HeimurCovid-19Sextíu settir i sóttkví vegna óðs manns14. mars 2020 Maðurinn brást ókvæða við þegar hann var handtekinn. Farþegar lestar sem var á leið frá Ósló til Björgvinjar í gærkvöldi hefur verið gert að fara í tveggja vikna sóttkví eftir að maður, sem ferðaðist með lestinni, gekk upp að fólkinu, andaði fram í það og sagðist vera smitaður af kórónaveirunni. Um er að ræða fimmtíu farþega en auk þeirra hefur...
InnlentCovid-19Þjóðleikhúsið fellir niður allar sýningar frá og með deginum í dag13. mars 2020 Þjóðleikhúsið hefur ákveðið að fella þegar í stað niður allar sýningar hússins í kjölfar ákvörðunar stjórnvalda um samkomubann. Þrátt fyrir að bannið taki ekki gildi fyrr en aðfararnótt mánudags hafa yfirmenn leikhússins ákveðið að fella niður allar sýningar helgarinnar. Í tilkynningu á vef Þjóðleikhússins segir: „Þar sem samkomubann hefur verið sett á í landinu þarf Þjóðleikhúsið, eins og aðrar sviðslistastofnanir,...
InnlentCovid-19Alls 126 smit staðfest13. mars 2020 Alls eru 126 COVID-19 smit staðfesThér á landi. Þessu greindi Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir frá á upplýsingafundi í Ráðherrahústaðnum í dag. Þeir sem hafa greinst með veiruna eru allir í einangrun en rúmlega 900 manns eru í sóttkví. Flest smitanna eru á höfuðborgarsvæðinu eða 121. 1188 sýni hafa verið tekin.
InnlentCovid-19Samkomubann sett á hérlendis13. mars 2020 Samkomubann hefur verið sett á hér á landi vegna COVID-19 kórónuveirunnar. Á blaðamannafundi sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra efndi til í Ráðherrabústaðnum, kom fram að samkomur verða takmarkaðar í fjórar vikur frá miðnætti 15. mars, aðfararnótt mánudags. Um er að ræða samkomur þar sem fleiri en 100 manns koma saman. Á viðburðum þar sem færri koma saman er gert ráð fyrir...
InnlentCovid-1912 þúsund búnir að skrá sig í sýnatöku13. mars 2020 Þúsundir Íslendinga bókuðu tíma í skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu eftir COVID-19 sjúkdómnum eftir að opnað var fyrir bókanir í gærkvöldi. Fljótlega þurfti að bæta við tímum vegna mikillar eftirspurnar. 12 þúsund höfðu bókað tíma klukkan níu í morgun og enn er opið fyrir bókanir. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Íslenskrar erfðagreiningar. Skimanir hófust í Turninum, Smáratorgi 3 í Kópavogi núna...
InnlentCovid-19Kári Stefánsson: „Mér finnst líklegt að veiran sé miklu útbreiddari“13. mars 2020 Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur allt eins líkur á að kórónaveiran sé mun útbreiddari en talið hefur verið og finnist í þeim sem eru með lítil eða engin einkenni. Eins og komið hefur fram ætlar Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, að láta skima fyrir kórónuveirunni hér á landi. Spurður hvort hann telji að veiran geti hugsanlega verið útbreiddari en talið hefur...
InnlentCovid-19Fá sjokk þegar þau heyra að þau séu með COVID-1913. mars 2020 Bryndís Sigurðardóttir, smitsjúkdómalæknir á Landspítalanum, segir sumt fólk fá „pínu áfall“ þegar það heyrir að það hafi greinst með COVID-19. Bryndís segir svo sumir hafa gert hálfpartinn ráð fyrir því að vera smitaðir. „Fólk er auðvitað búið að vera veikt og veit að það er að fara í sýnatöku,“ sagði Bryndís í samtali við Morgunvaktina á Rás 1 í morgun....
InnlentCovid-19Segir stjórnendur þurfa að íhuga að stöðva rekstur13. mars 2020 Jón Karl Ólafsson, stjórnarformaður TravelCo og fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, segir stjórnendur Icelandair Group mögulega þurfa að skoða að stöðva rekstur á meðan ferðabann bandarískra stjórnvalda vari. Hann segir stjórnendur félagsins annað hvort þurfa að skoða stöðvun á rekstri eða að draga framboð verulega saman vegna ferðabannsins. Þetta segir hann í samtali við Markaðinn í Fréttablaðinu. Hann segir ljóst að...
HeimurCovid-19Sophie með veiruna – Hjónin í einangrun13. mars 2020 Sophie Grégoire Trudeau, eiginkona Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur greinst með COVID-19. Þetta kom fram í tilkynningu frá skrifstofu forsætisráðherra í nótt. Þar kom fram að Sophie líði ágætlega. Fyrr um daginn hafði Justin Trudeau greint frá því að þau hjón og börnin þeirra þrjú væri í sóttkví og biðu eftir niðurstöðum rannsókna. Sjálfur hefur hann ekki fundið fyrir neinum...
InnlentCovid-19Saudia sker niður flug Atlanta13. mars 2020 Sádi-arabíska flugfélagið hefur aflýst öllu flugi á vegum Air Atlanta fram í maí, samkvæmt heimildum Mannlífs. Félögin sömdu í febrúar um viðamikið áætlunarflug til þriggja ára. Sá samningur hljóðaði upp á 40 milljarða króna.
HeimurCovid-19Frakkar loka öllum skólum um óákveðinn tíma – mesta heilbrigðiskrísa sem landið hefur staðið andspænis í eina öld12. mars 2020 Emmanuel Macron, forseti Frakklands, ávarpaði frönsku þjóðina klukkan átta í kvöld en þar tilkynnti hann að öllum skólum landsins yrði lokað um óákvðinn tíma eða svo lengi sem þörf krefur. Þetta segir hann nauðsylegar aðgerðir til að hefta útbreiðslu COVID-19 en flest tilfelli hafa greinst í Frakklandi á eftir Ítalíu eða 2876 tilfelli og 61 dauðsfall.
InnlentCovid-19Staðfest smit 117 talsins12. mars 2020 Staðfestum COVID-19 smitum hefur fjölgað í dag. Átta ný tilfelli af COVID-19 sjúkdómnum voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans nú í kvöld. Heildarfjöldi tilfella er því 117 er fram kemur á Facebook-síðu almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra. Þar segir að smitrakning sé í gangi.