SkoðunAðsend greinGrænir lífeyrissjóðir11. febrúar 2020 Höfundur / Eva H. Baldursdóttir Lífeyrissjóðir stýra þriðjungi af heildarfjármagni í umferð á Íslandi. Þeir eiga ekki peningana – heldur hafa það hlutverk að gæta fjármuna sem við almenningur eigum. Lífeyrissjóðum er sett ákveðin umgjörð í lögum – bæði til að tryggja ávöxtun og stilla af áhættutöku. Þannig er ávöxtunarviðmið að finna í lagaumgjörð þeirra og fjárfestingarheimildir –hvernig eignasafninu skuli...
SkoðunAðsend greinÆ er pest?9. febrúar 2020 Höfundur/ Jóhanna Sveinsdóttir Þegar börnin okkar fá pestir verðum við foreldrarnir fullkomlega miður okkar. Við breiðum út faðminn, höllum höfði, strjúkum blíðlega yfir litla barnsennið og spyrjum með músarödd: „Æ er hiti?“ Barnið kjökrar. Við leggjum lófa að litlum vanga og hvíslum: „Æ er hor?“ Barnið kjökrar. Við sækjum hitamæli og tissjú og fáum yfir okkur spýju úr litlum munni:...
SkoðunAðsend skoðunBörnin frá útlöndum8. febrúar 2020 Höfundur / Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata Þegar þetta er skrifað er 3. febrúar 2020. Í dag átti að senda sjö ára dreng að nafni Muhammed til Pakistans. Hann hefur verið hér í rúm tvö ár, á marga vini og talar íslensku. Eftir mikla fjölmiðlaumfjöllun, samstöðufund með fjölskyldunni og mótmæli gegn brottflutningi hennar hefur dómsmálaráðherra brugðist við með því að...
SkoðunAðsend skoðunHin fullkomna staðgöngumæðrun?5. febrúar 2020 Höfundur / Helga Baldvins Bjargardóttir Ef við leyfum okkar að taka forréttindalitaða sjónarhornið okkar gagnrýnislaust á hugmyndir okkar um æskilegar og óæskilegar mæður er auðvelt að sjá í hvorn flokkinn fatlaðar mæður og mæður af erlendum uppruna falla. Með allan sinn ógnandi fjölbreytileika sem passar ekki inn í okkar vel hólfaða samfélag vaxa áhyggjur af börnunum þeirra, sem verða skrýtin,...
SkoðunSteingerður SteinarsdóttirÞorsti í þekkingu4. febrúar 2020 Leiðari úr 4. tölublaði Vikunnar 2020 Forvitni og þekkingarþorsti er grunnurinn að lífsgleðinni. Að missa ekki áhugann á öllu því dásamlega sem lífið hefur upp á að bjóða heldur fólki svo ungu sama hversu mjög kertunum á afmælistertunni fjölgar. Ég þekki fáar manneskjur jafnopnar fyrir nýjum áhrifum og þekkingu og Önnu Ólafsdóttur Björnsson. Hún hefur óskaplega gaman af að prófa...
SkoðunPawel BartoszekBæjarins bestu gjaldskrár2. febrúar 2020 Síðast en ekki síst Eftir Pawel Bartoszek Bæjarins bestu pylsur eru ekki bara með fínirís pylsur heldur líka með fínirís gjaldskrár. Ef ein pylsa kostar X þá kosta tvær pylsur 2X og þrjár kosta 3X. Engin tilboð, ekkert vesen. Ef kókið kostar Y þá kosta pylsa og kók X+Y. Ekkert tilboð, ekkert vesen. Enginn að plata menn til að kaupa...
SkoðunFriðrika BenónýsdóttirAðstandendur í lausu lofti31. janúar 2020 Leiðari úr 4. tölublaði Mannlífs „Að glíma við sjálfsvíg ástvinar er öðruvísi en allt annað,“ segir Birgitta Jónsdóttir í viðtali í Mannlífi dagsins um hvarf föður síns og seinna eiginmanns síns, sem báðir frömdu sjálfsvíg. Birgitta gagnrýnir harðlega að ekki skuli vera við lýði neinir ákveðnir verkferlar varðandi aðstoð við ástvini þeirra sem fremja sjálfsvíg og kallar eftir breytingum á...
SkoðunHanna Ingibjörg ArnarsdóttirEinföld hollusta – ekkert vesen27. janúar 2020 Leiðari úr 1. tölublaði Gestgjafans Eins og venja er á þessum árstíma þá er hollustan í hávegum höfð hjá Íslendingum og nú keppast allir við að ná „jólalögunum“ af sér. Mataræðið er lykilatriði þegar kemur að hollustu þó svo að hreyfing sé einnig mikilvæg, í raun þarf þetta tvennt að fara saman. Stundum hefur það pirrað mig að fólk setji...
SkoðunSólveig JónsdóttirHendur26. janúar 2020 Síðast en ekki síst Eftir Sólveigu Jónsdóttur Ég horfi stundum á hendurnar á mér. Þegar ég er skrifa, búa til mat eða spila á píanó. Ferill minn sem handamódel endaði áður en hann byrjaði enda bý ég yfir mörgum kostum en fínleg handafegurð er ekki þar á meðal. Einn fingurinn er með flennistórt ör eftir að ég sneiddi hann næstum...
SkoðunAðsend skoðunÞar kom það!25. janúar 2020 Höfundur / Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Skerðing leikskólaþjónustu hefur verið til umræðu í Reykjavík. Áformað er að draga úr sveigjanleika fyrir fjölskyldufólk. Aðgerðin myndi að líkum bitna verst á viðkvæmum hópum samfélagsins. Hún gæti valdið bakslagi í jafnréttisbaráttunni. Þessu er formaður skóla- og frístundaráðs ósammála. Hann fullyrti, í beinni sjónvarpsútsendingu, að engar rannsóknir sýndu að skert leikskólaþjónusta gæti...
SkoðunHólmfríður GísladóttirÖreigar allra landa …24. janúar 2020 Sósíalistaflokkurinn vill hverfa aftur í tímann og umbylta þjóðfélaginu. Framboð hans til Alþingis verður náðarhögg Flokks fólksins. Um fátt annað er hægt að fullyrða. Flokkurinn stefnir að uppreisn hinna kúguðu gegn auðvaldinu. Uppreisn hinna fátæku gegn hinum ríku. „Andstæðingar Sósíalistaflokks Íslands eru auðvaldið og handbendi þess,“ segir í stefnu sósíalista. En hverjir eru hinir kúguðu? Og hverjir eru auðvaldið? Vandinn...
SkoðunSteingerður SteinarsdóttirDýrmæt vinátta23. janúar 2020 Leiðari úr 3. tölublaði Vikunnar. Þegar fólk sest að utanlands er oft að annars konar sýn fæst á heimalandið. Fjarlægðin setur margt í móðu og skýrir annað. Kristbjörg Jónasdóttir hefur verið búsett erlendis um árabil. Hún fylgdi manninum sínum, fótboltakappanum Aroni Einari Gunnarssyni, fyrst til Englands og síðan til Cardiff. Þetta hafa verið viðburðarík ár full af gleði, sköpunarkrafti en...