InnlentAlfons færir sig yfir til Birmingham9. ágúst 2024 Íslenski landsliðsmaðurinn Alfons Sampsted er að yfirgefa lið sitt Twente í Hollandi og gengur til liðs við Birmingham á Englandi og talið undirritun samnings sé aðeins formsatriði. Samkvæmt fjölmiðlum í Hollandi æfði Alfons ekki með Twente í dag og verður ekki hluti af leikmannahóp liðsins sem mætir NEC í fyrstu umferð hollensku úrvalsdeildarinnar á morgun. Það er nokkuð ljóst að...
HeimurCrossfit-keppandi talinn hafa drukknað í miðri keppni – MYNDBAND8. ágúst 2024 Crossfit-keppandinn Lazar Ðukic er talinn vera mögulega látinn en er einn af þátttakendum heimsleikanna í Crossfit sem fara fram í Texas í Bandaríkjunum þessa stundina. Ekkert hefur sést til Ðukic síðan nálægt endastöð sundhluta keppninnar og er óttast hann hafi drukknað. Leitar- og björgunarsveitir eru að leita að honum í samstarfi við lögreglu staðarins en Ðukic er ekki fremst Crossfit-kappi...
InnlentAlbert sagður á leið til Fiorentina8. ágúst 2024 Íslenski knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er sagður vera nálægt því að ganga til liðs við ítalska knattspyrnuliðið Fiorentina en viðræður eru sagðar á lokastigi í ítölskum fréttamiðlum. Liðið endaði í 8. sæti í efstu deild Ítalíu á seinasta tímabili en liðið hefur endað í kringum miðja deild undanfarin áratug en náð ágætis árangri í Evrópukeppnum. Sumir töldu að Albert myndi ekki...
InnlentÓlympíufari handtekinn í París7. ágúst 2024 Ástralski ólympíufarinn Tom Craig er sakaður um að gera tilraun til þess að kaupa kókaín í París. Ólympíunefnd Ástralíu hefur staðfest þetta. Tom er 28 ára og keppti með íshokkí liði Ástralíu. ,,Ólympíunefnd Ástralíu staðfestir að leikmaður ástralska íshokkíliðsins er í haldi lögreglu eftir handtöku þann 6.ágúst síðastliðinn. Hann hefur ekki enn verið ákærður,” segir í tilkynningu frá nefndinni. Málið...
InnlentArnar rekinn – Varð eftir í Skotlandi2. ágúst 2024 Knattspyrnuþjálfarinn Arnar Grétarsson var rekinn úr starfi þjálfara karlaliðs Vals seint í gærkvöldi eftir að liðið tapaði illa fyrir hinu skoska St. Mirren í Sambandsdeildinni. Ekki nóg með það þá var um leið tilkynnt að Srdjan Tufegdzic, yfirleitt kallaður Túfa, hafi verið ráðinn þjálfari liðsins til næstu þriggja ára en snögg ráðning hans gefur til að kynna að brottreksturs Arnars...
InnlentSpánverjar óðir í Orra2. ágúst 2024 Knattspyrnukappinn Orri Steinn Óskarsson hefur staðið sig frábærlega að undanförnu með liði sínu FC Kaupmannahöfn og hefur árgangur hans með liðinu vakið athygli liða í spænsku úrvalsdeildinni. Í júlí bauð spænska liðið Girona 15 milljónir evra í Orra en var því tilboði hafnað og skrifaði Orri undir nýjan fjögurra ára samning við FC Kaupmannahöfn. Það virðist þó ekki ætla að...
InnlentEnn og aftur mannabreytingar hjá KR: „Ég er afskaplega glöð“1. ágúst 2024 Óskar Hrafn Þorvaldsson verður þjálfari karlaliðs KR í knattspyrnu á næsta tímabili. Óskar er talinn einn af bestu þjálfum landsins en hann hefur áður stýrt Gróttu og Breiðabliki hérlendis og Haugesund í Noregi. Óskar gerði Breiðablik að Íslandsmeisturum árið 2022 og tók svona Haugesund ári seinna en sagði upp störfum vegna samstarfserfiðleika við félagið. Hægt er að lesa tilkynningu KR...
InnlentÍslenskur dómari sakaður um hótanir: „Mér finnst þetta galið“1. ágúst 2024 Í gær áttust við Þróttur og Fjölnir í Lengjudeild karla í knattspyrnu og þótti leikurinn jafn og spennandi og endaði leikur með markalausu jafntefli en nokkuð sérstakt atvik átti sér stað fyrir leik að sögn Úlfs Jökulssonar, þjálfara Fjölnis. „Það er búið að stimpla okkur áður en að leikurinn byrjar. Hafsentarnir mínir tveir eru teknir afsíðis í upphitun af dómaranum....
InnlentAlbert Guðmundsson mögulega á leiðinni til Þýskalands31. júlí 2024 Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson gæti verið á leiðinni til Þýskalands ef marka má fréttir erlendra miðla undanfarna daga. Liðið VfB Stuttgart sem spilar í þýsku úrvalsdeildinni er sagt hafa mikinn áhuga á íslenska landsliðsmanninum en hann hefur verið orðaður við stórliðin Inter Milan, Juventus og Tottenham undanfarna mánuði. Greint var frá því nýlega að áhugi Inter Milan hafi þó minnkað eftir...
InnlentGuðlaug Edda datt illa af hjóli á Ólympíuleikunum – Endaði í 51. sæti31. júlí 2024 Íslenski Ólympíufarinn Guðlaug Edda Hannesdóttir lenti í því að detta illa af hjóli sínu þegar hún var að keppa í þríþraut en gerðist það á fimmta hring. Guðlaug féll niður um mörg sæti vegna þess en hún kláraði keppnina í 51. sæti tæpum 16 mínútum á eftir sigurvegaranum Cassandre Beaugrand en Guðlaug var í 39. sæti þegar hún féll. Í...
InnlentDraumur Tönju rættist: „Íþróttir eru mitt aðaláhugamál“29. júlí 2024 Tanja Tómasdóttir, umboðsmaður og lögfræðingur, hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Breiðabliks og tekur hún við starfinu af Eysteini Pétri Lárussyni en hann tekur við sömu stöðu hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Tanja hefur undanfarið ár unnið hjá TM Tryggingum og hún var fyrsta íslenska konan til að hljóta réttindi sem umboðsmaður knattspyrnumanna en hún afrekaði það árið 2014. „Það er mikill fengur...
InnlentNauðgunarmál Alberts setur möguleg félagsskipti í uppnám26. júlí 2024 Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson, leikmaður Genoa, hefur á undanförnum mánuðum verið orðaður við stórlið á Englandi og Ítalíu og ber helst að nefna Inter Milan, Tottenham og Juventus. Mestur áhugi virtist vera hjá Inter en samkvæmt ítalska blaðinu Corriere dello Sport hefur áhuginn á Albert minnkað umtalsvert eftir að Albert var ákærður fyrir nauðgun þó að fleiri hlutir spili inn í...