Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kolbrún segir ummæli Þórdísar lýsa hroka

Kolbrún segir ummæli Þórdísar lýsa hroka

Forseti sveit­ar­stjórnar Norð­ur­þings telur ummæli sem með­limur í Leik­hópnum Lottu við­hafði um Rauf­ar­höfn og Kópasker lýsa hroka gagn­vart lands­byggð­inni. Hún seg­ist vera ánægð með að leik­hóp­ur­inn skuli hafa beðist afsök­unar.

„Það er glatað að láta svona hluti út úr sér, þótt þarna sé verið að grín­ast,“ segir Kolbrún Ada Gunn­ars­dóttir, for­seti sveit­ar­stjórnar Norð­ur­þings, í sam­tali við Mannlíf, um ummæli sem með­limur í Leik­hópnum Lottu lét falla um Rauf­ar­höfn og Kópasker á samé­lags­miðlum um helg­ina.

Sjá einnig: Hótað líf­láti og nauðgun vegna ummæla um Kópasker og Rauf­ar­höfn

Leik­hóp­ur­inn sem hefur verið að ferð­ast um landið með barna­leik­rit um Bakka­bræður var staddur á aust­an­verðu land­inu um helg­ina og kom við á Rauf­ar­höfn og Kópa­skeri. Þar lét Þórdís Björk Þor­finns­dóttir, leik­kona og með­limur leik­hóps­ins, eft­ir­far­andi ummæli falla á Instagram. „Jæja þá erum við búin að koma á helv.. Kópasker,“ skrif­aði hún og bætti um betur. „Keyrðum á Kópasker og Rauf­ar­höfn bara til að geta krossað það út af list­anum, mæli alls ekki með að koma hingað, bara alls alls ekki gera það,“ skrif­aði hún en DV fjall­aði um málið.

„Það er kannski engin brjál­æð­is­leg hugsun í gangi með þessum ummælum, þetta átti að vera fyndið en lýsir í raun hroka gagn­vart lands­byggð­inni.“

Ummæli Þórdísar hafa vakið hörð við­brögð og þurfti leik­hóp­ur­inn Lotta að senda frá yfir­lýs­ingu þar sem hóp­urin kveðst harma orð hennar. Segist Kolbrún Ada vera ánægð með við­brögð leik­hóps­ins og eins að leik­konan skuli hafa beðist afsök­unar. „Það er kannski engin brjál­æð­is­leg hugsun í gangi með þessum ummælum, þetta átti að vera fyndið en lýsir í raun hroka gagn­vart lands­byggð­inni. Maður getur bara ekki leyft sér hvað sem er þegar maður er í leik­hóp og með marga fylgj­endur. Þá getur maður ekki sett svona stað­hæf­ingar fram á opin­berum vett­vangi nema taka ábyrgð. Ég er ánægð með að hún hafi séð að sér og áttað sig á því að hún gerði mis­tök. Ég vona að hún læri af þessi,“ segir Kolbrún Ada.

Byggð í viðkvæmri stöðu

Rauf­ar­höfn hefur frá árinu 2012 verið aðili að verk­efn­inu Byggð­ar­stofn­unar sem kall­ast Brot­hættar byggðir og hefur það að mark­mið að styðja við byggð og stöðva fólks­fækkun í smærri byggða­kjörnum og sveitum á Íslandi. Kolbrún Ada segir því ljóst að Rauf­ar­höfn sé í við­kvæmri stöðu.

Spurð hvort ummæli eins og þessi þar sem fólk er hvatt til að halda sig fjarri Rauf­ar­höfn séu ekki eins og blaut tuska í and­litið vill hún ekki svara því beint. „Hins vegar má alveg koma fram að Rauf­ar­höfn hefur verið aðili að þessu verk­efni og að á Öxar­firði hefur verið í gangi verk­efni sem kall­ast Öxar­fjörður í sókn. Bæði verk­efni hafa gefið góða raun, það er búið að vera mik­ill kraftur í fólki, mikil fram­taks­semi í gangi, en nú er þessum verk­efnum að ljúka og þá er spurn­ing hvað tekur við. Auðvitað þýðir ekki að vera með tíma­bundin verk­efni og svo engin plön um áfram­hald­andi vinnu og upp­bygg­ingu. Ef við viljum halda byggð í land­inu verðum við að leggja eitt­hvað á okkur. Ríkið þar að stíga betur inn í þetta,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð