InnlentEldur í íbúð í Breiðholti í nótt27. október 2023 Lögregla hafði afskipti af manni í hverfi 105 í gærkvöldi sem grunaður er um vörslu fíkniefna. Síðar um kvöldið barst lögreglu tilkynning um umferðaróhapp í sama hverfi en samkvæmt dagbók lögreglu urðu engin slys á fólki. Í miðbæ Reykjavíkur slasaðist einstaklingur eftir að hafa dottið af rafhlaupahjóli. Þá segir að viðkomandi hafi mögulega rotast við fallið og var hann fluttur...
InnlentÁhyggjufullur íbúi í Hlíðunum hafði samband við lögreglu eftir hann varð vitni af þessu25. október 2023 Lögreglu barst tilkynning í gærkvöldi vegna slagsmála í hverfi 108. Einn aðili var fluttur á bráðamóttöku en ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort viðkomandi hafi slasast alvarlega. Einn var handtekinn á vettvangi og vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. Síðar um kvöldið barst lögreglu önnur tilkynning um líkamsárás í hverfi 112 og um svipað leyti barst tilkynning um tvö...
InnlentÞjófur sem rændi söfnunarbauk hefði betur sleppt því – Dólgur í heimahúsi24. október 2023 Bíræfinn þjófur rændi söfnunarbauki úr verslun í miðborginni í gær. Lögreglumenn fóru strax á stúfana og fundu aðilann stuttu seinna. Hann hefði betur látið það ógert að ræna bauknum því á daginn kom að hann var eftirlýstur. Hann var umsvifalaust handtekinn og vistaður í fangaklefa þart sem hann bíður þess sem verða vill. Í miðborginni voru afskipti höfð af manni...
InnlentTveir stungnir í aðskildum hópslagsmálum22. október 2023 Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær aðskildar tilkynningar vegna hópslagsmála sem leiddu af sér hnífstungur. Annars vegar í miðbæ Reykjavíkur og hinsvegar í umdæmi lögreglunnar í Kópavogi og Breiðholti. Árásin í miðbænum átti sér stað á fimmta tímanum í nótt. Fram kemur að lögreglan hafi verið með talsvert viðbragð vegna árásarinnar en einn hlaut stungusár. Sá var fluttur...
InnlentÓður spreyjaði piparúða á grunlausa – Eldur á Digranesvegi21. október 2023 Óður maður spreyjaði piparúða á grunlausa dyraverði skemmtistaðar í miðbænum í nótt. Ósáttur mjög, ku meintur gerandi hafa brugðist til þess örþrifaráðs eftir að honum hafi verið meinuð innganga á skemmtistaðinn. Samkvæmt fréttum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var barst tilkynning um eld í nýbyggingu við Digranesveg í Kópavogi á þriðja tímanum í nótt. Töluvert tjón hlaust af eldinum og þurfti...
InnlentVopnaður og ógnandi maður í miðbæ Reykjavíkur20. október 2023 Lögreglu barst tilkynning um sofandi aðila í anddyri í heimahúsi í miðbæ Reyjavíkur í gær. Lögregla fór á vettvang og vakti manninn sem hélt sína leið. Seinna um daginn hafði vegfarandi samband við lögreglu og tjáði henni að hún hafði orðið vör við betlara við verslun í hverfi 101. Lögregla fór á vettvang og ræddi við meintan betlara. Í sama...
InnlentAlvarlegt bílslys í Breiðholti í nótt19. október 2023 Lögreglu barst tilkynning um alvarlegt umferðarslys seint í gærkvöldi. Slysið átti sér stað í Breiðholti þar sem tvær bifreiðar skullu saman en lögreglu var gert viðvart klukkan 23:32. Lögregla þurfti aðstoð slökkviliðs til þess að ná öðrum ökumanninum út úr bifreið sinni en báðar bifreiðarnar skemmdust talsvert. Þá telur lögregla sig vita hvernig slysið kom til en málið er í...
InnlentMisskilningur á hóteli endaði með lögregluaðstoð18. október 2023 Óskað var eftir aðstoð lögreglu í gær við að vísa manni út af hóteli. Þegar lögregla kom á vettvang sagðist maðurinn hafa bókað stærstu svítuna á hótelinu og var ósáttur með að hafa ekki fengið hana. Honum var í kjölfarið vísað út af lögreglu. Skömmu síðar tilkynnti vegfarandi um manneskju sem var að betla fyrir utan verslun. Lögregla fór á...
InnlentÖmurleg aðkoma í miðbænum þar sem þjófar höfðu brotið og bramlað17. október 2023 Lögreglu barst tilkynning um skemmdarverk í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að rúða hafði verið brotin í skartgripaverslun og munum stolið úr sýningarglugga sem sneri út að götunni. Ekki kemur fram hvort einhver liggi undir grun en málið er til rannsóknar hjá lögreglu. Um miðnætti stöðvaði lögregla ökumann sem grunaður var um akstur...
InnlentNágranni fékk nóg af hávaða frá unglingapartýi en þetta gerðist þegar lögregla mætt15. október 2023 Sjö aðilar gistu í fangaklefa lögreglu eftir nóttina en samkvæmt dagbók lögreglu var nokkuð um ölvun og slagsmál í miðbænum. Áhyggjufullur nágranni hringdi á lögreglu og tilkynnti um eftirlitslaust unglingasamkvæmi. Þegar lögregla kom á vettvang var stór hópur ungmenna utandyra og tóku þau á rás um leið og þau komu auga á lögreglubifreiðina. Húsráðandi kom af fjöllum og sagðist ekki...
InnlentDauðhræddir íbúar hringdu á lögreglu vegna karlmanns sem gekk berserksgang14. október 2023 Lögreglu bárust tvær tilkynningar í gærkvöldi um karlmenn sem höfðu verið til vandræða í miðbæ Reykjavíkur. Sá fyrri hafði valdið eignarspjöllum og var óviðræðuhæfur sökum ástands en sá seinni hafði hótað fólki. Báðir mennirnir voru handteknir og vistaðir í fangaklefa. Í hverfi 105 hafði lögregla afskipti af manni sem hafði gengið berserksgang og hrætt vegfarendur en kemur fram í dagbók...
InnlentÓhugnanlegt atvik í nótt þegar maður braut upp hurð í fjölbýlishúsi13. október 2023 Lögreglu barst tilkynning í gærkvöldi um bifreið sem stóð í ljósum logum í hverfi 105. Slökkviliðið sá um að slökkva eldinn og var bifreiðin dregin af vettvangi í kjölfarið. Ekki er vitað um eldsupptök að svo stöddu. Lögreglu bráust tvær tilkynningar í sama hverfi síðar um kvöldið. Fyrst var lögreglu gert viðvart um innbrot í fyrirtæki og stuttu síðar var...