InnlentUnglingar vopnaðir exi léku lausum hala10. febrúar 2024 Hópur unglinga lék starfsfólk og viðskiptavini verslunar, í austurborg Reykjavíkur, grátt í gær. Síendurteknar tilkynningar barst lögreglu vegna atgangs og almennra leiðinda. Þegar lögreglan mætti fyrst á staðinn hafði hópurinn tvístrast. Einhverju síðar barst önnur tilkynning um hópamyndun ungmenna fyrir utan verslunina. Þeirra á meðal var einn vopnaður exi. Sá hinn sami var handtekinn af lögreglu og fluttur á lögreglustöð...
InnlentÖkuníðingur gripinn á 158 km/klst innanbæjar9. febrúar 2024 Einn var stöðvaður á brjálæðislegum hraða af lögreglunni í nótt, eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Viðkomandi var á nær tvöföldum hámarkshraða eða 158 km/klst þar sem hámarkshraði var 80 km/klst. Atvikinu sinntu lögreglumenn í stöð 4, sem sinnir Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi og á Kjalarnesi. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að ökumaðurinn...
InnlentDrukkinn og dópaður á felgunni8. febrúar 2024 Svo virðist sem nóttin hafi verið með rólegra móti hjá lögregunni á höfuðborgarsvæðinu. Rétt fyrir klukkan hálf tvö í nótt var ökumaður bifreiðar stöðvaður í akstri, grunaður um að aka undir áhrifum áfengis og vímuefna. Hinn grunaði hafði þá langt undir sig talsverða vegalengd – á öfugum vegarhelmingi. Jafnótrúlegt og það nú hljómar var auk þess að eitt dekk bifreiðarinnar...
InnlentInnbrotsþjófur nappaður á vettvangi7. febrúar 2024 Samkvæmt dagbók lögreglu var nóttin róleg. Á fjórða tímanum í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um innbrot í verslun. Lögreglumenn af Hverfisgötunni voru sendir á vettvang og er þá bar að garði gengu þeir fram á einstakling í óða önn við að eiga við inngang verslunarinnar. Var sá hinn sama í annarlegu ástandi. Málið var leyst á vettvangi. Rétt...
InnlentInnbrotsþjófar voru á ferli í nótt6. febrúar 2024 Lögreglu barst tilkynning upp úr klukkan tvö í nótt vegna innbrots í verslun á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla fór á vettvang en þjófarnir voru á bak og burt þegar þangað var komið. Síðar um nóttina, um klukkan hálf fjögur, barst lögreglu önnur tilkynning vegna innbrots en að þessu sinni hafði verið brotist inn í heimahús. Þá kemur fram í dagbók lögreglu að...
InnlentVímaður og fastur í snjóskafli á ótryggðum bíl4. febrúar 2024 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skráði 64 mál í nótt. Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og þurfti ýmsum verkum að sinna. Um klukkan fjögur í nótt barst tilkynning um meðvitundarlausan mann á götunni í miðborg Reykjavíkur. Þegar lögreglan mætti á svæðið mat hún stöðuna svo að um ölvun væri að ræða og gistir einstaklingurinn fangageymslu þar til ástand...
InnlentRáðist á dyravörð í miðbæ Reykjavíkur3. febrúar 2024 Ráðist var á dyravörð í miðbæ Reykjavíkur og þurfti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að mæta til aðstoða við málið. Árásarmaðurinn var handtekinn og vistaður yfir nótt í fangaklefa. Frá þessu er greint í dagbók lögreglu. Ekki liggur fyrir hvort árásarmaðurinn verður kærður fyrir árásina. Þá segir einnig í dagbókinni að lögreglan hafi þurft að sinna öðru útkalli á skemmtistað í bænum...
InnlentKona féll í hálku og stóð á öskrinu – Borgari ljóstraði upp um dópsala2. febrúar 2024 Lögreglu barst í dag tilkynning um konu sem var með óhljóðum eftir að dottið í hálku. Við nánari skoðun reyndist hún vera óslösuð. „Tilkynnt öskrandi konu utandyra, reyndist hún hafa dottið í hálkunni en var þó óslösuð,“ segir í dagbók lögreglu. Athugull borgari lét lögreglu vita af fíkniefnasala sem var á ferð í borginni. Lögreglan brá skjótt við og fann...
InnlentBugaðir starfsmenn höfðu samband við lögreglu í gærkvöldi en þetta var ástæðan2. febrúar 2024 Starfsmenn skemmtistaðar í Hafnarfirði höfðu samband við lögreglu seint í gærkvöld vegna einstaklings sem lét illa fyrir utan staðinn. Þegar lögregla kom á vettvang um klukkan hálf eitt í nótt var maðurinn enn á staðnum og neitaði að fara. Eftir nokkrar tilraunir lögreglu við að koma manninum heim var ljóst að hann var í of annarlegu ástandi og gisti því...
InnlentÓöruggur túristi ók eins og ölvaður ökumaður31. janúar 2024 Lögregla var kölluð út í gærkvöldi vegna slyss á Reykjanesbraut. Þar hafði fólksbíl og vöruflutningabifreið lent saman og var einn fluttur á slysadeild. Nokkuð var um útköll vegna umferðaróhappa meðal annars í hverfum 101, 113 og 104. Þá kemur fram í dagbók lögreglu að engin slys urðu á fólki. Um kvöldið hafði lögregla afskipti af ökumanni sem grunaður var um...
InnlentKarlmaður áreitti ungar stúlkur á Völlunum25. janúar 2024 Lögreglunni barst tilkynning í gær um ökumann sem áreitti ungar stúlkur í Hafnarfirði. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort maðurinn náðist en atvikið átti sér stað á Völlunum. Síðar um daginn sinnti lögregla útkalli í Garðabæ en þar var karlmaður í annarlegu ástandi. Sá hafði gengið á milli húsa og tekið í hurðarhúna. Þá handtók lögregla annan karlmann í...
InnlentRán og skemmdarverk framin í Hafnarfirði21. janúar 2024 Tvær tilkynningar bárust lögreglunni vegna unglinga í hópum sem brutu rúður í tveimur biðskýlum bæjarins. Þess auk barst tilkynning um rán. Ráðist var á ungan einstakling og hafður af honum fatnaður og önnur verðmæti. Samkvæmt Dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var talsvert um slys og óhöpp í umferðinni. Í Hlíðahverfi í Reykjavík skullu saman tvær bifreiðar með þeim afleiðingum að önnur...