InnlentAskja innkallar Mercedes-Benz X-Class15. september 2020 Bílaumboðið Askja ehf. innkallar nú 20 Mercedes-Benz X-Class bifreiðar framleiddar árin 2018-2020. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að Active Brake Assist kerfið virki ekki sem skyldi.Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis. Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa....
InnlentBlekhylkin dýr: Ódýrara að henda prentaranum og kaupa nýjan14. september 2020 Neytandi vekur athygli á kostnaði við kaup á prentarahylkjum í Facebook-hópnum: Vertu á verði – eftirlit með verðlagi. Neytandinn keypti prentara í Costco, sem kostaði 10.999 krónur. Kaup á hylkjum í prentarann í annarri verslun eru hins vegar mun dýrari en prentarinn sjálfur. „Þessi prentari var keyptur í Costco og er alveg ágætur. Hann virđist þó vera hannađur sem einnota...
InnlentReebok Fitness braut lög í COVID-19 faraldrinum14. september 2020 Líkamsræktarstöðin Reebok Fitness braut lög þegar uppsagnarskilmálum notenda stöðvarinnar var breytt einhliða í COVID-19 kórónuveirufaraldrinum í vor. Kemur þetta fram í ákvörðun Neytendastofu, og er líkamsræktarstöðinni bannað að viðhafa slíka viðskiptahætti aftur. Í ákvörðun Neytendastofu kemur fram að fjöldi ábendinga og fyrirspurna hafi borist frá neytendum stöðvarinnar er varðaði rétt þeirra til að segja upp eða frysta áskrift sína að...
InnlentAllt að 160% verðmunur milli matvöruverslana14. september 2020 Gríðarlegur verðmunur er á verðlagi matvöru og í yfir 42 tilfellum af 104 var yfir 100% munur á hæsta og lægsta verði, þar af var munurinn í 14 tilfellum yfir 160%. Í 50 tilfellum var munurinn 40-100% Þetta sýnir verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ á matvöru sem gerð var 8. september í 14 verslunum. Könnunin náði bæði til lágvöruverðsverslana og minni verslana,...
InnlentBL innkallar 160 Land Rover bíla11. september 2020 Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf um að innkalla þurfi 160 Land Rover Discovery af árgerð 2017-2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að þegar afturhurðum er lokað er hætta á að þær lokist ekki tryggilega. Viðkomandi bifreiðaeigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis. Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra...
InnlentEkki setja þennan borðbúnað í örbylgjuofninn10. september 2020 Matvælastofnun varar við að setja melamín plast í örbylgjuofninn, þar sem það getur gefið frá sér skaðleg efni í matinn við hitun. Melamín plast er vinsælt í barna borðbúnað. Þetta er hart plast og er gjarnan litríkt og fallegt. En það hentar illa í örbylgjuofn þar sem það getur gefið frá sér skaðleg efni í matinn við hitun í honum....
InnlentBarnafataverslun innkallar peysur – Bönd geta valdið hættu á kyrkingu9. september 2020 Neytendastofa bendir á að barnafataverslunin Bíumbíum innkallar How to kiss a frog hettupeysur sem fengist hafa í versluninni. Hættan felst í því að bönd í hettum eða í hálsmáli geta valdið hættu á kyrkingu. Um er að ræða vöruna Gola Hoodie Dress in Powder velvet, vörunúmer AW1930-2Y. Peysan sem um ræðir Af öryggisástæðum vill verslunin benda þeim sem keypt hafa...
InnlentAuglýsing gæsa á Facebook getur verið ólögleg9. september 2020 Matvælastofnun vekur athygli veiðimanna á þeim reglum sem gilda um gæsir, en skottímabil þeirra er hafið. Veiðimenn mega ekki selja gæsaafurðir eða dreifa þeim nema með leyfi Matvælastofnunar eða viðkomandi Heilbrigðiseftirlitssvæðis. Auglýsing á Facebook getur talist til sölu eða dreifingar. Hver veiðimaður má þó afhenda/selja heila gæs (óreytta) til neytenda, markaða eða veitingastaða án leyfis. Sérhver meðhöndlun á gæs telst...
InnlentAðgerðaáætlun í plastmálefnum gefin út8. september 2020 Umhverfis- og auðlindaráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun áætlunina Úr viðjum plastsins. Hún samanstendur af 18 aðgerðum sem miða að því að draga úr plastnotkun í samfélaginu, auka endurvinnslu plasts og sporna gegn plastmengun í hafi. Meira en helmingur aðgerðanna er þegar kominn til framkvæmda, til að mynda bann við afhendingu burðarpoka án gjaldtöku. Í sumar samþykkti Alþingi frumvarp...
InnlentMatarbúðin Nándin hlýtur Bláskelina 20208. september 2020 Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra veitti Bláskelina 2020, viðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins fyrir framúrskarandi plastlausa lausn, fyrr í dag. Matarbúðin Nándin Matarbúðin Nándin hlaut viðurkenninguna í ár. Matarbúðin Nándin er plastlaus matarbúð sem endurnýtir glerið sem selt er í búðinni. Markmið þessa fjölskyldufyrirtækis er að skapa „sjálfbært matvælakerfi“ þar sem sett er upp hringrás fyrir gler, ásamt því að...
InnlentGrunur um salmonellu í kjúklingi – Keyptir þú kjúkling með þessu númeri?8. september 2020 Matvælastofnun varar við neyslu á ferskum kjúklingum frá Reykjagarði vegna gruns um salmonellu. Fyrirtækið er að innkalla kjúklinginn. Innköllunin nær eingöngu til eftirfarandi rekjanleikanúmera: 001-20-31-3-07 & 001-20-31-1-13 (Holta-, Kjörfugl og Krónu-kjúklingur) 001-20-31-3-07 & 001-20-31-1-13 (Heill fugl, bringur, lundir, bitar) Dreifing: Icelandverslanir, Hagkaupsverslanir, Krónan, KR Vík, Kjarval, Nettó, Costco, Extra24, Heimkaup, Kf. Skagfirðinga, Bjarnabúð, Kjörbúðin, Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Olís Verslun Varmahlíð, Basko/10-11....
InnlentEr hægt að finna hádegismat fyrir 1000 krónur eða minna? – Sjáðu listann8. september 2020 Ertu þreytt/ur á að borða samlokuna við skrifborðið þitt í hádeginu eða afganga frá kvöldmatnum kvöldinu áður. Það getur verið ærinn hausverkur dag hvern að ákveða hvað eigi að vera í matinn, og það tvisvar á dag, hádegi og kvöld. Og svo tekur það drjúgt í veskið ef borða á úti í hádeginu alla daga. Mannlíf fór á stúfana og...