InnlentOfbeldisseggur réðst á fangavörð og lögreglumenn – Þrír eftirlýstir menn grunaðir um húsbrot31. janúar 2025 Átta manns gistu fangageymslur í vegna ýmissa mála. Tveir þeirra voru handteknir vegna skemmdarverka. Þegar átti að færa annan þeirra í fangaklefa réðst viðkomandi á lögreglumenn og fangavörð með hnefahöggum. Hann var yfirbugaður og læstur inni. Ofbeldisseggurinn mun svara til saka þegar nýr dagur rís. Afskipti voru höfð af búðaþjófi vegna þjófnaðar og fjársvika í matvöruverslun. Þá var óvelkomnum vísað...
InnlentFjórir í faðmi lögreglu29. janúar 2025 Nóttin var með eindæmum róleg hjá lögreglu, ef marka má dagbók. Í morgunsárið gistu þó fjórir í faðmi lögreglunnar fyrir ótilgreindar sakir. Umferðaróhapp varð í austurborginni. Minniháttar slys á fólki. Lögregla brást við tilkynningu um menn í annarlegu ástandi á Seltjarnarnesi og veitti þeim tiltal. Eftir spjall við lögreglu héldu mennirnir sína leið og segir ekki meira af ferðum þeirra....
InnlentDólgur sparkaði í lögreglumann27. janúar 2025 Þrír drykkjuboltar voru með leiðindi við farþega í strætisvagni. Lögreglan mætti og skipaði þeim að yfirgefa vagninn og finna sér annan ferðamáta. Þeir hlýddu fyrirmælunum. Drukkinn einstaklingur var til vandræða á öldurhúsi í miðborginni. Sá ölvaði fékk skýr fyrirmæli um að yfirgefa staðinn en neitaði að verða við því. Hann sparkaði að lokum í lögreglumann. Dólgurinn var handtekinn og fluttur...
InnlentLeðurblakan flaug á brott26. janúar 2025 Innbrot var framið í fyrirtæki í austurborginni. Málið er í rannsókn. Bifreið var ekið á steyptan stólpa og umferðarskilti í miðborginni. Talið er að ökumaður bifreiðarinnar hafi ekki verið með fullu ráði. Hann var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá á hann einnig yfir höfði sér sektir fyrir að haga ökuhraða sínum ekki miðað við aðstæður...
InnlentManns með skammbyssu leitað í austurborginni – Gámaþjófur gripinn glóðvolgur á vettvangi26. janúar 2025 Lögreglan leitaðo að byssumanni í austurborginni í nótt. Tilkynnt var um manninn sem var að meðhöndla skammbyssu á almannafæri. Lögregla var með töluverðan viðbúnað eins og alltaf gerist í sambærilegum málum. Byssumaðurinn var horfinn, sporlaust af vettvangi þegar lögreglan kom. Hann fannst ekki þrátt fyrir leit. Málið er í rannsókn. Fjögurra bíla árekstur á Miklubraut. Allar bifreiðarnar voru óökuhæfar eftir...
InnlentSkemmdarverk á þinghúsinu25. janúar 2025 Skemmdarverk var unnið á Alþingishúsinu í dag. Spreyjað var á glugga þess og á styttu við húsið, skrifað „Gaza“. Ráðist var á rútubílstjóra í miðborginni að tilefnislausu. Lögregla stillti til friðar þegar slagsmálahundar tókust á í austurborginni. Gestur var rekinn út af hóteli þegar í ljós kom að hann átti ekki fyrir gistingunni. Tveir voru handteknir eftir að hafa farið...
InnlentMaður í hlandspreng eltur uppi af lögreglu- Ofbeldisseggur gerði alvarlega árás og náðist á fæti25. janúar 2025 Lögregla var kölluð til vegna líkamsárásar í austurborginni. Málið í rannsókn. Afskipti voru höfð af ökumanni sem var með of dökkar filmur í rúðum bifreiðar sinnar. Ökutæki boðað í skoðun. Maður varð ósjálfbjarga sökum ölvunar á almannafæri. Lögreglan kom til bjargar og fór með hann heim til sín. Ökumaður handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis. Ökumaðurinn var látinn...
InnlentÞrír í fangelsi vegna stórfelldrar líkamsárásar – Búðarþjófur með falsað ökuskírteini24. janúar 2025 Sex manns gistu í fangageymslu lögreglunnar í nótt. Þrír þeirra eru grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðborginni. Kallað var eftir aðstoð lögreglu vegna slagsmála. Þegar lögregla kom á vettvang var meintur árásarmaður farinn á braut. Hann fannst stuttu seinna með áverka eftir slagsmálin. Fórnarlömbin voru flutt á bráðamóttöku til aðhlynningar og allir þrír aðilarnir handteknir vegna málsins, grunaðir um stórfellda...
InnlentUngmenni skemmdi föt vegfaranda með flugeldi – Vitleysingur ók gegn rauðu ljósi23. janúar 2025 Alls voru 60 mál skráð í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðan klukkan fimm í morgun, samkvæmt dagbók hennar. Þar af voru 10 mál þar sem einstaklingur er kærður fyrir brot. Hér eru nokkur dæmi. Lögreglunni sem annast Austurbæ, Vesturbæ, miðborgina og Seltjarnarnes barst tilkynning um umferðarslys en meiðsli voru minniháttar. Er ökumaðurin annars bílsins grunaður um akstur á móti rauðu...
InnlentÖlvaður og án öryggisbeltis23. janúar 2025 Aðeins tveir gistu fangageymslur lögreglunnar í nótt. Helstu verkefni í gærkvöld og nótt sneru að ökumönnum sem gerðust brotlegir. Ökumaður var staðinn að því að tala í farsíma undir stýri. Ökumaðurinn á von á sekt upp á 40 þúsund krónur. Annar ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna í austurborginni. Sá brotlegi var látinn laus úr haldi...
InnlentÖlvaður ökumaður og búðarþjófar22. janúar 2025 Róleg nótt að baki hjá lögreglu. Helstu mál snerust um ökumenn sem fylgdu ekki reglum og lögum. Eldur kom upp í gámi í austurborginni. Minniháttar skemmdi. Grunur um íkveikju en gerandi ókunnur. Meintur ólöglegur innflytjandi var handtekinn í miðborginni. Mál hans er í rannsókn. Búðarþjófur var við gripdeildir í verslun í austurborginni. Mál hans var afgreitt á vettvangi. Ökumaður var...
InnlentBúðarþjófar um alla borg21. janúar 2025 Búðarþjófar héldu lögreglunni við efnið í gærkvöld. Þeir stunduðu iðju sína víð aum höfuðborgarsvæðið og voru gjarnan staðnir að verki. Þrír ökumenn voru stöðvaðir við akstur þar sem þeir voru að tala í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað. Hver þeirra þarf að greiða 40 þúsund krónur í sekt. Búðarþjófar voru staðnir að verki í þremur tilvikum í austurborginni....