SlúðurSvik Áslaugar Örnu23. janúar 2025 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sinnt ýmsum hlutverkum á ævi sinni. Hún hefur verið dómsmálaráðherra, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Hún hefur verið ritari Sjálfstæðisflokksins, formaður Heimdallar, lögreglumaður og blaðamaður. Inn á milli hefur hún þóst vera stuðningsmaður Fylkis og hefur klæðst búningi félagsins í sjónvarpsþáttum og auglýsingum. Lítið hefur hins vegar sést til hennar viðburðum...
SlúðurJón vill ekki Þórdísi22. janúar 2025 Jón Gunnarsson alþingismaður vill ekki Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur sem næsta formann Sjálfstæðisflokksins. Þetta mátti lesa út úr orðum hans á Samstöðinni þar sem hann fór yfir stöðu mála í flokknum. Hann sakar Þórdísi um undirmál og virðingarleysi aðdragnada kosninganna þegar hún flúði Norðvesturkjördæmi og settist í annað sætið í Kraganum. Þórdís Kolbrún er í mótvindi. Hún þykir hafa misst...
SlúðurInga í vandræðum21. janúar 2025 Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, er þegar komin í nokkur vandræði. Salan á Íslandsbanka er eitt þeirra mála sem eru að springa í andlit hennar. Inga lýsti sig algjörlega andvíga sölu bankans á sínum tíma en treystir nú Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra til að annars söluna. Þá er kosningaloforðið um 450 þúsund krónur á mánuði til þeirra lægstlaunuðu farið að...
SlúðurGleðidagur Þórðar20. janúar 2025 Þórður Snær Júlíusson fjölmiðlamaður hefur undanfarið gengið í gegnum miklar hremmingar. Flett var ofan af hatursskrifum hans gagnvart konum sem fram fóru úr launsátri. Þá hafði hann úr sama launsátrinu úthrópað Rannveigu Rist álforstjóra og dylgjað um neyslu hennar. Allt þetta varð til þess að hann sagði sig frá þingsæti en hélt samt launum þar til kjörbréf þingmanna verða staðfest....
SlúðurSorglegir mótherjar Gulla19. janúar 2025 Eitt það áhugaverðasta við hverja baráttu um formannsembætti Sjálfstæðisflokksins í gegnum áratugina er að sjá hversu mikil ítök ákveðnir einstaklingar innan flokksins hafa í hinum ýmsu fjölmiðlum. Nafnlausar skoðanir huldumanna eru strax byrjaðar að birtast um víðan völl enda myndu þessir einstaklingar aldrei þora að koma fram undir nafni þegar drullunni er dreift. Sérstaklega ekki þegar eðjunni er kastað á...
SlúðurKampakátur Dagur18. janúar 2025 Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, lætur sjaldan gagnrýnisraddir hafa áhrif á líf sitt en í vikunni var sett út á að borgarstjórinn fyrrverandi hafi ekki verið búinn að hætta sem borgarfulltrúi um leið og hann var kosinn á Alþingi. Þessi seinagangur við að hætta sem borgarfulltrúi leiddi til þess að hann fékk alls 4,6 milljónir í laun frá hinu opinbera....
SlúðurÞórdís Kolbrún hikar17. janúar 2025 Sjálfstæðismenn eru síður en svo áfjáðir í það að stökkva fram á sviðið og lýsa yfir framboði eftir að Bjarni Benediktsson sagði sig frá vegtyllunni. Sá gamansami Snorri Ásmundsson listamaður er sá eini sem stigið hefur fram. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður var í viðtali við Heimi Má Pétursson á Stöð 2. Heimir vildi eðlilega vita hvort Þórdís ætlaði að...
SlúðurStefán E. segir pass16. janúar 2025 Hörðustu andstæðingar Sjálfstæðisflokksins hafa alið þá von í brjósti að Stefán Einar Stefánsson, þáttastjórnandi Morgunblaðsins, yrði næsti formaður Sjálfstæðisflokksins. Stofnuð var síða í hans nafni á samfélagsmiðlum í því skyni að kynna „framboð“ hans. Stefán er þekktastur fyrir að hafa afgreitt Þórð Snæ Júlíusson út úr stjórnmálum eftir að hafa birti upplýsingar um launsátur hans og langvarandi kvenhatur. Í framhaldinu...
SlúðurEldur bálreiður15. janúar 2025 Eldur Smári Kristinsson, einn leiðtoga Lýðræðisflokksins, hefur lengi verið umdeildur vegna óhefðbundinna skoðana sinna á transfólki. Hann hefur verið ófeiminn við að taka slaginn við fjandmenn sína en nú er hann bálreiður. Bergsteinn Sigurðsson, starfsmaður Ríkisútvarpsins, er skotspónn Elds sem hefur uppi stór orð um framgöngu hans í sjónvarpi allra landsmanna. Eldur svarar fyrir sig í hlaðvarpinu Eldvarpið. Forsagan er...
SlúðurHornkerlingin Dagur14. janúar 2025 Fyrir utan brotthvarf Bjarna Benediktssonar úr stjórnmálum er helsta umræðuefnið niðurlæging Dags B. Eggertssonar innan Samfylkingar. Dagur hefur um langt árabil haldið uppi fylgi flokksins með sigrum í Reykjavík þar sem höfuðvígi flokksins er. Fyrir kosningar reynt að halda honum frá framboði í þingkosningum. Þegar Dagur gaf sig ekki greip Kristrún Frostadóttir til þess ráðs að tilkynna að hjann fengi...
SlúðurMetnaður Ásdísar13. janúar 2025 Það vakti athygli margra sem ekki þekkja vel til innan Sjálfstæðisflokksins að lesa um hugmyndir þess efnis að Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, kæmi til greina sem næsti formaður flokksins. Ásdís hefur hingað til verið stór fiskur í lítilli tjörn og er helst þekkt undan bæjarfélagsins fyrir þrengja að efnalitlum íbúum Kópavogs þegar leikskólagjöldum sveitarfélagsins var snúið á hvolf. Það þarf...
SlúðurDagur fær dúsu13. janúar 2025 Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, hefur verið afgreiddur innan Samfylkingarinnar sem aukaleikari og fram að þessu hefur hann enga vegtylllu fengið. Hann sætti þeim örlögum í kosningunum að vera útstrikaður og færður niður um eitt sæti eftir hvatningu Kristrúnar Frostadóttur formanns. Dagur var svo heppinn að Þórður Snær Júlíusson frambjóðandi vað uppvís að kvenhatri og neyddist til að segja sig...