InnlentLýst eftir fiðluleikara Sinfóníunnar hjá Interpol2. maí 2020 Lýst hefur verið eftir fyrrverandi fiðluleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Sean Aloysius Marius Bradley, hjá Interpol. Hans hefur verið saknað í rúmlega eitt og hálft ár. Ekkert hefur til hans sést frá sumrinu 2018. Sjálfur hafði Sean sagt vinum sínum hér á landi að hann væri farinn til Spánar en grunur leikur á að einhver annar en fiðluleikarinn væri að hafa samskiptin...
InnlentLögregluaðgerð í Kópavogi – Unglingsstúlka veitti drengnum áverka30. apríl 2020 Unglingsstúlka hefur verið færð til vistunar á viðeigandi stofnun eftir að alvarlegt atvik varð í Kópavogi snemma í kvöld. Þar var unglingspilti veittir áverkar með eggvopni, en nú liggur fyrir að það var af völdum stúlkunnar. Mikill viðbúnaður var vegna málsins, en í fyrstu var talið að ókunnugur maður hefði staðið að árásinni, en svo reyndist ekki vera. Sjá einnig:...
InnlentLeit hætt – Málavextir ekki eins og talið var30. apríl 2020 Leit lögreglunnar að manni í tengslum við alvarlegt atvik í Kópavogi fyrr í kvöld hefur verið hætt, en málavextir voru ekki með þeim hætti sem í fyrstu voru taldir. Kemur þetta fram í tilkynningu frá lögreglunni. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Lögreglan þakkar öllum þeim sem veittu aðstoð við leitina í kvöld. Sjá...
InnlentKarlmanns leitað í Kópavogi í viðamikilli lögregluaðgerð – Réðst á 2 unglinga30. apríl 2020 Fjöldi lögreglumanna, þar á meðal sérsveit lögreglunnar leita karlmanns í Salahverfi í Kópavogi. Leitað er með aðstoð þyrlu og dróna. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur verið með mikinn viðbúnað í Örvasölum í Kópavogi og næsta nágrenni í kvöld eftir að tilkynning barst um mjög alvarlegt atvik þar sem ráðist var á tvo unglinga um sexleytið. Leit stendur yfir að manni vegna...
InnlentLögreglumaður stefnir fyrrverandi ritstjóra DV og krefst miskabóta30. apríl 2020 Lögreglumaður hefur stefnt fyrrverandi ritstjóra og ábyrgðarmanni netmiðilsins DV. Maðurinn krefst 1,5 milljóna í miskabætur. Fréttablaðið greinir frá. Lilja Katrín Gunnarsdóttir var ritstjóri DV þegar fréttin birtist. Málið snýst um frétt sem birt var á vef DV þann 16. febrúar undir fyrirsögninni „Lögreglumaður sakaður um hrottalega árás í miðbænum í nótt – er leikmaður FH“. Í fréttinni er fjallað um...
InnlentOfurölvi kona klóraði nágranna sinn29. apríl 2020 Lögregla þurfti að handtaka tvær ofurölvi konur í Hlíðunum í gærkvöldi, klukkan 22:41. Önnur var handtekin fyrir líkamsárás og hin fyrir að tálma störf lögreglu. Í dagbók lögreglu um málið segir að nágranni hafði bankað hjá konunum vegna hávaða sem barst frá íbúð þeirra. Nágranninn bað húsráðanda að minnka hávaðann en húsráðandi réðst þá á manninn og klóraði hann meðal...
InnlentLögreglan óskar eftir öryggisleit í Þorlákshöfn28. apríl 2020 Lögreglan á Suðurlandi hefur óskað eftir því við svæðisstjórn börgunarsveita á Svæði 3 að kallaður verði bátaflokkur til öryggisleitar í og við Skötubót í Þorlákshöfn eftir að sjóblautur fatnaður, stuttbuxur, skór og sokkar, fannst í fjörunni við svokallað áburðarplan við varnargarðinn við Skötubót. Kemur þetta fram í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar. Ekki er vitað til þess að neins sé saknað...
InnlentReyndu að stinga lögreglu af á mótorhjóli28. apríl 2020 Lögregla gerði tilraun til að stöðva ökumann á bihjóli í gær klukkan 21:22 Laugardalunum, farþegi var á hjólinu. Ökumaður stoppaði ekki og veitti lögregla þá eftirför sem endaði með umferðaróhappi. Engin meiðsl urðu á fólki er fram kemur í dagbók lögreglu. Farþegi hjólsins komst undan en ökumaðurinn var handtekinn, grunaður um m.a. akstur undir áhrifum fíkniefna og brot á umferðarlögum....
InnlentGæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur26. apríl 2020 Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni á sextugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið sambýliskonu sinni að bana í Sandgerði í lok marsmánaðar. Gæsluvarðhaldið var í héraðsdómi framlengt til 20. maí næstkomandi að kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum. Úrskurðurinn var kærður til Landsréttar sem staðfesti hann eins og áður sagði. Sjá einnig: Handtekinn þremur dögum eftir andlát sambýliskonu: Bæjarbúar slegnir
InnlentGrunaður um ölvun á hestbaki26. apríl 2020 Laust fyrir klukkan átta í gærkvöldi fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um slys í Mosfellsbæ. Karlmaður hafði fallið af hesti og kenndi eymsla í baki, var hann fluttur með sjúkrabifreið á bráðadeild. Maðurinn er grunaður um ölvun og hafa gerst brotlegur við reglur um ölvunarakstur: „Stjórnað eða reynt að stjórna hjóli eða hesti undir áhrifum áfengis eða annarra örvandi eða...
InnlentPar handtekið vegna líkamsárásar26. apríl 2020 Par var handtekið í Breiðholti um klukkan 22 í gærkvöldi grunað um árás á konu. Parið var vistað fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Áverkar árásarþola voru taldir vera minniháttar. Kemur þetta fram í tilkynningu frá lögreglunni. Um hálfþrjú í nótt var tilkynnt um slagsmál við bar í hverfi 108. Maður var handtekinn grunaður um líkamsárás, var hann vistaður fyrir...
InnlentAlvarleg líkamsárás í Kópavogi – gæsluvarðhald til 30. apríl25. apríl 2020 Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður í sex daga gæsluvarðhald, eða til 30. apríl, í gærkvöldi í Héraðsdómi Reykjaness, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á mjög alvarlegri líkamsárás í Kópavogi seint á fimmtudagskvöld. Tveir aðrir karlar sem voru handteknir í tengslum við málið eru báðir lausir úr haldi lögreglu.