InnlentCovid-19Enginn Emil í Kattholti: „Höfum ekki önnur ráð“19. desember 2021 Borgarleikhúsið hefur tekið þá ákvörðun að fella niður sýningar á Emil í Kattholti í dag. Ástæðan er sú að meðlimur leikhópsins er kominn í sóttkví. Borgarleikhúsið segist ekki eiga annarra kosta völ en að fella sýningarnar niður að svo stöddu. Leikhúsið harmar stöðuna sem upp er komin en tekur fram að miðasala muni finna nýjan sýningartíma fyrir þá gesti sem...
InnlentSigrún vonsvikin eftir leikhúsferð með börnin1. mars 2021 Sigrún Sía Benediktsdóttir fer ekki fögrum orðum yfir leiksýninguna um Gosa sem sýnd er í Borgarleikhúsinu um þessar mundir. Óánægju sína lætur hún í ljós í fjölmennum hópi á Facebook sem gengur undir nafninu Auðveldar mömmur. Margir meðlimir hópsins hafa tekið undir með Sigrúnu og segja lítið hafa verið í sýninguna lagt. Hulda nokkur segist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum...
InnlentSýningum á söngleiknum Níu líf frestað: „Þetta er ekki draumastaða“5. ágúst 2020 „Þetta er ekki óskastaða,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri Borgarleikhússins um þá staðreynd að óhjákvæmilegt sé að fresta sýningum á Níu líf vegna kórónuveirufaraldursins. Uppselt er á allar sýningarnar sem áttu að hefjast síðar í þessum mánuði. Brynhildur segir að á meðan tveggja metra reglan var valkvæð hefði verið hægt að sýna Níu líf en með hertum aðgerðum almannavarna þar sem...
InnlentNína Dögg leikur móður Júlíu27. júlí 2020 Leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir er gengin til liðs við Þjóðleikhúsið og mun leika tvö stór hlutverk á leikárinu, í Jólaboðinu og Rómeó & Júlíu. Nína Dögg lék Júlíu í rómaðri uppsetningu Vesturports sem sýnd var víða um heim árum saman en að þessu sinni eftirlætur hún Ebbu Katrínu Finnsdóttur hlutverk Júlíu en tekur sjálf við hlutverki móður hennar, Lafði Kapúlet....
InnlentHótað lífláti og nauðgun vegna ummæla um Kópasker og Raufarhöfn22. júlí 2020 Leikkonunni Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur var hótað lífláti og nauðgunum vegna ummæla hennar um veðurfar á Kópaskeri og Raufarhöfn. Leikkonan ætlar að kæra hótanirnar til lögreglu. „Ég er ýmsu vön þegar kemur að gagnrýni en þær hótanir sem mér hafa borist vegna þessa máls eru viðbjóðslegar. Það er eiginlega óhugnanlegast að sumar grófustu hótanirnar voru frá einstaklingum undir fullu nafni,“ segir...
InnlentKolbrún segir ummæli Þórdísar lýsa hroka20. júlí 2020 Forseti sveitarstjórnar Norðurþings telur ummæli sem meðlimur í Leikhópnum Lottu viðhafði um Raufarhöfn og Kópasker lýsa hroka gagnvart landsbyggðinni. Hún segist vera ánægð með að leikhópurinn skuli hafa beðist afsökunar. „Það er glatað að láta svona hluti út úr sér, þótt þarna sé verið að grínast,“ segir Kolbrún Ada Gunnarsdóttir, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, í samtali við Mannlíf, um ummæli sem...
InnlentHöfðu alltaf fulla trú á að hægt yrði að halda hátíðina4. júlí 2020 Það kom aldrei til greina að fresta eða aflýsa jaðarlistahátíðinni Reykjavík Fringe Festival að sögn hátíðarstjórans. Fjölbreytt dagskrá hátíðarinnar hefst í dag. Árlega jaðarlistahátíðin Reykjavík Fringe Festival hefst í dag og stendur yfir til 12. júlí. Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin fer fram. Í ár fer hátíðin fram með breyttu sniði vegna kórónuveirufaraldursins en aldrei kom til greina...
InnlentLeita að stelpum til að leika frægar vinkonur9. júní 2020 Þjóðleikhúsið leitar nú að tveimur stúlkum á aldrinum átta til tólf ára til að fara með hlutverk napólísku vinkvennanna Elenu og Lilu í fyrirhugaðri uppsetningu leikhússins á Framúrskarandi vinkonu sem byggir á Napólísögum Elenu Ferrante. Bækurnar hafa selst í milljónum eintaka um allan heim, meðal annars í íslenskri þýðingu Brynju Cortes Andrésdóttur, og sjónvarpsþættir sem gerðir eru eftir sögunum hafa...
InnlentForseti ÍslandsTryggvi býðst til að leysa Guðna af í kosningabaráttunni28. maí 2020 Leikarinn Tryggvi Rafnsson býðst til að aðstoða Guðna Th. Jóhannesson forseta Íslands í kosningabaráttunni sem er framundan. Hann birtir færslu í hópnum Stuðningsfólk Guðna Th. á Facebook þar sem hann tekur fram að hann sé til taks ef Guðna vanti einhverja aðstoð eða afleysingu í baráttunni. „Vinnum þetta saman,“ skrifar Tryggvi sem fór með hlutverk Guðna í áramótaskaupinu 2017 og...
InnlentBenedikt búálfur sigraði kosninguna11. maí 2020 Eftir jafna og spennandi netkosningu, þar sem áhorfendur fengu að velja næsta fjölskylduverk Leikfélags Akureyrar, er komin niðurstaða. Sigurvegarinn er söngleikurinn um Benedikt búálf eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson og tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Þrjú verk komu til greina; Benedikt, Móglí og Fíasól. Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, segir ljóst að öll þrjú verkin eigi sér tryggan aðdáendahóp enda hafi...
InnlentRobert de Niro vill leika Andrew Cuomo: „Hann gerir það sem forseti ætti að gera“7. maí 2020 Stórleikarinn Robert de Niro sparaði ekki stóru orðin þegar hann mætti í vídeóspjall hjá Stephen Colbert í spjallþættinum Late Night Show. Venju samkvæmt jós hann ókvæðisorðum yrir Donald Trump og frammistöðu hans í heimsfaraldrinum en átti hins vegar varla nógu sterk orð til að lýsa aðdáun sinni á Andrew Cuomo, borgarstjóra New York-borgar. „… hann stendur sig frábærlega,“ sagði leikarinn... Myndband
HeimurLjósin á Broadway slökkt – Öllum leikhúsum lokað13. mars 2020 Öllum leikhúsum á Broadway í New York hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna kórónaveirunnar. Ríkisstjóri New York-ríkis, Andrew Cuomo, tilkynnti í gær að öllum sýningum Broadway-leikhúsa yrði frestað um óákveðinn tíma til að framfylgja banni við samkomum með fleiri en fimmhundruð þátttakendum. Tónleikahúsið Carnegie Hall hefur sömuleiðis frestað öllum sýningum til 31. mars, að minnsta kosti, og Metropolitan Museum...