Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Flokkur

Orðrómur

Greinar

Slúður

Brynjar fékk vinnu

Sá umdeildi og glað­beitti Brynjar Níelsson hefur fengið vinnu í gegnum Sjálf­stæð­is­flokk­inn eftir að sex mán­aða upp­sagn­ar­fresti hans á launum hjá dóms­mála­ráðu­neyt­inu lauk. Brynjar var þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins en féll af þingi í síð­ustu kosn­ingum. Hann var svo stál­hepp­inn að Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra réði hann sem aðstoð­ar­mann. Það starf hvarf út í busk­ann þegar Jón vék af ráð­herra­stóli fyrir Guðrúnu Haf­steins­dóttur....
Slúður

Arftaki Agnesar

Það stefnir í harðan slag um stól Agnesar Sig­urð­ar­dóttur, bisk­ups Íslands, sem hverfur úr emb­ætti sínu á kom­andi ári eftir feril sem er þyrnum stráður. Þegar hafa tveir prestar upp­lýst að þeir hygg­ist sækj­ast eftir emb­ætt­inu. Helga Soffía Kon­ráðs­dóttir, sókn­ar­prestur í Háteigs­kirkju, og Guðrún Karls Helgu­dóttir, sókn­ar­prestur í Graf­ar­vogs­kirkju, hafa lýst yfir áhuga sínum á emb­ætt­inu og búist er við...
Slúður

Logi til Washington

Bjarni Bene­dikts­son utan­ríki­ráð­herra á ekki sjö dag­ana sæla eftir að hann skip­aði Svan­hildi Hólm Vals­dóttur, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­mann sinn, sem sendi­herra í Washington. Fæstir botna í þessu ráðslagi Bjarna sem metur Svan­hildi framar öllum öðrum til að sitja þennan mik­il­væg­asta sendi­herra­póst Íslands. En þó eru ein­hverjir sem standa með Bjarna og sýna því skiln­ing að hann gauki góðu að nán­ustu sam­starfs­mönnum...
Slúður

Guðni undir feldi

Guðni Th. Jóhann­es­son , for­seti Íslands, sendi lands­mönnum að vanda fal­lega jóla­kveðju á Facebook. Ein­hverjir hafa eflaust von­ast eftir skila­boðum þar um fram­hald eða lok for­seta­tíðar hans þegar kjör­tíma­bil­inu lýkur í vor. En í jóla­kveðju hans og Elizu Reid var ekki vís­bend­ingu að finna en birtar myndir frá und­an­förnum átta árum frá Bessa­stöðum.Guðni hefur staðið sig vel í emb­ætti og...
Slúður

Köld jóla­kveðja Björns

Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi rit­stjórn­ar­full­trúi Morg­un­blaðs­ins, er ekki ánægður með bók Sig­mundar Ernis Rún­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóra Frétta­blaðs­ins, sem kom út fyrir jólin. Morg­un­blaðið birti á Þor­láks­messu grein Björns um bók Sig­mundar sem fundið er margt til for­áttu. DV gerið þessi skrif Björns að umfjöll­un­ar­efni og kallar grein­ina níð­skrif. Segir í grein­inni að Mogga­mönnum „svíði undan nokkrum stað­reyndum sem Sig­mundur getur um...
Slúður

Geir er hættur við

Tón­list­ar­mað­ur­inn og stór­söngv­ar­inn Geir Ólafsson stóð að sýn­ing­unni Christmas Las Vegas Show með miklum glæsi­brag. Tón­leik­arnir og mat­ar­veislan voru í Gamla bíói þar sem fjöldi inn­lendra og íslenskra lista­manna stigu á svið. Fyrir utan sjálfan stór­söngv­ar­ann er óhætt að full­yrða að Herbert Guð­munds­son hafi sungið sig inn í hjörtu áheyr­enda. Geir sagði í Mannlífi fyrir tón­leika­syrpuna að vegna dræmra und­ir­tekta...
Slúður

Einar sá ljósið

Einar Þor­steins­son, verð­andi borg­ar­stjóri í Reykja­vík, sagði sig úr Þjóð­kirkj­unni á sínum tíma vegna fram­göngu Agnes­ar M. Sig­urð­ar­dótt­ur bisk­ups og ann­arra ráða­manna innan kirkj­unnar sem hann taldi óboð­lega. Fjöl­margir aðrir hafa farið sömu slóð vegna ýmissa hneyksl­is­mál sem dunið hafa á kirkj­unni. Svo eru það þeir svörtu sauðir sem hafa snúiið aftur í náð­ar­faðm kirkj­unnar og iðr­ast. Þeirra á meðal...
Slúður

Séra Friðrik selur ekki

Einhver stærstu von­brigðin í jóla­bóka­flóð­inu hljóta að vera mein­leg örlög bókar Guð­mundar Magn­ús­sonar sagn­fræð­ings um séra Friðrik Frið­riks­son. Bókin, Séra Friðrik og drengirnir hans, nær ekki inn á met­sölu­lista þrátt fyrir gíf­ur­lega aug­lýs­ingu og mikið umtal. Egill Helgason lyfti bók­inni í hæstu hæðir í Kiljunni og gerði þar út á þann hluta bók­ar­innar sem lýsir meintri barna­girnd æsku­lýðs­leið­tog­ans. Mikil umfjöllun...
Slúður

Fannar í lífs­háska

Fannar Jónasson, bæj­ar­stjóri Grind­vík­inga, hefur meiri og erf­ið­ari reynslu af jarð­skjálftum en flestir aðrir. Hann sagði frá því í for­síðu­við­tali Mannlífs þegar hann bjó á Hellu og Suð­ur­lands­skjálft­inn dundi yfir. Hillur á skrif­stofu hans köst­uð­ust til og hann horfði á helm­ing­inn af vatni sund­laug­ar­innar takast á loft og lenda utan laugar. Löngu seinna flutti hann til Grinda­víkur og hefur gengið...
Slúður

Þor­steinn iðr­ast

Bar­áttu­mað­ur­inn Þor­steinn V. Ein­ars­son hefur beðið Esteri Harð­ar­dóttur, inn­kaupa­stjóra Bónuss, afsök­unar á þeirri aðför sem hann stýrði gegn henni eftir að Bónus afþakk­aði að hafa bók hans og eig­in­konu hans, Þriðju vakt­ina, til sölu í versl­unum. Þor­steinn birti harmi þrungna færslu á Instragram þar sem hann skor­aði á 3000 fylgj­endur sína að senda póst á Ester og krefj­ast þess að...