MenningBrasilískur söngvari lést á sviði í miðju lagi – MYNDBAND15. desember 2023 Sorglegur atburður átti sér stað á miðvikudagskvöldinu 13. desember en þá var brasilíski gospel-söngvarinn Pedro Henrique að syngja á sviði þegar hann hneig niður. Söngvarinn var í miklu stuði og var að syngja lagið Vai Ser Tão Lindo þegar hann virtist missa jafnvægið og féll aftur fyrir sig. Vinir Henrique komu honum til aðstoðar um leið á meðan áhorfendur horfðu...
MenningHerra Hnetusmjör og Sara eru trúlofuð – Sjáðu hringinn!15. desember 2023 Árni Páll Árnason og Sara Linneth Lovísudóttir Castañeda eru trúlofuð. Rapparinn Árni Páll, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör, fór á skeljarnar í gær og bað kærustu sína, Söru Linneth um að giftast sér. Og auðvitað sagði Sara já!. Sara birti ljósmynd af trúlofunarhring á fingri sínum í gær á Instagram en myndinni fylgdi eitt orð: „Já“ og tvö hjörtu. Parið...
MenningViltu vinna G-blettstitrara? – Glataðar ástir og misheppnuð stefnumót færa gott í kroppinn15. desember 2023 Mannlíf efnir til smásagnakeppni í tilefni af nýjum hlaðvarpsþáttum. Allir elska ást, en ástin er flókin, sóðaleg, berrassandi og oft og tíðum pínlega vonlaus. Nýjasti hlaðvarpsþáttur Mannlífs ber heitið Glataðar ástir. Í þáttunum munu þau Lára Garðarsdóttir og Björgvin Gunnarsson fjalla um ástarsögur sem allar eiga það sameiginlegt að vera glataðar. Fjallað verður um misheppnuð stefnumót, vandræðalegar uppákomur í tilhugalífinu,...
MenningNeyðarsöfnun fyrir börn á Gaza – Leggðu þín lóð á vogarskálarnar14. desember 2023 Neyðarástand ríkir nú fyrir botni miðjarahafs en þúsundir manna hafa látist í átökunum á síðustu vikum. Flestir hinna látnu eru sagðir vera konur og börn en átökin á svæðinu hafa stigmagnast eftir að sjö daga vopnahléi lauk þann 30.nóvember. Gríðarleg þörf er fyrir mannúðarstarf á Gaza og fjöldi barna eru á vergangi. Þegar átökin brutust út brást Barnaheill skjótt við...
MenningBig Bang Theory-stjarna greindist með krabbamein – Aldrei reykt sígarettur á ævinni13. desember 2023 Leikkonan og uppistandarinn Kate Micucci greindi frá því um helgina að hún hafi greinst með krabbamein í lungum. Hún deildi þessum upplýsingum með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlinum TikTok og en hún var í aðgerð til að láta fjarlægja krabbameinið. Samkvæmt Micucci gekk aðgerðin vel og að krabbameinið hafi greinst snemma. Það sem leikkonunni finnst furðulegast er að hún hefur aldrei... Myndband
MenningCardi B og Offset hætt saman: „Ég hef bara ekki vitað hvernig ég ætti að tilkynna heiminum þetta“12. desember 2023 Stjörnuparið Cardi B og Offset eru ekki lengur par. Rappararnir Cardi B og Offset eru hætt saman. Þetta tilkynnti Cardi B í beinni útsendingu á Instagram-reikningi sínum í gær. Viðurkenndi „Up“ söngkonan að hún hefði verið „á lausu í nokkurn tíma“ en hafi verið óviss hvernig hún ætti að segja aðdáendum sínum frá því. „Ég hef verið hrædd við að,...
MenningJennifer Aniston saknar Matthew Perry innilega: „Hann var ekki sárþjáður“12. desember 2023 Leikkonan Jennifer Aniston hefur greint frá því að hún hafi talað við Matthew Perry sama dag og hann lést. Aniston og Perry léku saman í þáttunum Friends og urðu miklir vinir eftir að hafa leikið í þáttunum. Perry lést 28. október í Los Angels fyrr á árinu en hann var 54 ára gamall. Í nýju viðtali sagði leikkonan geðþekka frá... Myndband
MenningVill alls ekki að eiginkonan fái sér Botox: „Engin bað um að líta út eins og hnefaleikakappi“12. desember 2023 „Eiginkona mín er mjög aðlaðandi 56 ára kona. Í mörg ár hefur hún viljað fara botox meðferðir. Undanfarið hefur hún talað meira um þetta vegna þess að henni finnst hún líkjast gamalli konu. Ég (og aðrir) halda áfram að segja henni hversu frábærlega hún lítur út, sérstaklega þegar hún klæðir sig upp,“ skrifar áhyggjufullur eiginmaður í dálknum Dear Abby á...
MenningSimmi Vill og synir áttu sinni árlega „feðga-jóladag“ – Sjáðu myndirnar12. desember 2023 Sigmar Vilhjálmsson átti sinn árlega „feðga-jóladag“ með sonum sínum þremur og sagði frá því á Instagram. Jólin nálgast óðfluga og jólastressið er mætt í öllu sínu veldi. Þess vegna er mikilvægt að stoppa á einhverjum tímapunkti og draga djúpt andann og gera svo eitthvað skemmtilegt með þeim sem standa þér næst. Og það er einmitt það sem rauðhærða sjarmatröllið frá...
MenningGugusar svellköld á frosnu vatni – Myndband12. desember 2023 Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir, jafnan þekkt sem Gugusar er algjört hæfileikabúnt. Ekki er nóg með það að hún kunni að semja og syngja lög því hún er einnig hörku skautakona. Gugusar hóf að semja tónlist aðeins 13 ára gömul en árið 2020 kom út hennar fyrsta plata, Listen To This Twice og í fyrra kom svo út platan 12:48 en sú...
MenningMinntist áttræðisafmælis Jim Morrison: „Það var á þeim degi sem ég kynntist konunni minni“11. desember 2023 Tónlistarmaðurinn Valur Arnarson skrifaði skemmtilega Facebookfærslu á dögunum í tilefni af því að Jim Morrison hefði orðið 80 ár 8. desember. Valur Arnarsson sem sungið hefur og spilað með hljómsveitum á borð við Sauðfé á mjög undir högg að sækja í landi Reykjavíkur, Fussumsvei og Systir Guðs, skrifaði rómantíska færslu á Facebook í fyrradag, í tilefni af 80 ára afmæli...
MenningÍsland sögusvið tölvuleiks sem er væntanlegur á næsta ári11. desember 2023 Ný stikla fyrir tölvuleikinn Senua’s Saga: Hellblade II var birt um helgina en leikurinn er framhald af Hellblade: Senua’s Sacrifice, sem kom út árið 2017 við mikið lof gagnrýnenda. Í stiklunni er íslenskt landslag í fyrirrúmi í nokkrum atriðum en Ísland er sögusvið leiksins. Hönnuðir leiksins eyddu mörgum vikum á Íslandi til að hjálpa sér að smíða umhverfi leiksins. Ekki... Myndband