SkoðunHólmfríður GísladóttirVilja sóttkví undir pilsinu6. mars 2020 Leiðari Mannlífs 6. mars 2020 Það er dálítið merkilegt hvað meintir talsmenn einkaframtaksins og hins frjálsa markaðar hjá Samtökum atvinnulífsins eru fljótir að benda á hið opinbera þegar útgjöld standa fyrir dyrum. Flesta daga ársins á „báknið“ helst að innheimta sem lægstan skatt og viðhafa mjög takmarkað eftirlit og afskipti. Þegar kemur að því að skrifa undir óútfylltan tékka kveður...
SkoðunAnnas Jón SigmundssonÍsland bezt í heimi2. mars 2020 Líklega hafa kjaraviðræður farið fram hjá fáum að undanförnu. Þá sérstaklega íbúum í Reykjavík. Hvaða skoðun sem fólk hefur á þeirri kjarabaráttu er áhugavert að skoða nokkra efnahagslega þætti sem hafa áhrif á velferð landsmanna. Laun í alþjóðlegum samanburði eru hvergi hærri en á Íslandi samkvæmt tölum frá OECD. Meðallaun á mánuði á Íslandi árið 2018 voru rúm 700 þúsund...
SkoðunSteingerður SteinarsdóttirUndarlegt verðmætamat29. febrúar 2020 Nýlega var framkvæmdastjóri Sorpu rekinn frá störfum. Allir vita að ástæðan er óábyrg fjármálastjórnun við byggingu nýrrar gas- og jarðgerðarstöðvar. Innri endurskoðun borgarinnar gerði alvarlegar athugasemdir við upplýsingagjöf og áætlanagerð framkvæmdastjórans. Á svipuðum tíma dúkkaði bragginn dýri og fíni í Nauthólsvík aftur upp í umræðunni og borgarstjóri benti fréttamönnum á að allir sem komið hefðu að endurbyggingu hans væru hættir...
SkoðunElísabet Ýr AtladóttirNauðsynleg fátækt29. febrúar 2020 Síðast en ekki síst Eftir / Elísabetu Ýri Atladóttur Alltof oft heldur fólk að fátækt sé óumflýjanlegur partur af samfélaginu. Að það sé nauðsynlegt að hafa fátækustu stéttirnar svo hlutirnir gangi yfirleitt upp fyrir restina. Ef fátæktin væri ekki til staðar þá yrði allt svo dýrt. Og þá væru allir fátækir, ekki satt? Verðbólga, höfrungahlaup og fall einkarekinna fyrirtækja er...
SkoðunCovid-19Aðsend greinYfirvegun og ábyrgð28. febrúar 2020 Höfundur / Halldór Benjamín Þorbergsson, formaður Samtaka atvinnulífsins Atvinnulífið er ekki eyland í íslensku samfélagi. Þvert á móti á atvinnulífið í virku samtali og samspili við samfélagið enda er það forsenda þess að við búum á þessari litlu eyju í sátt við góð lífskjör. Í virku samtali felast skoðanaskipti, gagnrýnin umræða, tillöguréttur og málfrelsi á báða bóga. Samtök atvinnulífsins hafa...
SkoðunSteingerður SteinarsdóttirSkrímsli stór og smá25. febrúar 2020 Hvað rekur ofbeldismenn áfram? Líklega hafa allir spurt sig þessarar spurningar, enda flestum gersamlega ómögulegt að skilja af hverju sumir virðast njóta þess að niðurlægja aðra og kvelja þá algjörlega að ástæðulausu. Ofbeldi brýtur niður þann sem verður fyrir því og margir fara út í lífið skaddaðir eftir einelti í æsku. Erfiðlega gengur að uppræta það í skólum landsins þótt...
SkoðunAðsend greinEina eftirsjá Attenboroughs23. febrúar 2020 Síðast en ekki síst Texti / Óttar M. Norðfjörð Ég hlustaði nýlega á viðtal við David Attenborough. Þessi vinsæli sjónvarpsmaður sagðist aðeins hafa eina eftirsjá á langri og viðburðaríkri ævinni: að hafa ekki varið meiri tíma með börnunum sínum þegar þau voru lítil, því hann var alltaf að vinna. Þetta hefur setið í mér, því upp á síðkastið hefur mér...
SkoðunAðsend skoðunStrengjaráðherrann22. febrúar 2020 Höfundur / Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins. Í þættinum Víglínan sem sýndur var á Stöð 2 sl. laugardag opinberaði iðnaðarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, enn og aftur áhuga sinn á að kanna það að flytja út íslenska raforku um sæstreng til Evrópu. Það hefur ráðherrann sagt áður. Hún talaði líka um að íslenski raforkumarkaðurinn væri óþroskaður. Það hefur ráðherrann sagt...
SkoðunSteingerður SteinarsdóttirHryllingur mannlífsins17. febrúar 2020 Leiðari úr 6. tölublaði Vikunnar 2020 Allt frá því ég stautaði mig í gegnum fyrstu Agöthu Christie-bókina á ensku, þrettán ára gömul, hef ég verið sjúk í sakamálasögur. Þessi drottning glæpasagnanna hafði lítið verið þýdd á íslensku og aðeins brennandi áhugi minn hélt mér gangandi blaðsíðu eftir blaðsíðu þar sem meira en sjötíu prósent orðanna voru framandi. En með hjálp...
SkoðunHanna Ingibjörg ArnarsdóttirLjósið í myrkrinu17. febrúar 2020 Leiðari úr 2. tölublaði Húsa og híbýla 2020 Ljós er sennilega eitt það mikilvægasta í tilveru okkar en án þess væri bara myrkur, eðlilega. Til eru ótal orðatiltæki um ljós og þau eru yfirleitt jákvæð, ljósið í myrkrinu, láta ljós sitt skína, fá grænt ljós, varpa ljósi á eitthvað og sjá ljósið, svo fátt eitt sé nefnt. En það er...
SkoðunAðsend greinSníkjudýr16. febrúar 2020 Höfundur / Óttar Norðfjörð Suður-kóreska kvikmyndin Sníkjudýr hlaut Óskarsverðlaunin fyrir bestu myndina síðustu helgi og varð þar með fyrsta myndin á öðru tungumáli en ensku til að gera það. Hún vann þrenn önnur Óskarsverðlaun og þegar sigurhrinan hófst byrjuðu svo margir S-Kóreubúar að horfa á hátíðina að atvinnulífið hálflamaðist. S-Kórea hefur lengi litið á sig sem peð í alþjóðamálum, en...
SkoðunAðsend greinÞetta land á sig15. febrúar 2020 Eftir Guðmund Andra Thorsson þingmann Samfylkingar. Land verður æ mikilvægara á tímum mikilla loftslagsbreytinga og komandi þjóðflutninga í kjölfar þess að æ fleiri svæði heims verða óbyggileg af manna völdum. Það er löngu tímabært að við setjum reglur sem takmarka skefjalausa söfnun einstaklinga á landi, þó ekki væri bara vegna þess mikla verðmætis sem þetta land á eftir að hafa...