Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hótað lífláti og nauðgun vegna ummæla um Kópasker og Raufarhöfn

Hótað lífláti og nauðgun vegna ummæla um Kópasker og Raufarhöfn
Þórdís Björk Þor­finns­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Leikkon­unni Þórdísi Björk Þor­finns­dóttur var hótað líf­láti og nauðg­unum vegna ummæla hennar um veð­ur­far á Kópa­skeri og Rauf­ar­höfn. Leik­konan ætlar að kæra hót­an­irnar til lög­reglu.

„Ég er ýmsu vön þegar kemur að gagn­rýni en þær hót­anir sem mér hafa borist vegna þessa máls eru við­bjóðs­legar. Það er eig­in­lega óhugn­an­leg­ast að sumar gróf­ustu hót­an­irnar voru frá ein­stak­lingum undir fullu nafni,“ segir Þórdís Björk Þor­finns­dóttir, leik­kona og með­limur í leik­hópnum Lottu, í sam­tali við Frétta­blaðið, um morð­hót­anir og hót­anir um að vera nauðgað vegna ummæla sem hún lét falla um veð­ur­farið á Kópa­skeri og Rauf­ar­höfn. Bárust henni á annan tug skila­boða frá nafn­greindu fólki og ætlar hún að kæra hót­an­irnar til lög­reglu.

„Það er eig­in­lega óhugn­an­leg­ast að sumar gróf­ustu hót­an­irnar voru frá ein­stak­lingum undir fullu nafni.“

Leik­hóp­ur­inn Lotta, sem hefur verið að ferð­ast um landið með barna­leik­rit um Bakka­bræður, var staddur á aust­an­verðu land­inu um helg­ina og kom við á Rauf­ar­höfn og Kópa­skeri. Þar lét Þórdís Björk eft­ir­far­andi orð falla á Instagram: „Jæja þá erum við búin að koma á helv.. Kópasker. Keyrðum á Kópasker og Rauf­ar­höfn bara til að geta krossað það út af list­anum, mæli alls ekki með að koma hingað, bara alls ekki gera það.“

Sjá einnig: Kolbrún segir ummæli Þórdísar lýsa hroka

Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Þórdís, sem hafði líka fjallað með jákvæðum hætti um stað­ina tvo og þar á meðal hrósað mál­tíð á Rauf­ar­höfn og hrósað Heima­skauta­gerð­inu á staðnum, að um brand­ara hafi verið að ræða en hann hafi mislukk­ast. „Það sýnir sig kannski best að brand­ari hafi mislukk­ast þegar maður þarf að útskýra hann og sam­hengið. Ég hafði rætt við vini mína um að ég hlakk­aði til að skoða þessa bæi í fyrsta sinn, en svo tók ógeðs­legt veður á móti okkur. Hitinn rétt yfir frost­marki og hvín­andi rok og rign­ing.”

Skájskot af ummæl­unum fór í dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum og ollu fjaðrafoki á Facebook-síðu Lottu. Voru þau for­dæmd og auk þess bár­ust Þórdísi Björk fyrr­nefndar hót­anir um morð og nauðg­anir.

„Þessi tvö skjá­skot í engu sam­hengi litu mjög illa út. Að ein­hverju leyti er það ósann­gjarnt, þetta er eins og að taka langa máls­grein úr bók, en svo átt­aði ég mig á því að þetta virt­ist raun­veru­lega særa fólk og það þótti mér afar leitt,“ segir Þórdís, sem baðst afsök­unar á færsl­unni og Leik­hóp­ur­inn Lotta líka.

Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Þórdís að fyrr­nefndar hót­anir megi ekki líð­ast og því muni hún kæra þær til lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við