InnlentYfirlýsing ríkislögreglustjóra vegna ummæla um „skattborgara“23. júlí 2020 Embætti ríkislögreglustjóra hefur sent frá sér tilkynningu um samskipti konu við neyðarlínuna. Hringdi konan og óskaði eftir aðstoð vegna karlmanns sem hún og unnusti hennar komu að við Barónsstíg. Sat maðurinn þar og kastaði upp. Í færslu sem konan skrifaði á samfélagsmiðla eftir atvikið segir hún að lögreglumaðurinn sem svaraði neyðarsímtalinu hafi spurt hana hvort maðurinn, sem var ósjálfbjarga, væri...
InnlentKonan fundin heil á húfi22. júlí 2020 Stúlkan sem lögreglan á Norðurlandi eystra lýsti eftir í gærkveldi, Ílóna Steinunn, er komin fram heilu og höldnu. Lögreglan þakkar þeim viðbragðsaðilum sem komu að leitinni fyrir vel unnin störf sem og fjölmiðlum fyrir miðlun upplýsinga.
InnlentGekk um miðbæ Reykjavíkur með spýtu á lofti22. júlí 2020 Nokkur fíkniefnamál komu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Lögregla þurfti í gær að hafa afskipti af manni sem gekk um miðbæ Reykjavíkur með spýtu á lofti. Var maðurinn undir miklu áhrifum fíkniefna. Lögreglu barst önnur tilkynning vegna manns í miðbænum og var sá að sprauta sig með fíkniefnum að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Var lögregla...
InnlentKristinn Rúnar gekk 100 km samfleytt í maníu: „Að vera á geðdeild er svolítið eins og að vera góður í póker“20. júlí 2020 Kristinn Rúnar Kristinsson, sem er 31 árs að aldri, hefur glímt við geðhvörf í rúman áratug, en hann var greindur með geðhvörf árið 2009. Í maníum hefur hann margoft lent í ýmsum uppákomum, sem margar eru hálflygilegar að heyra. Kristinn Rúnar gaf bókina Maníuraunir: Reynslusaga strípalingsins á Austurvelli út í lok ársins 2018, og las hana síðar sjálfur inn sem...
InnlentLögregla ítrekað kölluð út vegna samkvæmishávaða19. júlí 2020 Gærdagurinn var erilsamur hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en frá klukkan 17 í gær til klukkan fimm í nótt voru 93 mál bókuð og sex vistaðir í fangageymslu. Var lögreglan meðal annars ítrekað kölluð út vegna heimasamkvæma og barst henni 21 tilkynning vegna samkvæmishávaða í gærkvöldi og í nótt, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Tvær líkamsárásir komu á...
InnlentMeintur fíkniefnasali handtekinn17. júlí 2020 Lögreglan á Suðurnesjum handtók í vikunni karlmann vegna gruns um að hann stundaði fíkniefnasölu. Farið var í húsleit, að fenginni heimild, og þar fundust kannabisefni á víð og dreif um húsnæðið, auk vogar og mikils magns af smelluláspokum. Sá handtekni gekkst við því að eiga efnin. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri...
InnlentSló lögreglukonu í andlitið16. júlí 2020 Óvelkominn gestur brást illa við þegar honum var vísað úr heimahúsi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna óvelkomins aðila í heimahúsi í austurhluta Reykjavíkurborgar í gær. Þegar viðkomandi var vísað út sló hann lögreglukonu í andlitið. Var hann vistaður í fangaklefa í kjölfarið, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Ekki fylgdi hvort lögreglukonan meiddist. Þá var ökumaður...
InnlentKannabisræktun stöðvuð á Suðurnesjum14. júlí 2020 Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í fyrradag kannabisræktun í íbúðarhúsnæði í umdæminu. Um var að ræða tæplega sjötíu plöntur á ýmsum vaxtarstigum. Ræktuninni hafði verið komið fyrir á efri hæð hússins. Þrír voru handteknir vegna málsins og færðir til skýrslutöku. Allmikill búnaður sem notaður var við ræktunina var haldlagður. Kemur þetta fram í tilkynningu frá lögreglu. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005....
InnlentLögreglan elti innbrotsþjóf uppi14. júlí 2020 Laust fyrir miðnætti í gær fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um innbrot í hús í Árbæ. Stuttu seinna barst tilkynning um innbrot í annað hús og var ljóst að sami maður var á ferð miðað við lýsingar tilkynnenda. Rúmlegar eitt í nótt sá lögreglan hinn grunaða á bifreið og sinnti hann ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Eftirför var um hverfið og síðan...
InnlentDottaði undir stýri og ók út af13. júlí 2020 Ökumaður sem dottaði undir stýri á Reykjanesbraut um helgina missti við það stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún lenti á umferðarskilti og hafnaði utan vegar. Hann slapp ómeiddur en talsverðar skemmdir urðu á bifreiðinni sem flytja þurfti af vettvangi með dráttarbifreið. Þá var lögreglan á Suðurnesjum kvödd að bílskúr í Keflavík um helgina þar sem þriggja ára...
InnlentTrufluðu bílaumferð á hlaupahjólum13. júlí 2020 Lögreglan á Suðurnesjum þurfti í nótt að hafa afskipti af nokkrum unglingum sem gerðu það að leik sínum að trufla umferð í Keflavík með því að fara á hlaupahjólum fyrir bíla sem voru á ferðinni. Auk þessa máttu þeir ekki vera úti að nóttu til vegna aldurs. Unglingunum var veitt tiltal, ekið til síns heima og rætt verður við forráðamenn...
InnlentBeittu eggvopni í árásunum13. júlí 2020 Eitt og annað kom til kasta lögreglu í gær. Þar á meðal fjórar líkamsárásir. Í tveimur árásunum var eggvopni beitt. Fyrst í gærkvöldi þegar karlmaður með eggvopni réðist á annan mann á Ingólfstorgi og veitti honum áverka á hálsi. Var árásarmaðurinnn horfinn af vettvangi þegar lögregla mætti á svæðið. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á bráðamóttöku. Þá réðist...