InnlentGrímuklæddir þjófar birtust við útidyrnar um miðnætti – Ofbeldisseggur yfirbugaður og færður í járn2. júlí 2024 Fimm grímuklæddir menn gerðu sig heimakomna og reyndu að brjóta upp útidyrahurð á heimili fólks, laust eftir miðnætti í nótt. Heimafólk kallaði til lögreglu sem brá skjótt við og kom á vettvang. Þá höfðu hinir grímuklæddu lagt á flótta á bifreið. Lögregla stöðvaði þá stuttu seinna. Húsbrjótarnir voru handteknir og læstir inni í fangaklefa vegna gruns um þjófnað og húsbrot....
InnlentVankað fólk og ósjálfbjarga á ferli í miðborginni – Hávaðaseggur raskaði næturró á Grafarholti1. júlí 2024 Aðeins tveir einstaklingar gistu fangaklefa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina. Lögreglan átti þannig rólega nótt eftir nokkurt ónæði um helgina. Helszt var um að ræða fólk í annarlegu ástandi sem vankaðist um miðborgina. Sumir voru algjörlega út úr korti og fengu aðstoð til að komast heim. Aðrir náðu að ganga á brott þegar lögreglumenn bar að garð. Óljóst er hvaða...
InnlentTilkynnt um þjófnað á skóm úr Laugardalslaug – Gerandi ókunnur29. júní 2024 Helstu tíðindi LRH frá tímabilinu 05:00-17:00 eru þessi: Lögreglustöð 1 – Austurbær – Miðbær – Vesturbær – Seljarnarnes: Óvelkomnum manni í annarlegu ástandi vísað á brott úr hóteli í hverfi 101. Maður handtekinn í hverfi 101 fyrir brot á lögreglusamþykkt – laus að lokinni skýrslutöku. Tilkynnt um þjófnað á skóm úr Laugardalslaug – gerandi ókunnur. Tilkynnt um þjófnað úr verslun...
InnlentÓsjálfbjarga fólk litaði nóttina hjá lögreglu – Meintir misyndismenn í Mosfellsbæ27. júní 2024 Nóttin hjá lögreglunni litaðist nokkuð af konum í annarlegu ástandi. Tilkynnt um konu í annarlegu ástandi í Hlíðunum. Hún reyndist vera ósjálfbjarga og skert af viti. Hún var handtekin og læst inni í fangaklefa uns ástand hennar skánar. Nokkru síðar varð önnur kona í svipuðu ástandi á leið lögreglunnar í Múlunum. Lögreglan kom henni til bjargar. Óljóst er hvort um...
InnlentRæningi braust inn í kirkju og stal peningum – Glerbrjótur í Kópavogi24. júní 2024 Innbrot var framið í kirkju í Reykjavík í nótt. Ræninginn í guðshúsinu hafði á brott með sér peningakassa og hvarf sporlaust út í nóttina. Óljóst er hvort lögreglan hefur einhverjar vísbendingar um gerandann. Búðarþjófur hafði hraðar hendur í verslun í Árbæjarhverfi en var staðinn að verki. Þjófurinn reyndist vera í annarlegu ástandi og ekki með sjálfum sér. Hann var handtekinn...
InnlentTveir handteknir fyrir stórfellda líkamsárás – Bitu eyra af manni23. júní 2024 Lögreglan sat ekki auðum höndum í gærkvöldi og í nótt, frekar en fyrri daginn, samkvæmt dagbók lögreglunnar. Nokkuð var um tilkynningar um slagsmál í miðborginni en tveir aðilar voru handteknir grunaðir um stórfellda líkamsárás þar sem eyra var bitið af manni. Einstaklingur sem olli umferðaslysi stakk af vettvangi, ekki kom fram í dagbókinni hvort lögreglan hafi fundið manneskjuna. Töluvart var...
InnlentVopni beitt í alvarlegri líkamsárás í gærkvöldi – Hópslagsmál í miðborginni22. júní 2024 Verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru æði mörg í gærkvöldi og í nótt en alls voru 104 mál skráð frá 17:00 til 05:00. Sex voru vistaðir í fangageymslu lögreglunnar. Klukkan 00:43 barst tilkynning um búðarþjóf í miðbænum en þjófurinn réðist á öryggisverði í versluninni þegar hann var að staðinn að verki. Lögreglan var send á staðinn. Upp úr eitt í nótt...
InnlentBúðarþjófar gripnir um alla borg – Samvinnuþýður hávaðaseggur í Grafarvogi19. júní 2024 Málglaðir ökumenn á ferð um miðborgina voruu látnir svara til saka. Þrír slíkir voru stöðvaðir þar sem þeir voru að tala í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað. Mál þeirra voru afgreitt með sekt. Hver þeirra þarf að greiða 40 þúsund krónur. Búðarþjófar voru staðnir að verki í nokkrum verslunum í austurborginni. Lögreglan afgreiddi málin á vettvangi. Þriðja þjófnaðarmálið...
InnlentÍbúar fjölbýlishússins andvaka vegna hávaðaseggs – Seinheppnir innbrotsþjófar gripu í tómt18. júní 2024 Laust eftir miðnætti var maður stöðvaður í akstri grunaður um að vera ekki með sjálfum sér. Talið var að hann væri sekur um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hinn grunaði var handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem honum var dregið blóð í rannsóknarskyni. Laust eftir klukkan tvö í nótt varð íbúum fjölbýlishúss ekki svefnsamt vegna manns í annarlegu ástandi. Maðurinn...
InnlentEldur kviknaði í iðnaðarhúsi í Hafnarfirði í nótt – Partýglaðir borgarbúar höfðu hátt í heimahúsum17. júní 2024 Íbúar á höfuðborgarsvæðinu voru í miklum partýgír í nótt en áberandi mikill fjöldi hávaðakvartana barst lögreglu vegna samkvæma í heimahúsum í nótt, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Rétt fyrir hálf þrjú í nótt barst tilkynning um innbrot í heimahúsi í miðborginni en málið er enn í rannsókn. Í Hafnarfirði var ökumaður stöðvaður grunaður um að keyra fullur....
InnlentVeifaði byssu á svölunum og sérsveitin kölluð út – Dólgur barðist við lögreglumenn í miðborginni14. júní 2024 Lögreglan brá skjótt við þegar tilkynning barst um mann sem sagður var hafa veifað byssu fram af svölum. Í ljósi alvarleika málsins var óskað aðstoðar frá sérsveit ríkislögreglustjóra. Eftir nokkra upplýsingaöflun og vettvangsvinnu kom í ljós að maðurinn var með leikfangabyssu og því engum hættulegur. Ölvaður maður var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur fyrir að hafa með framkomu sinni og óspektum...
InnlentKolólöglegur og dópaður ökumaður með þýfi í Kópavogi – Innbrotsþjófur í Breiðholti13. júní 2024 Lögreglan í Kópavogi komst í feitt þegar hún stöðvaði ökumann í akstri. Margvísleg brot komu á daginn. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, bifreiðin á röngum skráningarnúmerum og ætlað þýfi með í för. Ökumaður og farþegi voru handteknir og vistaðir í fangageymslu. Þeir munu vakna í fangaklefa á fallegum sumardegi og þurfa að svara til saka. Í Kópavogi...