkaðar fíkjur nefnast gráfíkjur en þær eru trefja- og hitaeiningaríkari en ferskar. Þær eru frábærar í bakstur og hér erum við með uppskrift af dásamlegu fíkjubrauði.
MannlífiðSumarleg sítrónukaka – einföld og skuggalega góð16. júlí 2020 Sítrónur eru sennliega á topp tíu listanum yfir uppáhalds hráefnið okkar hér á Gestgjafanum og fátt er betra en sítrónur í sumarmatinn hvort sem það er í sætmeti eða mat. Hér er ein afar bragðgóð og skemmtileg kaka sem einfalt er að skella og fá þannig sólina inn í tilveruna.
MannlífiðSjúklega góð sítrónubleikja á 15 mínútum – máltíðirnar gerast ekki einfaldari og betri!15. júlí 2020 Á þessum árstíma er vel við hæfi að hafa bleikju í matinn enda veiðist hún víða um þessar mundir en hún fæst einnig í flestum fiskverslunum. Þessi réttur er algert sælgæti en það er einfaldleikinn í honum sem er svo heillandi. Þeir sem vilja aftur á móti breyta til eða poppa uppskriftina upp, ættu að prófa að setja kryddjurtir eins og dill eða steinselju saman við og einnig er gott að setja ögn af kapers út á og smávegis hvítlauk og rautt chili-aldin. En ef hráefnið er gott þarf ekki að flækja þennan rétt.
MannlífiðSætt og gott – á núll einni24. júní 2020 Vinsæl sætindi á grillið eru bananar með súkkulaði enda auðveldur og þægilegur eftirréttur sem hentar flestum en hægt að útbúa ýmislegt fleira einfalt og gott á grillinu. Við lékum okkur að því að grilla epli og gerðum „öðruvísi“ útgáfu af grilluðum banana og getum óhikað mælt með báðum réttum.
MannlífiðGrillaðir bananar í möndluhjúp með sykurpúðum og súkkulaði23. júní 2020 Grillaðir bananar í möndluhjúp með sykurpúðum og súkkulaði. Fullkomið í bústaðinn.
MannlífiðUnaðsleg orkusprengja23. júní 2020 Banani er hinn fullkomni ávöxtur, orkusprengja sem gott er að hafa í nestisboxi. Þegar bananar fara að verða ólystugir og brúnir eru þeir bestir í bakstur og þá er um að gera að nýta þá í dásamlegar kökur og eftirrétti. Ef andinn er ekki yfir ykkur einmitt þá stundina er lítið mál að frysta banana og nota síðar í kökur...
MannlífiðEinfaldur og góður eftirréttur – bakaðar plómur með kókosflögum1. júní 2020 Þetta er einstaklega bragðgóður réttur og einfaldur að gerð. Hráefnið fær að njóta sín en ekkert jafnast á við litla eða stóra rjómaslettu til að fullkomna allt saman. Fyrirhafnarlítill réttur sem er fljótlegt að skella í þó svo að bökunartíminn sé í lengri kantinum.
MannlífiðEinfaldur og góður eftirréttur – bakaðar plómur með kókosflögum1. júní 2020 Þetta er einstaklega bragðgóður réttur og einfaldur að gerð. Hráefnið fær að njóta sín en ekkert jafnast á við litla eða stóra rjómaslettu til að fullkomna allt saman. Fyrirhafnarlítill réttur sem er fljótlegt að skella í þó svo að bökunartíminn sé í lengri kantinum.
MannlífiðBananakaka sem slær allstaðar í gegn7. apríl 2020 Sniðugt er að baka þessa köku þegar bananarnir ykkar eru á síðasta snúningi en þeir þurfa einmitt að vera vel þroskaðir til þess að fá gott bananabragð í kökuna. Ef þeir eru það ekki getur verið gott að setja 1 tsk. af vanilludropum út í deigið. Verði ykkur að góðu.
MannlífiðDöðlukaka með engifer og karamellu – bragðast best volg með þeyttum rjóma eða ís1. apríl 2020 Karamella fullkomin leið til þess að gera vel við sig og við mælum með þessari dásamlegu köku ef þið viljið slá í gegn. Hún bragðast best volg, borin fram með þeyttum rjóma eða jafnvel ís. Deigið er mjög þunnt og því verður kakan alveg sérstaklega blaut og gómsæt.
MannlífiðNæringarríkt bananabrauð með valhnetum, trönuberjum og fræjum28. mars 2020 Ekkert er betra en heimagerður matur og þar eru brauð ekki undanskilin.